Freyr - 01.05.1953, Page 10
158
FREYR
Svona var útsýnin yfir sundin og Gufunesið um \>að bil sein framkvcemdir hófust við byggingu
Aburðarverksmiðjunnar. Vinnuskálarnir hafa verið rcistir en landsvœðið er annars að mestu órótað.
Hús bújarðarinnar i Gufunesi sjást við enda vegarins; við tangann til hœgri er bryggju verksmiðj-
unnar œtlaður staður. Laugarnesið ber yfir Gufunesbccinn en Viðey til hcegri hinumegin við sundið.
Ljósm.: V. S.
skorar Búnaðarþing á stjórn Búnaðartclags íslands að
vinna að því að kvikmynda vel rckinn búskap, eins
og hann er nú hjá okkur, og jafnframt verði unnið að
kvikmyndun þeirra þátta úr atvinnulífi bænda og
sveitafólks, sem nú eru að hverfa eða eru horfnir úr
þjóðlífi okkar.
Vill Búnaðarþing sérstaklega fela stjórn fclagsins að
leita um þetta náinnar samvinnu við átthagaféiög og
aðra aðila, er að þessu vilja vinna.
Erindi menntamálaráðuneytisins.
Út af erindi menntamálaráðuneytisins
varðandi búnaðarfræðslu í héraðsskólum
var samþykkt eftirfarandi:
Búnaðarþing lýsir ánægju sinni yfir því, að hafin
er upplýsingastarfsemi um landbúnað í héraðsskólun-
um.
Telur Búnaðarþingið, að ekki sé ástæða til að starf-
semi þessi verði felld í fast form, fyrr en fengin er
nokkur reynsla af því, hvaða áhrif þetta hefir á að-
sókn að bænda- og húsmæðraskólunum. Þingið lítur
svo á, að þessi fræðsla eigi fyrst og fremst að orka til
hvatningar æskunni til að helga krafta sína höfuð-
atvinnuvegum þjóðarinnar og að sækja sérskóla þeirra,
en ekki vera kerfisbundin sérfræðikennsla.
í þessu sambandi vill Búnaðarþingið endurtaka og
undirstrika þær samþykktir, er það gerði á síðasta
Búnaðarþingi, og bendir sérstaklega á II. kafla þeirrar
samþykktar.
Verkleg mennt.
Fyrir þinginu lágu erindi um nauðsyn
þess, að tekin yrði upp kennsla í búfjár-
hirðingu, og var í því efni samþykkt eftir-
farandi ályktun: