Símablaðið - 01.09.1938, Side 9
S 1 M A B L A tí l Ð
41
Pétur Sighvats,
síöðvarstjóri á Sauðárkróki.
—o—•
Nckkur minningarorð.
—o—•
Hann lést á lieimili sínu 12. ágúst
s. 1., af afleiðingum holskurðar.
Pétur sál. var fæddur 6. nóv. 1874
að Höfða við Dýrafjörð sonur gáfu- og
fræðimannsins Siglivats Grímssonar
Borgfirðings. Þegar síminn var lagður
1908, varð Pétur þegar stöðvarstjóri á
Sauðárkróki og héll því starfi til dauða-
dags. Ekki leikur á tveim tungum að i
hópi fyrstu stöðvarstjóranna hafi Pétur
verið langsamlega hest búinn undir
starfið livað mentun snerti; þar að auki
prýðilega gefinn og athugull, sem hann
átti ætt til.
Þó mun okkur samstarfsmönnum
hans við símann ekki síður minnis-
stætt, hversu vel og samviskusamlega
hann rækti starfið, þrátt fyrir ýms
margháttuð störf önnur, skyldustörfin
sátu altaf í fyrirrúmi. Hann var auk
þess jafnan boðinn og húinn að leið-
Jjeina þeim, sem skorti leikni og þekk-
ingu á störfunum, enda voru leiðbein-
ingar lians þannig gefnar, að frá eng-
1 öðrum mátti verða betur þegnar.
Þótt mér jafnan verði liugbekk kynn-
ing lians gegnum símann, eru mér hin
persónulegu kvnni lians liugstæðari.
Um livað sem við ræddum, livort við
vorum sammála eða ósammála, gat
mér síst dulist að liann var gáfaður og
umfram alt lireinskilinn drengskapar-
maður.
Það er bjart yfir liðnum starfsferli
liins ágæta manns og á þann liátt að
bjartara miklu er framundan.
Kolbeinn Krisfinsson.
Oeir Konrá.ðsson Laugaveai 12. Reykjavík.
Rammalistar, Mvndir, Smárammar. Sporöskju-Hringrammar. Kristall og
margt fleira. — Stærst úrval í borginni.
Kolaver slun
HHM^nsrammmmmmmmii
Guðna&Einars
i m m m i m m 111 m i rarara rararai
Reykjavík.
Kalkofnsvegi
Sími: 159 5
(tvær línur).