Freyr

Årgang

Freyr - 01.05.1953, Side 5

Freyr - 01.05.1953, Side 5
XLVIII. ARGANGUR NR. 10-11 REYKJAVIK, MAÍ 1953. Frá Búnaðarþingi Búnaðarþing ársins hófst í Reykjavík föstudaginn þ. 20. febrúar. Á þinginu mættu í þetta sinn 23 aðalfulltrúar og 2 varafull- trúar, en þeir voru: Sigurgrímur Jónsson, Holti, í stað Bjarna Bjarnasonar, skóla- stjóra, Laugarvatni og Sigurður Snorrason, Gilsbakka, í stað Jóns Hannessonar, Deild- artungu, en aðalfulltrúar eru hinir sömu og að undanförnu samkvæmt nafnalista í Prey nr. 11 1951. Á þinginu voru 50 mál til meðferðar og hlutu 49 þeirra afgreiðslu. Búnaðarþings- tíðindi munu greina frá þeim öllum, en hér skulu aðeins birtar niðurstöður eða sam- þykktir í nokkrum þeirra: Frce og frœrœkt. Prá búnaðarsamböndum höfðu borizt er- indi og kvartanir yfir göllum grasfræs þess, er til landsins hefir verið flutt. í máli þessu var eftirfarandi samþykkt gerð: i. Búnaðarþing telur það miður farið, að nú á þessu ári verður að flytja meginliluta þess grasfræs, er við notum, frá Ameríku, vegna þess að innflutningur gras- fræs frá Norðurlöndum er bannaður af ótta við gin- og klaufaveikina. Hins vcgar viðurkennir það nauðsyn þess, að allrar varúðar sé gætt til þess að verjast þeim vágesti, en væntir þess, að eigi verði lagðar hömlur á innflutning lengur en nauðsyn krefur. Vill Búnaðarþing lýsa ánægju sinni yfir því, að tek- izt hefir að ná í háliðagras frá Finnlandi, er ætla má, að Sé sæmileg vara, og telur, að eftir þeim upplýsing- um, er fyrir liggja, hafi verið reynt að útvega eins gott grasfræ frá Ameríku og unnt er, með þeirri tak- mörkuðu reynslu og þekkingu, sem við höfum á fræ- stofnum þeim, er þar er völ á. II. Búnaðarþing telur nauðsynlegt, að scm kappsam- legast sé unnið að ]rví að rannsaka nothæfni mismun- andi stofna þeirra grastegunda, sem hér eru mest not- aðir, einkum af amerískum uppruna, ef vera kynni,

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.