Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.05.1953, Qupperneq 30

Freyr - 01.05.1953, Qupperneq 30
178 FRE YR vinnslu, og íslenzki bóndinn getur ekki haft næga vinnu fyrir traktorinn sinn,nema hann noti hann í jarövinnslu. í landinu eru nú yfir tvö þúsund hjóla- traktorar, en um sex þúsund býli, þ. e. að meðaltali einn traktor á hver þrjú býli. Samanlögð orka og afkastageta allra þessara traktora, ef þeir væru full nýttir, er feiknamikil og gæti vafalaust fullnægt þörfum allrar bændastéttarinnar marg- faldlega, að minsta kosti í bili, meðan býlin eru að stækka, ræktunin að aukazt, svo og gripafjöldi og afurðaframleiðslan. í þessu sambandi er eðlilegt að vitna í ræðu landbúnaðarráðherra á sumardaginn fyrsta í fyrra. Honum fórust svo orð: „Nú er verið að kaupa til landsins 400 heimilisdráttarvélar (sem reyndar urðu 500) væntanlega með tilheyrandi tækj- um. Til viðbótar við þær vélar, sem við nú ráðum yfir, skapar þetta mikla mögu- leika, en það er ekki vandalaust með þetta að fara. Það getur mikið farið í súginn, ef ekki er gætilega með farið. Hver slík vél er eins og hópur manna. Hún vinnur á við marga, en iðjuleysi hennar, fötlun eða klaufaleg notkun, er á við iðjuleysi, fötlun eða óverklægni margra manna. Þjóðinni má því sízt nú gleymazt það, — í eldmóði og sóknarhug framfara og véltækni — að vélin, sem miklu afkastar, margfaldar og hættuna á sóun fjármuna. Vélin veitir því ekki bætta lífsafkomu, nema eðliskostir mannsins tryggi rétta notkun hennar.“ Þannig fórust landbúnaðarráðherra orð. í þessu erindi mínu hefi ég aðeins komið inn á þá sóun fjármuna, sem á sér stað vegna iðjuleysis traktoranna. Fötlun vél- anna, eða bilanir og meðferð þeirra, sem í mörgum tilfellum er náið samhengi á milli, hefir oft verið um rætt og vinnst ekki tími til að koma inn á það hér. Þó langar mig að mega minna ykkur bændur á, að ekki er seinna vænna en nú að standsetja vélar ykkar og verkfæri fyrir vorið. Ef þið ekki hafið verkfærageymslu þá takið verkfærin inn í einhverja hlöðuna, sem er farið að rýmast í og hreinsið upp, látið gera við eða pantið varastykki, sem kunna að vanta og standsetjið þánnig allar ykkar vélar og verkfæri. Hér hefi ég ekkert minnst á hestinn í sambandi við dráttar- aflsþörf íslenzkra bænda. Gunn- ar Bjarnason gerði því máli skil í erindi sínu í útvarpinu á bændavikunni. Vissulega á að nota hestana á þeim stöð- um og við þau störf, sem þeim henta, og þeir eru hagkvæmir við. Hesturinn á vafa- laust langa og þýðingarmikla framtíð í ýmsum landshlutum hér á landi og ber að nota hann eingöngu á sumum býlum og samhliða traktorunum á öðrum. Það er samt skoðun mín, að bændur vilji ekki, og þeir megi ekki sleppa þeim þægind- um og afkastamöguleikum, sem notkun heimilistraktoranna hefir í för með sér, ef kröfum þjóðarinnar um lífsþægindi og af- komu á að vera hægt að fullnægja í fram- tíðinni. Afköst og framleiðsla einstakra bænda og landbúnaðarins í heild verður að stór- aukazt, það er aðeins hægt að gera með aukinni vélanotkun, og er framkvæman- legt án nokkurrar verulegrar aukningar á stofnkostnaði við véla- og verkfærakaup landsmanna — aðeins betri nýtingu. Eftirskrift. Síðan framanskráð erindi Einars Eyfells var flutt, en um það bil, sem þetta hefti FREYs var í prentun, ákváðu gjaldeyris- yfirvöldin að til landsins mætti flytja á þessu ári 100 dráttarvélar. Dráttarvélar eru á frílista svo sem kunn- ugt er, en þar eð takmarkaður gjaldeyrir er til umráða, hefir hámarkstalan verið sett sem þegar er greint. En það kemur spánskt fyrir sjónir, að innflutningur er frjáls en þó ákveða ein- hverjir aðilar (bankinn eða hver?) að 70 af þessum 100 vélum skuli vera Ferguson og Farmall en 30 af öðrum tegundum. Ekki er vitað til þess að kannað hafi verið hve margir bændur hafa beðið um hverja teg- und dráttarvéla þeirra, sem völ hefir verið á eða hægt er að kaupa hér á landi. Eða er hér verið að stofna til nýrra valdboða um hvað kaupa skuli?

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.