Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1953, Síða 35

Freyr - 01.05.1953, Síða 35
FRE YR 183 framúr. Heyfengur því sæmilegur að magni og gæðum er svo vel nýttist. Kartöflur munu víða hafa smáar verið — eða lélegur vöxtur, þótt frá því væri undantekningar, og má telja að langt væri undir meðallagi; mun frostnótt í ágúst þar hafa mestu vald- ið. Hinn nýi sauðfjárstofn, er við fengum hér sunnan heiðar í fyrra, sýnist ætla vel að gefast. Lömb voru í haust sérlega væn, víða. Mun það eigi einsdæmi, að dilkar, einstakl- ingar, hafi lagt sig með 20 kg kjöt, og þar yfir raunar, — og þótti slíkt afbragð hjá hinu fyrra fé, þó fullorðnar ær væri. Nokk- ur nýbreytni var hér í haust á skipan rétta og gangna; og eru nú þrjár lögréttir í stað einnar áður, og voru hinar þá skilaréttir. Endurbyggð var ein þessara rétta — Reyn- isrétt við Akrafjall — nú flutt að Gröf í Skilmannahreppi og þar byggð úr timbri. Skurðgrafa hefir unnið í Leirár- og Mela- sveit í sumar, og mun ætlað að grafa sú vinni í Skilmannahreppi næsta sumar. Annars má segja, að mjög víða sé þessa verkfæris — skurðgröfunnar — mjög þörf hér, því þó nokkrir séu, er nóg land hafa, sem þegar er ræst — og raunar til meira af ræstu landi en ræktað verður á næstunni, — þá er svo um all marga, að land vantar til nýræktar sökum þess að framræslu er vant. Þrátt fyrir þetta mun eigi ræktun hafa orðið minni á næstliðnu sumri en oft áður. Menn eru hér eigi óvíða nokkuð farnir að hjálpa sér við jarðvinnslu, þeir, sem jeppa eiga eða dráttarvél, og er það auðvit- að mest við herfingu á landi, sem hálfunnið er, en við erfiðari störf þarf aflmeiri vélar. Að byggingum hefir nokkuð verið unnið í héraðinu, og er það af öllum tegundum húsa þeirra, er í sveit er þörf. íbúðarhús og fjós er til að byggð hafi verið. Telja má, að fénaður hafi kvillalítill ver- ið í vetur, og má máske þakka þar að nokkru hinu einstæða og ágæta tíðarfari, sem svo gott hefir verið, að jafnvel elztu menn muna eigi slíkt; varla sézt snjór og frost engin eða mjög væg, úrkomulaust mjög og svo lygnt dag eftir dag — stundum — að varla hefir blaktað hár á höfði að segja má og enn má telja að tíðarfar sé hér hið sama nú í miðjum janúar. Austan af Síðu er skrifað í síðustu vetrar- viku: Með einmánaðarkomu brá hér til mikilla kulda og ótíðar, sem haldist hefir síðan. Er nú með öllu horfinn gróður sá, er votta sást fyrir í góulokin. Allur fénaður er nú á gjöf og eyðist mikið fóður, bæði hey og mjöl, því að nóg er til af hvorutveggja, enda vita nú allir hve afaráríðandi það er að gera vel við ærnar á þessum árstíma. Bæði stendur það nú í handbókinni og svo hafa bændur þá reynslu — og fara eftir henni, — að ekkert fóður borgar sig betur en það, sem gefið er síðast á gjafatímanum og hafa hann þaö langan, að hann nái fram í nægan sauð- gróður. — Þrátt fyrir þennan snjólétta blíðuvetur, sem nú er að kveðja, kann því svo að fara, að talsvert eyðist af heyjum í fénaðinn, ef allir fóðra vel og skynsam- lega, gefa nógu lengi. í fyrra drápust nokkrar kindur hér eystra, sérstaklega á einum bæ. Þótt aldrei muni hafa sannazt af hverju þessi fjár- dauði stafaði, var hann settur í samband við inngjöf ormalyfs (Dungals). Hafa nú allmargir horfið frá notkun þess og í staðinn farið að gefa phentothiazin- duftið. Þykir það ekki eins vandmeðfarið þar sem ekki þarf að svelta féð neitt fyrir inngjöfina og gefa má það á hvaða tíma sem er. Má því búast við að það verði al- mennt tekið upp, gefi það jafngóða raun og lyfið, sem hingað til hefir verið notað. Tvær nýjar rafstöðvar hafa verið teknar í notkun hér í nágrenninu nú í vetur. Eru þær báðar frekar litlar, en vonir standa til að þær komi til með að nægja smáheim- ilum til brýnustu nota a. m. k. þegar sæmi- lega viðrar. Með þessum stöðvum og þeim virkjunum, sem nú eru í undirbúningi má heita að næstum hver bær hér í sveitun- um austan Eldhrauns hafi rafmagn frá vatnsaflsstöðvum. Er hér með því marki náð, sem nú er stefnt að í öllum sveitum landsins. FREYR óskar öllum lesendum sínum gleðilegs og góðs sumars.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.