Freyr

Volume

Freyr - 01.05.1953, Page 29

Freyr - 01.05.1953, Page 29
FRE YR 177 260 Ferguson 200 Farmall Cub 11 Fahr dieseltraktorar 10 Massey Harris Pony 8 Bautz dieseltaktorar 4 Allis Chalmers frá Englandi 2 Deutz dieseltraktorar 2 Fordson og eitt stk. af eftirtöldum gerðum: John Deere, Renault, Ota og Lanz dieseltraktor. Nýju traktorarnir, sem fluttir voru inn, eru fjórar tegundir af þýzkum dieseltrakt- orum, einn franskur Renault og einn enskur garðtraktor Ota. Við þessa traktora er ekkert það sérstakt fram yfir þær tegundir, sem fyrir voru í landinu, sem réttlætir komu þeirra í ís- lenzkan iandþúnað. Þýzku dieseltraktor- arnir eru dýrir og dieselvélar er hægt að fá í tegundir, sem fyrir eru í iandinu. eins og Ferguson og Fordson. Annars er það mín skoðun, að dieselt-raktorar, hiólavélar til heimílisnotkunar, séu ekki ennþá tímabær- ir í okkar iandbúnaði. Sannieikurinn er sá, að eins og stendur eru ótrúleaa margir af heimilistraktorum bænda fjárhagslegur baggi fyrir bá og staf- ar bað aðallega af atvinnuleysi traktor- anna. Traktor, sem ekki vinnur nema 2—3 bundruð kist. á ári verður tæpipga mat- vinnungur, ekki að núnnsta kost-i með því verði, sem nú er á sUk’’m tækjum; hann verður í hópi atvinnuleysingjanna og þurfaiinganna. Ef bessi atvinnuiausi eða atvinnulitli t-raktor er nú dieseltraktor sem er 8—15 þús. kr. dýrari en samsvarandi benzíntrakt- or. og barf bví til sín 13 hundruð til tvö bús- und oa fiögur hundruð kr. meira í vexti og afhnrganir af stofnkostnaðinum á ári, verð- ur hann h°im mun dýrari á framfæri. Hvað um brennsluolíuevðsluna munu einhveriir snvrja? Það er rétt. dieseltrakt- orinn brennir hráolíu, sem er mun ódvrari en benzínið og notar einnig minna magn af hráolíu, heldur en samsvarandi benzín- traktor. Með því verðlagi, sem nú er á benzína. og hráolíu. verður brennsluolíu- kostnaður dieseltraktorsins V3 hluti af benzínkostnaði benzíntraktorsins. Þetta er mikill hlutfallsmunur, en verður í reynd- inni lítill munur í krónum og aurum, vegna þess að við litla notkun, eins og hér tíðkazt, er reksturskostnaðurinn svo lítill hluti af heildarkostnaðinum við traktoreignina. Við skulum taka dæmi og segja, að meðal- bóndinn, sem líklega notar traktorinn 200 til 300 klst. á ári, noti um 800 lítra af benzíni og borgi fyrir það kr. 1.200,00. Samsvarandi dieselfraktorbóndi myndi þá eyða í hráohu kr. 400,00. Munurinn verð- ur kr. 800,00, sem dieseltraktorinn sparar í brennsluolíu, en eins og áður er sagt er hann ca. 1.300 til 2.400 kr. dýrari á fóðrun- um á ári, ef svo mætti að orði kveða, vegna hærri stofnkostnaðar. Samkvæmt þessum útreikningi, sem að vísu er grófur, en þó ekki fjarri sanni (ég miða við 6% vexti og afskrift á 10 árum), þarf notkun traktorsins að nema frá 500 t-il 900 klst. á ári minnst, til að hagkvæmt sé að f>afa í honum dieselvél. Það kann að vera, að á einstaka stórbýli sé traktornotkunin það mikil, að diesel- t-raktorinn borgi sig, en þau býlin eru ekki mörg í landinu. í ár er ennþá allt óákveðið með innflutning heimilis- traktora, en til greina hefir víst komið að flytja inn trakt- ora frá clearinglöndunum.Það yrðu þá nýjar gerðir, sem ekki hafa verið notaðar áður og vil ég vara ykk- ur bændur alvarlega við að hugsa til slíkra kaupa. Látið ykkur heldur vanta traktor í eitt ár og siáið til með innflutning gömlu gerðanna! í ár yrðu líklega hagkvæmustu kaupin, eins og var í fyrra, á Ferguson og Allis Chalmers frá Englandi, en af ástæð- um, sem öllum er kunnugt um, eru þau viðskipti útilokuð í bráð. í fyrra voru fluttir inn 200 stk. Farmall Cub traktorar, litlir, 9 hestafla. Miðað við hestaflafölu og notagildi voru og eru þessir traktorar allt of dýrir. í þeim kostar hest- aflið tæpar tvö þúsund krónur, en í ensku traktorunum rúmar þúsund krónur. Þessar vélar eru ákaflega liprar við heyvinnu og aðra létta vinnu en alveg ónýtar til jarð-

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.