Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1949, Page 61

Símablaðið - 01.01.1949, Page 61
SlMABLAÐlÐ 29 - SKRÍTLUR - Margir karlmenn heimsóttu Rósu, og þa'Ö var svo hljótt á meðan þeir voru hjá henni, að pabba hennar fór að gruna margt. Kvöld nokkurt, þegar hann kom heim, sagði hann við konu sína. „Ég er hérna með nýtt tæki, sem sýnir okkur, hvað Rósa aðhefst. Þetta er nokkurs konar sjónvarp. Þegar gesturinn kemur í kvöld, setjum við tækið í gang. Ef hann heldur í hendina á henni, kemur grænt ljós. Ef hann kyssir hana, kemur rautt Ijós o. s. frv.“ Tækið var sett í gang, en pabbinn lagði sig og fékk sér blund, Svo kom gesturinn. Nokkru síðar vakti kona hans hann og kall- aði hástöfum : „Komdu fljótt pabbi, og sjáðu bara. Það eru allir regnbogans litir í tækinu.“ Eftirmæli á legsteini múlösnu, sem var með amerískri herdeild í stríðinu: „Hér hvíl- ir Magga, sem á sínum tíma sparkaði í tvo ofursta, fjóra yfirforingja, tíu höfuðsmenn, tuttugu og fjóra undirforingja, fjörutíu og tvo liðþjálfa, fjögur hundruð áttatíu og sex óbreytta hermenn og eina dynamitsprengju.“ Tveir menn voru að ljúka við kaupsamn- ing að húsi. Þegar kaupandinn var að því kominn að skrifa undir samninginn, verður hann hugsi og spyr svo: „Eru nokkrar rottur í húsinu?“ Seljandinn: „Nei, — en skipti það nokk- uru máli, er sjálfsagt hægt að útvega þær.“ Skrifstofumaður einn hafði um langan tíma setið með hönd undir kinn, og horft út um glugga. Skyndilega snéri hann sér SÍMABLAÐIÐ er málgagn Félags íslenzkra símamanna Ábm.: Andrés G. Þormar. Utanáskrift blaðsins er: Símablaðið, Pósthólf 575, Reykjavík. að samstarfsmanni sínum og sagði af mik- illi vandlætingu: „Sérðu verkamanninn þarna við götiiT gerðina. — Ég hef horft á hann stanslaust í 2 klt. og hann hefur ekki gert handtak, all- an þann tíma, — Irölvaður slæpinginn.“ Fíll og mús mættust í frumskógi. „Selfing ertu lítil,“ sagði fíllinn. „Ég hef nú verið lasin,“ sagði músin. Geðveikralæknirinn við útskrifaðan sjúkl- ing: „Og hvað ætlarðu nú að taka fyrir?“ „O, — ætli ég fái ekki sendilsstöðu, — og bregðist það, — get ég alltaf orðið búðar- maður eða skrifstofumaður". Um leið og hann fer út, snýr hann sér enn að yfirlækninum, og veifar til hans, um leið og hann segir: — „Alltaf getur maður minnsta kosti orðið leirkrukka“. Engir tveir menn eru eins, — og báðir eru glaðir yfir því. INGÓLFLR FLVGEMIIMG Hafnarfirði 'JrifMikúó QáturkúA Seljum frosið kjöt og beitusíld. Hraðfrystum fisk.

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.