Freyr - 01.05.1953, Síða 28
176
FRE YR
EINAR EYFELLS, ráðunautur:
Ég ætla að tala hér nokkuð á víð og dreif
um traktora, varahlutabirgðir, innflutning,
nýjar gerðir og notkunartíma.
Fyrst vil ég þá fara nokkrum orðum
um varahlutabirgðir traktora. Á Búnaðar-
þingi í fyrra var samþykkt tillaga um að
fela stjórn Búnaðarfélags íslands að láta
fara fram athugun á varahlutabirgðum í
landbúnaðarvélar í landinu og hvernig ein-
stök vélaumboð stæðu sig í þessum efnum.
Samkvæmt þessu var leitað eftir umsögn-
um formanna ræktunarsambandanna um
afgreiðslu varahluta til beltavélanna og
verkfæra þeim tilheyrandi.
Allmargir svöruðu fyrirspurnunum, og
samkvæmt þeim upplýsingum kom fram,
eins og raunar vitað var, að töluverður mis-
brestur hefir verið undanfarin ár á útveg-
un og afgreiðslu varahluta hjá einstökum
vélaumboðum. Um hjólatraktorana og aðr-
ar landbúnaðarvélar og verkfæri er líka
sögu að segja.
Hins vegar hefir ástandið í varahluta-
málunum batnað mikið á s.l. ári og mun
það vera að þakka auknum skilningi inn-
flytjenda á nauðsyn varahlutabirgða, á-
samt aukinni reynslu og þekkingu á, hvað
helzt þurfi að panta, svo og hinum frjálsa
innflutningi.
Að fengnum þessum upplýsingum hefir
Búnaðarþing gert ályktun um málið, sem
ég ætla að leyfa mér að flytja hér.
landbúnaðarvélar
Útvarpserindi flutt á Bœndavikunni
í marz 1953.
Nokkuð stytt.
„Við athugun, sem gerð hefir verið
samkvæmt ályktun síðasta Búnaðar-
þings um innflutning á varahlutum í
landbúnaðarvélar, hefir komið í ljós, að
mjög mikil breyting hefir orðið til batn-
aðar í þessu efni og talsverðar birgðir
varahluta eru nú til í landinu í margar
vélategundir.
Búnaðarþing vill láta í ljós ánægju
sína með þessa breytingu.
Jafnframt beinir Búnaðarþingið því
til bænda, að þeir hlutist til um það við
kaupfélögin, að þau leitist við að hafa
jafnan til sölu nauðsynlegustu hluti í al-
gengustu vélategundirnar — um leið og
það varar bændur alvarlega við að kaupa
nýjar vélategundir, sem engir varahlut-
ir eru til í.“
Menn eru varaðir við að kaupa fleiri gerð-
ir og tegundir traktora, en fyrir eru í land-
inu.
Um þetta atriði er viðeigandi að segja
nokkur orð Tegundafjöldinn, sem inn hefir
verið fluttur er, eins og allir vita og oft
hefir verið rætt um, stórkostlegt vand-
ræðamál. í árslok 1951 voru í landinu 1564
hjólatraktorar af mörgum gerðum og teg-
undum og á síðastliðnu ári voru fluttir inn
501 stk. og bættust þá í hópinn sex nýjar
tegundir traktora.
Nánar tiltekið var innflutningurinn sem
hér segir: