Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.05.1953, Qupperneq 31

Freyr - 01.05.1953, Qupperneq 31
FRE YR 179 Húsmæðra- þáttur FÁLKI Það eru tilmæli Freys, að húsmæðurnar í sveitum landsins láti til sín heyra við og við svo að halda ntegi uppi húsmæðraþætti í Frey fyrir þeirra tilstilli. Þær hugsanir og þau orð, sem runnin eru beint frá hug eða hjarta húsmæðranna sjálfra, eiga eflaust breiðari og hreinni hljómgrunn á meðal lesenda en það, sem einhver og einhver kann af mörkum að láta til þessa þáttar. — Hérmeð f}dgir þáttur frá konu í sveit. Það er eins- konar minni horfins vinar. Mundu ekki minni um skepnur eða hluti vera mörg til í sveitum og frásagnarverð? Munu eigi atvik og ástæður ým- issar þess virði, að getið sé á prenti? Það er að minnsta kosti svo margt, sem færa þarf til betri vegar á vettvangi húsmóðurinnar í sveitinni, að þar er af nógu að taka. Og orðin eru til alls fyrst. — Húsmæður! Sendið Frey línu í húsmæðraþáttinn. Sá, sem hræðist fjallið og einlægt aftur snýr, veit aldrei meðan lifir hvað hinumegin býr. Mér datt þessi vísa í hug þegar ég afréð að skrifa Frey eftirfarandi línur. Og mér datt í hug að biðja Frey að birta myndina af Fálka og þessi fátæklegu orð, ef þau geta talizt birtingarhæf. Margrét og Fdlki. Það er þungbúinn októberdagur. Dálítill snjór er kominn og líklega ætlar nú að snjóa meir. Ég stend við gluggann og svip- ast um. Jú, þarna fram úr þokunni kemur maður með tvo til reiðar. Mér er dálítið órótt innanbrjósts, en það er ekki fjúkið, sem því veldur, þó að það sé að aukazt. At- hygli mín beinist að hestinum, sem nú er verið að teyma í hlað. Þá er bezt að ganga út til að heilsa-----og kveðja. Kæri gamli vinur — Fálki minn! Stund- um hefir það verið mér meiri gleði að sjá þig teymdan í hlað en nú. Sem betur fer skilur þú ekki hinar döpru hugsanir mín- ar meðan ég strýk reistan makkann þinn. Þú horfir aðeins fögrum augum þínum á eitthvað langt — langt í burtu. En fram í huga mér koma nú margar myndir frá liðnum árum. Fyrst, er ég sá þíg fjögurra vetra gamlan, þá varð ég hrifin af hinum fagurskapaða líkama þínum, leiftrinu í brúnu augunum þínum, léttum og snögg- um hreyfingum, er gáfu fyrirheit um það, er síðar rættist, er ég sat á baki þínu, sefj- uð af hrynjandanum í hófaslætti þínum, þegar þú þuldir götuna á tilþrifamiklu brokktölti. Svo eru aðrar myndir þegar þú þóttir erf- iður í notkun, sérstaklega undir heybandi. Þá hafðir þú það til að setja upp aftur- endann og henda þessum óþarfa böggum af baki þínu — — og stundum varstu mjög styggur við fullorðna. En börnin — — við þau varstu alltaf gæfur og ljúfur, eins þó að þau sætu á baki þínu. Margt er það fleira en hér er talið, sem í hug mér kemur og ég mun lengi minnast frá tilverustundum þínum. En bezt er að láta staðar numið. Vertu að lokum sæll, vinur minn! Hafðu þökk fyrir allt. Á morgun verður minning þín ein. Margrét.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.