Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1953, Síða 7

Freyr - 01.05.1953, Síða 7
FREYR 155 5. Að stjórn Búnaðarfélags íslands láti fram fara at- hugun á, hvaða tegund rafmótora væri heppileg- ust tii afnota í sveitum og að þeirri athugun lok- inni, að ná í söluumboð og fá eitthvert sölufyrir- tæki til að annast um innflutning og dreifingu vél- anna fyrir hæfilega þóknun. G. Að stjórn Búnaðarfélags Islands beiti sér fyrir því við ríkisstjórn og Alþingi, að innflutningur slíkra véla sé gefinn tollfrjáls. Skógrœkt. Búnaðarþing hafði til meðferðar frum- varp til skógræktarlaga, er skógræktarstjóri hefir samið. Gerði þingið við það ýmissar athugasemdir og fylgdi eftirfylgjandi greinargerð frá nefnd þeirri, er um málið fjallaði. Greinargerð: Jarðræktarnefndin hefir athugað nokkuð frumvarp þetta og orðið sammála um að mæla með því, að frumvarpið verði að lögum; þó leggur hún áherzlu á, að breytingartillögur hennar verði teknar til greina og samþykktar. I. og II. kafli frumvatpsins er því nær samhljóða gildandi lögum. Orðalag þessara kafla er í sumum atriðum nokkuð óbilgjarnt í garð landeig- enda, en nefndin telur samt ekki rétt að fara að vekja deilur um málið, þar sem fulls hófs mun hafa verið gætt í framkvæmd þessara kafla, eftir því sem nefndinni er kunnugt, og cinnig vegna þess, að ákvæð- in eiga að koma í veg fyrir eyðing skóga og graslendis. Skógræktin gerir þá kröfu, að búfé sé réttdræpt, ef það fer tvisvar inn í löggirðingu um skógrækt. Af því leiðir, að það hlýtur að vera ófrávíkjanleg krafa fén- aðareigenda, að nefndar girðingar séu nokkuð örugg varzla. Út frá þessu sjónarmiði hlýtur Búnaðarþing að krefjast þess, að girðingarnar séu betri varzla en hér cr gert ráð fyrir. Leggur nefndin því til, að hæð girðingar sé minnst 120 cm, eins og samþykkt var á síðasta Búnaðarþingi, og gerðin sé eins og lagt er til í breytingartillögum. Ennfremur er rétt til áherzlu að ákveða, að gaddavírs- girðing sé ekki lögleg, nema vír sé vel strengdur. í 17. gr. er gert ráð fyrir, að fjáreigendur þurfi að smala búfé í skógargirðingum, og gefur slíkt fyllilega í skyn, að ekki sé ætlazt til, að allar skógargirðingar verði lög- girðingar, enda er það lítt httgsandi. Slíkar girðingar veita þá skógra’ktinni ekki rétt til að láta farga fénu, sem inn I þær fer. 19. gr. Grein þessi er mjög í samræmi við ályktun síðasta Búnaðarþings; þó er brugðið út af í tveim atriðum, sem nefndin telur miður fara. I fyrsta lagi er fellt niður ákvæði um, hvernig skuli fara með fén- að, er í fyrsta sinn fer inn í löggirðingtt, og af ein- hverjum ástæðum cr ekki hirtur af eiganda, en ekki er heimilt að farga. Nefndin leggur nú til eins og fyrr, að hreppstjóri ákveði, hvar honttm skuli sleppt. I öðru lagi er dregið úr aðstöðu fénaðareiganda til að knýja girðingareiganda til að lagfæra löggirðingar, ef aðfenni gerir girðinguna óvirka. Nefndin leggur til, að notað verði sama orðalag og síðasta Búnaðarþing lagði til um Jretta atriði. Svofelld dagskrártillaga var og samþykkt í máli þessu: Með því að frumvarp það til laga um skógrækt, sent nú liggur fyrir Búnaðarjzingi, virðist að ýmsu leyti óaðgcngilegt bændum landsins í núverandi formi, en að öðru leyti er hér um mikilsvert framtíðarmál að ræða, sem vel þarf að vanda, áður en fullnaðarstakkur er skorinn, ályktar Búnaðarþing því að kjósa tveggja manna milliþinganefnd til að athuga frumvarpið, og verði leitað samkonntlags við yfirstjórn skógræktar- málanna um að hún taki þátt í athugun þessa máls með því að leggja til fulltrúa í nefndina. Skal nefndin leggja fram álit sitt fyrir næsta Búnaðarþing. Steinefnavinnsla og steinefnaþörf. A. Sem úrræði til öflunar steinefna handa búfé var samþykkt eftirfarandi á- lyktun með greinargerð: Búnaðarþing felur stjórn Búnaðarfélags íslands að láta fara frant á þessu ári rannsókn á því, hvernig nýta megi sem mest af húsdýrabeinum í landinu til fóðurs, og leggja niðurstöður þeirrar rannsóknar fyrir næsta Búnaðarþing. Greinargerð: Eitt af okkar mörgu óleystu verkefnum varðandi ís- lenzkan landbúnað er nýting húsdýrabeina. Landbúnaður okkar er svo að segja einvörðungu húsdýrarækt; er því um mikið hráefni að ræða, er til fellur árlega í öllum beinum í landinu. Hér er því um mikil verðmæti að ræða, sem látin eru ónýtt á ári hverju. En þótt áreiðanlega sé hér um að ræða mikil fjárhagsleg verðmæti, þá rnunu þó hin óbeinu verð- mæti ennþá þýðingarmeiri og verðmætari fyrir land-

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.