Freyr

Årgang

Freyr - 01.05.1953, Side 23

Freyr - 01.05.1953, Side 23
FRE YR 171 það. Hagnaðurinn af að setja sleppiseiði út i ár og vötn er því auðsœr þar, sem fœða er á annað borð nægjanleg til að taka á móti fleiri seiðum en fyrirfinnast í náttúrunni. Það er reyndar ekki svo að skilja, að engin afföll verði á sleppiseiðunum meðan þau eru í eldinu, en þau eru miklu minni heldur en á seiðunum í náttúrunni. Til skýringar þessu atriði má nefna, að rannsókn í Cultus- vatni sýndi fram á, að 65,4% af seiðum fór- ust eitt árið á fyrstu 2 i/2 mánuðunum, sem þau voru í vatninu. Nokkrir fiskifræðingar hafa birt töflur um gildi laxaseiða af ýms- um stærðum. Ein slík tafla er birt í gögnum um Cultusvatnsrannsóknirnar, og er þar sýnt fram á, að ef ætlunin er að fá 100 gönguseiði (þ. e. seiði á göngu til sjávar), þarf að setja út 914 kviðpokaseiði, og er gengið út frá, að seiðin séu 11,5 mánuði í vatninu. Ef seiðum er sleppt eftir 2(4 mán- aða eldi, þarf ekki að láta út nema 405 sleppiseiði til að fá 100 gönguseiði og sama hátt 242 eftir 5i/2 mánuð, 173 eftir 8V2 mán- uð og 145 eftir 10i/2 mánuð. Annað dæmi skal nefnt frá Svíþjóð. Þar er gengið út frá að eitt gönguseiði af laxi komist upp af hverjum 40 kviðpokaseiðum og er það mun minna heldur en í Cultusvatni, enda er það skiljanlegt, því laxinn í Cultusvatni er eitt ár í fersku vatni áður en hann gengur til sjávar, á móti 2 eða 3 árum í Svíþjóð. Eins og áður getur deyr mikill fjöldi seið- anna í sjónum og koma jafnaðarlega aðeins um 2% af gönguseiðunum fram sem full- orðnir laxar í veiðunum, eins og vitað er frá merkingum á gönguseiðum í mörgum lönd- um í Evrópu. Hér á landi hafa slíkar göngu- seiðamerkingar farið fram í Úlfarsá og hafa komið 8,5% fram í veiðunum eitt árið og annað árið 1,8%. í fyrrnefndu tilfelli kom alveg óvenjulega mikið fram af gönguseið- unum, sem fullorðinn lax, og telst það vafa- laust til undantekninga. Vegna hins mikla dauða á laxi eftir að hann kemur í sjó sem gönguseiði og þar til hann gengur aftur í árnar sem fullorðinn lax, er það Ijóst, að verð sleppiseiða verður að vera neðan við visst hámark, ef það á að borga sig að nota þau. Þetta atriði veld- ur því, að kostnaði við framleiðslu sleppi- seiða verður að vera stillt í hóf, því að ann- ars á framleiðslan ekki rétt á sér. Eins og kemur fram hér á undan, er notk- un sleppiseiða til fiskiræktar ýmsum tak- mörkum háð og er nauðsynlegt að afla ná- kvæmrar vitneskju um þær til þess að sleppiseiði, sem framleidd kunna að verða í framtíðinni, komi að sem beztum notum. Það þarf því að skapa aðstöðu til að gera tilraunir með eldi sleppiseiða og fylgjast með, hvernig þeim reiðir af í náttúrunni. Það mun áreiðanlega borga sig að gefa þessu máli gaum, þegar frá upphafi, til þess að koma í veg fyrir, að fé verði í framtíð- inni sóað að nauðsynjalausu í fánýtar að- gerðir. Það er vitað, að laxasleppiseiði koma að góðu gagni, ef þau eru sett út í ár undir sömu kringumstæðum og heppilegt er að sleppa kviðpokaseiðum, sem sé, á staði, þar sem lax er ekki fyrir, þar sem laxastofnarn- ir hafa rýrnað óeðlilega mikið eða þar sem hrygningarskilyrði hafa verið eyðilögð. Að sjálfsögðu kemur fyrr fram árangur, ef sett eru út sleppiseiði en kviðpokaseiði, því að þau fyrrnefndu eru oftast skemur í fersku vatni. Þá þarf einnig, sem fyrr var nefnt,

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.