Freyr

Årgang

Freyr - 01.05.1953, Side 32

Freyr - 01.05.1953, Side 32
180 FRE YR Hænsnakrókur í Vasahandbók bænda 1952 er minnzt á sitt af hverju viðvíkjandi hænsnum og þar á meðal er sagt, að enginn skyldi án hænsnakróks vera. Þetta, um hænsnakrókinn, hefir gefið nokkrum einstaklingum tilefni til að spyrja um hann nánar, en fyrir þorra íslendinga er hann að mestu óþekkt áhald. Einmitt af því að hænsnakrókur er lítt þekktur hlutur hér á landi, er ástæða tii að greina frekar frá hvað hér er um að ræða. Hugsið ykkur að hvorki væri til hey- nál (heykrókur) eða heyhnífur, svo að reyta yrði allt hey úr stabbanum með fingrunum. Það er alveg hliðstætt því að ná hænu með berum höndum. Hcensnakrókurinn er einmitt áhald til þess að ná hænunum með, þegar þær skal flytja, þeim skal slátra, eða til hvers ann- ars sem þörf krefur að þær séu handsam- aðar — og þá ekki sízt til þess að skoða hæfileika þeirra sem varphæna. Hænsna- krókur er eitt sjálfsagðasta áhaldið í hænsnahúsinu. Hann er gerður úr sverum stálvír. í hann þarf vírbút, sem er um 160 cm að lengd. Neðri endinn er beygður eins og myndin sýnir, en á efri enda er hann einnig beygður og þar myndað handfang, sem treyst er með því að vefja endanum um vírteininn. Allur er krókurinn hæfilega langur þegar hann er um 120 cm að lengd. Þegar taka skal fugl með krók er haldið á honum í hægri hendi og með hægð geng- ið inn til hænsnanna (aldrei skyldi ganga ógætilega um hænsnahús), krókurinn hreyfður nærri gólfi og snögglega brugðið á fót þeirrar hænu, sem handsama skal. Krókurinn þarf að vera það sambeygður, að hann stöðvist ofan við tær fuglsins og er þá auðvelt að ná fuglinum þegar þetta handhæga áhald er notað. Að sjálfsögðu ber að gæta þess, að taka fuglana ekki með miklu valdi, þannig að afli sé beitt til að draga þá til sín með króknum, heldur skal fara að öllu með hægð og gætni, eins eftir að krókurinn er kominn um fótinn og þegar verið er að smeygja honum fram fyrir löpp- ina og um hana. ★ Það er sitt af hverju, sem til þæginda getur verið í hverju starfi og sérstök tæki eru jafnan hentust og eðlilegust til hvers starfs. í hænsnahúsinu er til dæmis algengt að sjá opin stór vatnstrog sem hænurnar sulla í og dreifa rakanum um allt gólfið. í litlum hænsnahúsum ætti alltaf að nota vatnsturn sem brynningarílát. Þá er algengt að sjá opin fóðurtrog, sem hænurnar sópa fóðri úr og vaða í. Til þess að fyrirbyggja slíka sóun fóðurs, er nauðsynlegt að gera viðeigandi gagnráðstafanir. Yfir trogi endi- löngu sé t. d. prik, sem leikur laust í báða enda og snýst ef hænan vill standa á því, en prikið hindrar að hænurnar vaði í troginu. Ymiss þarfaþing þurfa að vera á hverju hænsnabúi og er hænsnakrókurinn eitt á meðal þeirra. Hann er gerður úr sver- um stálvír með handfang á öðrum enda en krók á hinum. Krókurinn þarf að vera hæfilega langur, ekki oddhvass og bilið í króknum hæfilegt til að grípa um legg hænunnar, en ekki svo vítt, að tærnar sleppi í gegn. Nota skal krókinn með gætni og ekki með afli eða gusti.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.