Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1949, Síða 38

Símablaðið - 01.01.1949, Síða 38
6 SIMABLAÐIÐ ÁRAMÓTAH UG L£ IÐIiVG AR Þegar líÖur að áramótum, þá högum vi'Ö okkur líkt og ferðalangurinn, sem stendur á sjónarhólnum og horfir yfir farinn veg, viÖ rifjum upp viÖburðarríkustu atburði ársins, og höfum þá tækifæri til að dæma hvort gerðið okkar á árinu hafa verið giftusam- legar, og færum okkur reynsluna í nyt siðar meir. Það er vissulega ekki ofmælt, þegar við segjum að líðandi ár hafi verið viðburða- ríkt fyrir félag okkar. Enn einu sinni höfum við með samtakamætti, rist minningarverð- an kafla í félagssöguna. Við sýndum áþreif- anlega að við erum fær um að standa vörð um hagsmunamál okkar, og sýna félags- og stéttarlegan styrkleika. Þegar launalögin öðluðust gildi árið 1945. var mjög gengið á hluta símamannastéttar- innar, laun hennar lækkuðu yfirleitt, og sið- an hefur verið beðið í þeirri veiku von að lögin yrðu samræmd og endurskoðuð, en þær vonir hafa algjörlega brugðist. Við setningu dýrtíðarlaganna í lok ársins 1947. var öllum ljóst að erfiðir tímar væru fram- undan fyrir þjóðina, þess vegna var af rík- isstjórn og Alþingi óskað að allir sýndu nú þegnskap, svo mögulegt væri að koma xjár- hag þjóðarinnar á heilbrigðan grundvöll, og þá mikið rætt og ritað um hinar raunhæfu aðgerðir, sem nú skyldu koma. Símamanna- stéttin eins og ýmsar aðrar stéttir taldi þetta viðhorf eðlilegt, þó að þvi tilskyldu að tryggt væri að allir þegnar þjóðfélagsins liæru byrðar af þessum dýrtíðarráðstöíun- um, og þá fyrst og fremst þeir, sem gjald- þolið hefðu mest. Við fengum fljótt að finna fyrir hinum raunhæfu aðgerðum, vísi- talan var lögbundin við 300 stig. Nú fór að reyna á þolrifin, því dýrtíðin óx jafnt og þétt, og erfiðara var að láta launin hrökkva, og það er kunnara en frá þurfi að segja, og þeirri staðreynd verður ekki hnekkt að skipting byrðanna vegna dýrtíðarinnar á þegnunum var alls ekki sanngjörn, þvert á móti er nú vitað að opinberir starfsmerm voru sá hópur sem kjaraskerðing laganna bitnaði þyngst á, og þessar fyrirhuguðu raunhæfu aðgerðir ríkisstjórnarinnar urðu því ekki annað en blekking, en ástæðan fyr- ir þvi að kjaraskerðingin var meiri hjá okk- ur en öðrum launþegum, var sú að aðrar stéttir, gátu vegna vaxandi dýrtíðar í land- inu hækkað grunnkaup sitt, af þvi að þær höfðu verkfallsréttinn og beittu honum, þannig að þær launastéttir sem við vorutn miðaðir við árið 1943 höfðu hækkað grunn- laun sín árið 1948 um 36%, en okkar grunn- laun höfðu haldist óbreytt. Þá hefst sókn opinberra starfsmanna. Þeir boða til almenns fundar í Listamanna- skálanum og buðu á þann fund ríkisstjórn og borgarstjórn og öðrum til að kynna þeim málið, en þetta boð var ekki þegið. Skömmu síðar var boðað til aukaþings B.S.R.B., og mikil ólga ríkti þar vegna framkomu ríkis- stjórnar og Alþingis, sem daufheyrðust við sanngjörnum kröfum okkar. A þessu banda- lagsþingi komu frarn háværar raddir að ástæða væri til að mótmæla kröftuglega þessu ábyrgðarleysi stjórnarvaldanna i þessu máli, með því að efna til almennra uppsagna eða vinnustöðvunar, en þá virtist Alþingi vakna og á skyndifundi um hánótt, er samþykkt að heimilia ríkisstjórninnni. að veita 4 milljónir kr. á árinu 1949 til launa- uppbóta, sem samsvaraði ca. 8% launaupp- bót á mánuði, en krafa okkar var 36%, svo ekki var réttlætið í hávegum haft í það skiptið, og þar við bættust orð fjármálaráð- herra að þessi heimild yrði ekki notuð fyr en seint á árinu, ef hún yrði þá notuð. Þegar símamannastéttin frétti um þessa lausn málsins, þá taldi hún hana algjörlega óviðunandi, með tillliti til þess að launin hrukku ekki fyrir brýnustu lífsnauðsynjum og dýrtíðin fór ört vaxandi, sparifé var þrotið og skuldasöfnun hafin. Á félags- fundi var samþykkt að efna til allsherjar- atkvæðagreiðslu um málið, hún sýndi ná- kvæman vilja félagsmanna, en hann var að efnt yrði til vinnustöðvunar 1. júlí ef ckki fengist viðunandi lausn fyrir þann tima, þetta var tilkynnt póst- og símamálastjórn 26. júní, ennfremur að skipuð hefði verið sérstök samninganefnd, en i henni áttu sæti: Jörundur Oddsson, Steingrímur Pálsson, Helga Finnbogadóttir, Valdimar Einarsson og Jónas R. Jónasson, ennfremur að nefnd-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.