Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1949, Page 51

Símablaðið - 01.01.1949, Page 51
SlMABLAÐIÐ 19 : ■ 13" I 1 -' 1 j Ifi' I: Mynd V. breytta tal eftir ýmis konar línum, eÖa þráÖ- laust. Á áfangastaÖnum er svo talinu aftur brevtt, og lækkað í tíðni niður i sína upp- haflegu mynd. Til þess að hið breytta tal trufli ekki óbreytta talið, sem fyrir er á lín- unni, þarf svonefndar siur, sem skilja þá tóna, sem á línunni eru, að, eftir tíðni þeirra, þannig, að vanalega talið heyrist á einum stað á siunni, og hið breytta á öðrum. Þess- ar breytingar á tíðni talsins gerast í svo- nefndum mótara. Þar er blandað saman föstum tón, burðarbylgju, og talinu, og koma þá fram í þessum mótara, nýir tónar, og þar á meðal eru tónar, sem eru summan af fasta tóninum og talinu, og má skilja þá frá upphaflegu tónunum með sérstökum sí- um. Burðarbylgjan getur verið af mismun- anid tíðni, og færist þá talið mis mikið til. Ef vill, má hafa marga mótara, hvern með sinni burðarbylgju og hvern fyrir sitt tal- samband. Þá breytast þessi talsambönd mis mikið í móturunum. Svo má taka þessi breyttu sambönd, og magna þau og senda langar leiðir eftir ýmis konar línum. Á við- tökustöðinni eru svo afmótarar, þar koma saman breyttu taltíðnirnar, og burðarbylgjur af sömu tíðni og burðarbylgjurnar í mótur- unum, og koma nú enn fram nýir tónar, þar á meðal mismunurinn á breyttu tónunum og burðartóninum, en þessir nýju tónar eru ein- mitt talið, sem byrjað var á. Til þess nú, að talsamböndin ekki ruglist, er nóg að hafa síur á eftir móturunum og undan afmótur- unum, og svo er auðvitað afar áríðandi, að burðarbylgjur i mótara og samsvarandi afmótara hafi nákvæmlega sömu tíðni. Með þessu móti er þá hægt að flytja mörg talsambönd eftir hverri línu. Hér á landi eru

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.