Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.05.1953, Qupperneq 24

Freyr - 01.05.1953, Qupperneq 24
172 FRE YR færri sleppiseiði en kviðpokaseiði, og stend- ur hlutfallið þar á milli í sambandi við stærð sleppiseiðanna, þegar þau eru sett út. Þá ætti það að vera hagkvæm notkun á sleppiseiðum, að setja þau út í árnar í byrj- un göngutíma, þegar þau hafa verið alin upp í stærð gönguseiða. Við það ávinnst, að þau nota lítið af þeirri fæðu, sem í ánum er, og geta þær því framleitt þann laxa- fjölda, sem fóðurmagn þeirra leyfir, og sleppiseiðin verða þannig næstum hrein viðbót við eðlilega seiðaframleiðslu ánna. í þessu sambandi skal greint frá merki- legri tilraun með sleppiseiði, sem reyna mætti við eldistöðvar hér á landi, sem skil- yrði hefði til þess. Tilraun þessi var gerð við tilraunaeldistöð fiskifræðideildar Was- hingtonháskóla í Seattle í Bandaríkjunum undir stjórn prófessors L. R. Donaldson nú fyrir skemmstu og var á þá leið, að sleppi- seiðum af göngustærð var opnuð leið úr eldistjörnum beint út í stöðuvatn á göngu- tímanum. Laxasleppiseiðin gengu um stöðu- vatnið og afrennsli þess til sjávar og skiluðu sér svo aftur í eldistjarnirnar sem fullorðn- ir laxar. Kostirnir við að fá laxinn upp í eldistjarnirnar eru þeir, að eldisstöðinni eru spöruð útgjöld vegna hinna kostnaðarsömu öflunar stofnfiskjar í ánum á haustin, og að meira öryggi fæst í útvegun stofnfiskjar frá því sem nú er, en það kemur eigi ósjald- an fyrir að enginn stofnlax fáist, þótt til þess sé reynt. Hér að framan hefir verið gerð grein fyrir hinu mjög takmarkaða gildi þess sem fiski- ræktaraðgerðar, að sleppa kviðpokaseiðum, og rætt um yfirburði sleppiseiða yfir kvið- pokaseiði. Það kemur einnig fram, að sleppiseiðin hafa nokkuð takmarkað gildi, og er þessvegna nauðsynlegt að komast að í hverju þær takmarkanir eru fólgnar. Þetta verður að telja óreynt hér á landi, og væri því æskilegt og raunar nauðsynlegt að hefja hið bráðasta nákvæmar tilraunir á þessu sviði, þótt í smáum stíl væri í fyrstu. Standa vonir til, að notkun sleppiseiða verði nota- drjúg leið til að auka veiðina í landinu í framtíðinni. Fóðurefni til fitunar Á hverju hausti er haldin tveggja daga ráðstefna í Kaupmannahöfn á vegum bú- fjárræktar-tilraunastofnunar ríkisins. Eru þar tilkynntar niðurstöður frá tilraunum þeim, sem gerðar voru næsta vetur á und- an, en mikið þykir við liggja að fá sem allra fyrst, þó ekki sé nema bráðabirga niður- stöður frá tilraunum þeim, sem gerðar eru, en bændur bíða þeirra með óþreyju. Á ráðstefnu þessari mæta ráðunautar og aðrir, sem áhuga hafa fyrir málefnunum. Á síðasta hausti var meðal annars greint frá tilraunum, sem gerðar hafa verið með fitunarefnin Thyron, Thyron-Syecial og Vevoron. Þessi efni, ásamt fleirum, hafa verið auglýst mjög síðustu árin og talin ágæt til notkunar þegar gripir eru fitaðir fyrir slátrun, sökum þess að þeir fitni mjög fljótt ef umræddum efnum er blandað í fóðrið. Á nefndri ráðstefnu varð allsnörp um- ræða um efni þessi og árangur af notkun þeirra. Efnin hafa verið prófuð á nokkrum stöðum undir ströngu eftirliti og samtímis á rannsóknarstofu. Töldu nokkrir af þeim, sem að tilraununum vinna, að ágætur ár- angur hafi fengizt við notkun nefndra efna, en aðrir, og þar á meðal prófessor Möll- gárd, telja að víst þyngist skepnurnar meira en annars þegar þær fá þessi efni, en þyngd- araukinn stafi af því að í vefi líkamans safnist vatn og það sé enginn vinningur að safna þar vatni. Tilraunir á tilraunastöðinni Trollesminde sýndu, að tilraunahópur kúa, sem fengu 100 grömm á kú daglega, í fimm vikur fyr- ir slátrun, þýngdist 78,3 kg, en kýr þær, sem ekki fengu Thyron, þyngdust aðeins 41,5 kg á sama tíma. Á tilraunastöðinni Favrholm þyngdust kýrnar, sem ekki fengu fitunar- efni, aðeins 6,2 kg á fimm vikum, en hinar, sem gefið var 50 g Thyron á dag, þyngdust um 45,4 kg. Tilraunir með fitun uxa sýndu svipaðan árangur. Þessi þyngdarauki er all álitlegur, séð frá sjónarhól kjötframleiðenda, þó því aðeins, að fitunarefnin séu ekki verðmeiri en þyngdaraukinn.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.