Símablaðið - 01.01.1949, Síða 57
SlMABLAÐIÐ
25
ur máli sem launþega, höfum vi'ð veriÖ
minntir oft á, undanfarna mánuÖi.
Sem launþega skiptir það okkur máli,
hvort opinber rekstur er þaninn út að nauð-
synjalausu, -— jafnvel í þeim eina tilgangi,
að veita persónuleg fríðindi, laun og völd,
— eða bitling, — eins og við nefnum það.
Það skiptir okkur máli, hvort ríkisstofnanir
eru reknar af forsjálni eða ekki, — með tapi
eða ágóða. Það skiptir okkur máli, —• hvort
hlaðið er á þær starfsfólki, án þess fyllsta
þörf sé fyrir það, — og hvort hæfni ræður
um val þess, eða siðleysi kunningsskaparins.
Það hefur sýnt sig, að mest áherzla hefur
jafnan verið á það lögð í umræðum á Al-
þingi um launabætur til opinberra starfs-
manna, hve úá launafúlga hins opinbera
væri orðin. Að svo og svo margar miljónir
þurfi til að bæta launin, — án alls tillits til
þess, hvort hver einstaklingur fær dregið
fram lífið á launum sínum. — Þetta sýnir,
að okkur opinbera starfsmenn varðar það, ,
hve víðtækur opinber rekstur er, — og
hvernig honum er stjórnað.
B. S. R. B. gefur öðru hverju út blað. Það
ætti að koma oftar út en það gerir, •—• því
fæstar stéttir opinberra starfsmanna eiga
málgagn. Og það ætti að vera lífrænna, en
það er nú.
Það mætti gjarnan eyða minna rúmi und-
ir skýrsfur og þingtíðindi, en leggja sig
fram um það að stuðla að sparnaði, hagsýni
og umbótum í opinberum rekstri, með gagn-
rýni og umræðum.
Með því mundu þessi félagssamtök skapa
nauðsynlegt aðhald og stuðla að betri af-
komu hins opinbera, og um leið stuðla að
sínum eigin kjarabótum.
Símablaðið mun öðru hverju birta í fram-
tiðinni greinar, útfrá þessu sjónarmiði.
Sextugs-
aímæli
átti Soffía Thordarson bókari 5. des. s.l.
Hún kom í þjónustu Landssimans árið
1908; varð þá talsímakona á ísafirði. Er
hún því i hópi elzta starfsfólks stofnunar-
innar. Reyndar var hún ekki í þjónustu sím-
ans 1912—17 og 1922—1924. Símritari á
ísafirði varð hún 1919, og gengdi því starfi
þar til hún fluttist til Reykjavíkur 1. marz
1927, og varð símritari við ritsímann þar.
Ritsímastjórastarfinu á Isafirði gengdi
hún um skeið, árið 1926, og varðstjórastöðu
við rítsímann í Reykjavik um margra ára
skeið.
Árið 1934 fluttist hún á skrifstofu rit-
símastjórans i Reykjavík, og hefur unnið
þar siðan; fyrst sem skrifari 1. fl. frá I.
marz 1935 og bókari frá 1. jan. 1947.
Soffía hefur alltaf verið mjög áhugasöm
í félagsmálum F. 1. S. og var í fleiri ár
gjaldkeri þess.
Símablaðið óskar henni til hamingju við
þessi tímamót, og þakkar henni ágætt starf
í þágu stofnunarinnar og simamannastétt-
arinnar.
• •
011 alls konar prentmyndagerð
fljótt og vel. -—
##./. Æjeiftur
Tryggvagötu 28. Sími 5379.