Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.01.1949, Side 40

Símablaðið - 01.01.1949, Side 40
8 SlMABLAÐlÐ -Jeroaáöffu. Á8ur en flugsamgöngur hófust milli Vest- mannaeyja og lands, var það oft sannkölluö svaðilför, að komast þar á milli. — ÞaÖ var ekki sjaldan, að ferÖalagið til lands bar skugga á tilhlökkun Eyjabúa, er sumarleyfi þeirra nálguðust. — Hér fer á eftir brot úr ferðasögu eins símamanns, frá þeim tím- um: marleyfi. Irot eftlr ^Jl-S-C. Lengi hafði ég hlakkað til þessa dags og loks var hann upprunninn, föstudagurinn 21. júní. Veðrið var dásamlegt, logn og bliða og sólin gyllti allt um kring liggjandi fjöll, sem voru íklædd sínu allra fegursta sumar- skrúði. 1 dag átti sumarleyfi mitt að byrja. Hvílík óumræðilega gleðileg tilhugsun að mega, kl. 15 í dag, skila af sér í hendurnar á staðgenglinum, öllum skyldustörfum sin- breytast allverulega við þessi átök okkar, því við háðum þessa baráttu í sumar þrátt fyrir þessi lög, og við okkur var samið af þáverandi ríkisstjórn. Þessari sókn gegn verkfallslögunum verðum við opinberir starfsmenn að halda áfram, þar til við höf- um öðlast verkfallsréttinn að fullu. Við skul- um vona að verkfallslögin frá 1015 verði afnumin með friðsamlegum hætti og við látnir njóta sömu réttinda og aðrar stéttir þjóðfélagsins. Gleymum samt aldrei að sam- tökin eru sá máttur, sem gerði okkur kleyft að yfirvinna þá örðugleika sem mættu okk- ur á líðandi ári, við verðum því öll að stuðla að því af fremsta megni að halda félaginu ávallt sterku. Steingr. Pálsson. um við stofnunina, fara svo heim, pakka niður og leggja af stað kl. 21 með m.h. Muggur til Stokkseyrar — til fastalandsins — njóta þar hvíldar og sólaryls í 3 vikur. laus við allar áhyggjur hins daglega lífs. Það var nærri því of gleðilegt, til þess að geta verið satt, en þó var þetta staðreynd. Staðgengillinn var kominn og ég átti að byrja sumarfríið kl. 15. ■— Tíminn leið fljótt fyrir mér fram að þeim tíma, því að nóg var að gera við að ljúka öllu sem mér bar, áður en ég færi. Stöku sinnum varð mér litið til loftsius, því einhvern veginn fannst mér varhugavert að trúa veðurspánni: „hægviðri, bjartviðri“ hvað umhverfi Vestmannaeyja snerti. Útsuð- ursloftið var eitthvað svo einkennilega blik- að og hvergi hygg ég að betur sannist hið fornkveðna spakmæli: ,,Á skammri stundu skipast veður í lofti,“ en hér í Eyjum. Þessi útsuðursblika kom mér því til að treysta ekki allt of vel á, að veður héldist óbreytt til kvölds. En hvað um það, ég vonaði að báturinn færi á tilteknum tíma. Og með þá von í brjósti, kvaddi ég samstarfsfólk mitt með virktum og fór heim. Sumarfríið var byrjað — Húrra —!

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.