Freyr

Volume

Freyr - 01.05.1953, Page 17

Freyr - 01.05.1953, Page 17
FREYR 165 ÞÓR GUÐJÓNSSON: Klak og seiðaeldi Á þessu ári er öld liðin síðan fyrsta meiri- háttar klakstöðin í heiminum hóf starfsemi sína. Þetta var rúmlega hundrað árum eftir að Þjóðverjanum Ludwig Jacobi heppnaðist fyrstum manna að frjóvga silungshrogn. Uppfinning Jacobis var fáum kunn framan af, og var það ekki fyrr en á 19. öld, að veru- legur áhugi vaknaði fyrir fiskaklaki, enda fór þá fyrst að bera á ofveiði í ám og vötn- um. Tilraunir voru gerðar með klak í mörg- um löndum, en þær voru í smáum stíl og oft- ast handahófskenndar, enda stóðu þær ekki lengi yfir á hverjum stað. Það var fyrst í Frakklandi að klakreksturinn komst á fast- an grundvöll með stofnun klakstöðvarinnar í Huningue, nálægt Basel. Tók hún til starfa í ágúst 1852. Franska stjórnin lét reisa klakstöðina í Huningue og bar allan kostnaðinn af rekstri hennar. Framan af var hrognum klakið í klakhúsinu í 2—3 vikur og þau síðan send út til manna ókeypis. Móttakendur hrogn- anna komu þeim síðan fyrir í ám og vötn- um. Það var ekki fyrr en 1859 að farið var að reyna að halda kviðpokaseiðum til að sleppa, en það þótti dýrt að hafa mikið af slíkum seiðum í stöðinni í einu. Klakstöðin var stækkuð mjög þegar á fyrstu starfsárum hennar, og má glöggt sjá, að myndarlega var að verið, á því, að árið 1861 komu 19,5 milljónir hrogna í klakstöðina úr 7 mismun- andi tegundum vatnafiska frá Frakklandi og nágrannalöndunum. 16,2 milljónir hrogna voru send frá stöðinni að klaktím- anum loknum á um 240 staði í Frakklandi og 11 löndum öðrum. Klakrekstur Huningue-stöðvarinnar vakti stórkostlega athygli í Evrópu og Ameríku, og á næstu árum reis upp fjöldi klakstöðva í mörgum löndum. Víða veittu stjórnarvöld ríflega styrki til klakstarfsemi, eða tóku jafnvel forustuna í klakmálunum. Gekk svo fram næstu áratugi, að alltaf fjölgaði stöðvunum og framleiðsla hrogna, og þó einkum kviðpokaseiða, jókst og þá hvað mest vestan hafs. Á árunum 1880—1900 var t. d. sleppt að meðaltali 128 milljónum kvið- pokaseiða vatnafiska á ári í Kanada, og mest 300 milljónum seiða á einu ári á nefndu tímabili. Á fyrstu þremur áratugum þessarar aldar jókst seiðaframleiðslan enn. 1915 var t. d. sleppt 570 milljónum kviðpoka- seiða á vesturströnd Bandaríkjanna og Kanada eingöngu. Eins og gefur að skilja, hefur allur klak- reksturinn kostað geysilegar fjárfúlgur, svo að húsklakið (klakhúsklakið) hlaut að hafa einhverja kosti fram yfir náttúruklakið í augum manna. Og hverjir voru svo þessir miklu kostir húsklaksins? Álitið var, að frjóvgun hrogna í náttúrunni væri mjög ábótavant, þar sem aðeins fáein hrogn af hverju hundraði frjóvguðust. Hinsvegar frjóvguðust nær öll hrogn, sem strokin voru til klaks, með þurru frjóvgunar-aðferðinni. Á þessu virtist því stórkostlegur munur. Þá var klakinu talið það til ágætis, að hrognin og kviðpokaseiðin í klakstöðvunum væru varin fyrir hættum, sem hrognum í náttúr- unni stafaði af óvinum, ísruðningum, þurrk- um, flóðum og frosti. Kostir húsklaksins og kviðpokaseiðahalds virtust miklir og var því ekki að furða, þó að klakið næði verulegri útbreiðslu víða um lönd. Þrátt fyrir hina miklu kosti, sem klakið var talið hafa, voru margir, sem báru brigð- ur á, að það væri eins megnugt og helztu stuðningsmenn þess héldu fram. í kringum 1880 var mikil gagnrýnisalda á klakið, því að þá vgr víða komin veruleg reynsla á klak- rekstur. Rekstur klakstöðvanna gekk mis- jafnlega og margar voru lagðar niður eftir stuttan tíma vegna margskonar erfiðleika í rekstrinum, og aðrar vegna þess, að árane-

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.