Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.05.1953, Qupperneq 15

Freyr - 01.05.1953, Qupperneq 15
FREYR 163 artilraun í sama skiptið og betri en venju- legast fæst með notkun ófrysts sæðis. Þetta sæði hafði reyndar verið þynnt minna en venjulega eða 1 hluti af sæði notaður móti 3 af geymsluefninu. Síðari tilraunir benda þó til þess, að þynning 1:40 á frystu sæði dragi ekki úr frj óvgunarhæfileika þess. Sökum þess, hve stutt er síðan tilraunir þessar hófust, er enn ekki komin reynsla á það, hve lengi megi geyma sæði fryst án þess, að það missi frjóvgunarhæfileikann. Bráðabirgðaniðurstöður benda þó til þess, að 20 vikna geymsla hafi engin áhrif á hann. Hanasæði hefir haldið frjóvgunar- hæfileikanum eftir 9 mánaða geymslu í frysti. Sú uppgötvun, að hægt sé að frysta og þíða lifandi dýrafrumur án þess, að þær deyi, er í sjálfu sér mjög athyglisverð og mikilvæg frá fræðilegu sjónarmiði. Glyc- erol, sem notað hefir verið sem geymslu- efni í þessum tilraunum, eins og áður er getið, virðist draga úr kristalmynduninni, meðan á frystingu stendur, þannig að frumurnar verða fyrir sem minnstu hnjaski af völdum hennar. Þá bendir sú til- raun, sem skýrt var frá hér að framan, til þess, að glycerol hafi bætandi áhrif á frjóvgunarhæfileika sæðisfrumanna sem geymsluefni, enda þótt sæðið sé ekki fryst. Hitt atriðið, að hægt er að geyma sæði frjótt í langan tíma, hlýtur að eiga eftir að verða mikilvægt á sviði tæknifrjóvgunar búfjár. Þannig ætti að verða hægt að nota til hins ýtrasta sæði úr bolum, sem reynsla hefir fengizt á, að eru úrvals kynbótagripir, en mikið af því fer oft til spillis. Þá viröast vera minni líkur til þess, að sjúkdómar ber- ist með frystu sæði, og því auðveldara með flutning á því landa á milli. Þegar ráðstefn- an var haldin, var vitað um einn kálf, sem fæðzt hafði út af frystu sæði, og nokkra kálfa út af sæði, sem blandað hafði verið með glycerol, en ekki fryst. Kálfarnir voru allir rétt skapaðir. Staðsetning sœðisins í kynfœrum kúa við tœknifrjóvgun. Þegar kúm er haldið, verður mestur hluti sæðisins eftir í skeiðinni, en nokkuð fer þó inn í legmunnann (os uteri) að jafnaði. Á fyrstu árum tæknifrjóvgunar var algengt að nota skeiðarsjá (vaginascope) eða glenni (speculum) til að víkka út skeiðina á kúnni, sem frjódæla átti. Síðan var frjódælingar- pípan færð gegnum þessi áhöld og sæðinu dælt inn í legmunnann og ytri hluta leg- hálsins (cervix). Önnur aðferð, sem gefið hefir enn betri árangur, hefir rutt sér til rúms síðari árin. Sá, sem frjódælinguna framkvæmir, fer þá með aðra höndina inn í endaþarm kýrinnar, þreifar fyrir legháls- inum gegnum þarmavegginn og nær taki á hcnum. Með hinni hendinni færir hann frjódælingarpípuna inn eftir skeiðinni og stýrir henni gegnum leghálsinn og inn í legið, þar sem sæðið er skilið eftir í leginu, venjulegast þar, sem það klofnar í leg- hornin. Víðtæk athugun hefir nýiega verið gerð á því, hvar æksilegast sé að setja sæðið, til þess að frjóvgunarhæfileikinn verði sem mestur. Athugunin, sem framkvæmd var af 31 manni á 7536 kúm, leiddi í ljós, að kýrn- ar festu álíka vel fang, hvort sem sæðið var sett í miðjan leghálsinn, legið sjálft eða leghornin. Nú vill svo til, að um 3—4% af kúm halda áfram að sýna yxniseinkenni, þótt þær hafi fest fang. Kemur það því ekki ósjaldan fyr- ir, að menn eru beðnir að frjódæla kýr, sem haldið hafa. Nú er sýkingarhætta í leginu mikil, þegar svo er ástatt. Verði fóstursins ekki vart, áður en kýr, sem svo er ástatt um, eru frjódældar, er allmikil hætta á, að þær láti fóstri, ef farið er með frjódælingar- pípuna inn í legið. Væri pípunni hins vegar beint inn í miðjan leghálsinn, en ekki lengra, væri ekki nein veruleg hætta á, að særindi eða sýklar yllu fósturláti. Bendir þetta til þess að dæla ætti sæðinu aðeins inn í miðjan leghálsinn, a. m. k. þegar um uppbeiðsli er að ræða, þar sem árangurinn er eins góður. Erfitt er þó fyrir æfða menn að skipta um tækni og eins er erfitt að kenna nýliðum að finna miðju leghálsins, nema þeir hafi áður fengið æfingu í að koma pípunni alla leið inn í legið.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.