Freyr - 01.05.1953, Side 36
184
FRE YR
Vatnsgler.
\ atnsgler — hvað er nú það? Það er efni, sem um
langa stund hefir verið notað erlendis til ýmissa þarfa
og hér á landi nokkuð, en minna en skyldi, fyrst og
fremst vegna þess, að á þvt hefir naumast verið völ
nema við okurverði.
Nú er hafin framleiðsla á efni þesstt hér innan lands
og er það auglýst á öðrum stað í þessu hefti Freys.
Vatnsgter er blandað með vatni í misjöfnum mæli
eftir því til hvers nota skal. Til eggjageymslu er
blandað 9 hlutum vatns móti einum af vatnsgleri og
eggtn látin liggja í upplaúsn þessari.
Þegar vatnsgler er notaö í steypu er það sett í steypu-
vatnið og flýtir þá fyrir hörðnun steypunnar og gerir
hana þéttari.
T'il herzln steinsteyptra gólfa er upplausnin gerð af
S eða 4 hlutum vatns móti einum af vatnsgleri.
Eitt mikilvægasta notkunarsvið vatnsglers í þágu
bænda getur orðið í viðhaldi á votheyshlöðum. Þar er
þynnt með 4 hlutum vatns móti einum af vatnsgleri,
þess gætl að véggirnir dragi sem mest í sig af upp-
lausninná þcgar borið er á þá með kúst, og árlega
skal smyrja veggi votheyshlöðunnar innan með þessu
efni til þess að tryggja éndingu hennar — verja hana
gcgn áhrifum þeim, sem sýrurnar annars vinna til
meins.
Vatnsgler fæst í dósum, I eða 10 kg, og í tunnum, er
innihalda 250 kg af vatnsgleri.
Um gulrófur.
I 6.-7. blaði Freys, hls. 104, stendur, að þegar róf-
ur eru ræktaðar í sandjarðvegi megi e.t.v. auka kalí-
skamnuinn um 200 kg. Þar skyldi standa, að í santl-
jarðvegi mætti auka saltpétursskammtinn um 200 kg.
Annað er óhreytt.
Bóndi á Árskógsströnd skrifar:
Samanbtirður á búskap og smáútgerð er hér tilloiu-
lega auðveldur og svnir Ijóslega, að auðveldara er að
stofna heimili við sjóinn og að „trillu'-bátaútgerðin
krefst minna fjármagns í upphafi, en búskapurinn.
Fólksstraumurinn liggur því að sjónum. Þó eru hér
sæmilegir landkostir og góðar samgöngur, ef ekki
hamla snjcafög, og nokkrar jarðir svo stórar, að þeim
mætti skipta-í margbýli, ef ræktun væri aukin. Margt
ungt félk hefir áluiga fyrir búskap og spyr eftir jarð-
næði, en forðast stofnun nýbýla sökum kostnaðar. Er
hér mikið verk að vinna að auðvelda ungu fólki stofn-
un heimila í sveit.
Sr. Eiríkur Brynjólfsson,
fyrrverándi prestur á Utskálum, er nú sem kunnugt
er prestur vestur í \'ancouver, í Ameríku. Hann hefir
nýskeð sent I-'REY kveðju sfna og segir þar meðal ann-
ars: „Ég hafði gaman af landbúnaði þegar ég bjó á
Útskálum. Hér er víða afburða góður búskapur og
skemmtilegt að skoða búgarðana, sem eru margir til
fyrirmyndar. Eg bið FREY að bera kveðju mína og
innilegar óskir urn gæfu og gengi til handa hinni is-
lenzku bændastétt. Gleðilegt sumarl“
Með þakklæti fyrir hinar góðu óskir sr. Eiríks flyt-
ur Freyr þær hérmeð áleiðis til réttra aðila.
En sr. Eiríkur hafði fleira að segja. Hann sendi
Frey einnig úrklippur úr amerískum blöðum. X þeirn
úrklippum stendur m. a.:
Metkýr.
Topsy liessie Flood er 8 ára gömul. Hún er metkýr.
A 365 dögum gaf hún 30.150 pund mjólkur með
3,77% fitu, og fitumagnið var þannig 1160. pund yfir
árið. Fyrstu 100 daga mjólkurskeiðsins var nyt henn-
ar að meðaltali 100 pund á dag.
Lulu Island er afburðagóð kvíga að fyrsta kálfi.
Hún er af Jersey kyni. A fyrsta mjólkurtímabili var
hún mjöltuð þrisvar á dag og var samanlögð nyt
hennar 14.706 pund um árið og var í því mjólkur-
magni 900 pund af mjörfitu.
Freyr-
BÚNAÐARBLAÐ
Útgefendur: Búnaðarfélag íslands og Stéttarsamband bænda. — Útgáfunefnd: Einar
Olafsson, Pálmi Einarsson, Steingr. Steinþórsson. — Ritsljóri: Gísli Kristjánsson. —
Ritstjórn, afgreiðsla og innheimta: Lækjarg. 14 B, Revkjavik. Pósth. 1023. Sími 1957.
Áskriftarverð FREYS er kr. 50,00 argangurinn. — Prentsmiðjan Edda hi.