Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.01.1962, Side 8

Símablaðið - 01.01.1962, Side 8
og Gander. (heyrist í heyrnar- tól gestanna). Kl. 14,42 Símtal Póst- og símamálastjóra við Póst- og símamálastjóra Danmerkur. — 14,45 Símtal Póst- og símamálastjóra við forstjóra brezka símans. — 14,47 Símtal forstjóra brezka símans við Bent Suenson forstjóra Mikla Norræna Ritsímafélags- ins, sem verður staddur hér. — 14,50 Símtal Póst- og símamálaráð- herra við Peter Mohr Dam, lög- mann Færeyja. — 14,55- Nokkur reynslusímtöl fulltrúa dagblaða o. fl. — 15,40 Nýja sæsímasambandið opnað fyrir almenning. Hér á eftir fer ræða póst- og símamála- stjóra, Gunnlaugs Briem, þar sem hann gefur yfirlit yfir gang málsins: Hæstvirti ráðherra og góðir gestir! Hér verður í stuttu máli greint frá að- draganda að þessum nýja sæsíma og notk- un hans: Fyrir rúmlega 6 árum fór póst- og síma- málastjórnin fyrir alvöru að leita að end- urbótum á símasambandinu við útlönd, sem þá var talið vera orðið ófullnægjandi, bæði vegna tíðra bilana á gamla sæsíman- um frá 1906, sem aðeins veitti 1 ritsíma- samband, og svo vegna truflananna á stutt- bylgjutalsambandinu frá 1935. í janúar 1956 var í þessu skyni leitað tilboða í míkróbylgjukerfi (radiókerfi) fyrir 12 talrásir milli Bretlands og íslands, sem þá virtist ódýrasta lausnin, því að stofn- kostnaður nútíma sæsíma með neðansjáv- armögnurum virtist þá allt of hár. Bæði þessi kerfi voru ný af nálinni, og má nefna, að fyrsti talsæsíminn yfir Atlantshaf var tekinn í notkun síðar á því ári eða 25. september 1956. Gunnlaugur Briem flytur ræðuna. Póst- og símamálastjórnin gerði síðan áætlanir um reksturskostnað og tekjur hins fyrirhugaða kerfis, og virtist nokkuð vanta á, að það gæti borið sig með tekjum af almennum símaviðskiptum einum, en ef einhverjar símarásir fengjust leigðar út eða ísland vildi leggja fram fé fyrstu ár- in á meðan viðskiptin væru að aukast, ætti málið að vera framkvæmanlegt. Þótti eðli- legt að reyna fyrst að fá símarásir leigðar. Fyrir Alþjóðaflugmálastofnunina var þá mikil nauðsyn á að fá beint talsamband milli flugstjórnarmiðstöðva sinna við Norður-Atlantshaf, en stuttbylgjusamband þótti ekki koma til greina vegna truflana. Hafði Alþjóðaflugmálastofnunin um þess- ar mundir ráðgert að koma upp últrastutt- bylgjukerfi (Ionospheric scatter) í þessu skyni með 1 talrás og 4 ritsímarásum. Póst- og símamálastjórnin taldi slíkt kerfi ekki nægilega gott, en að bezta lausnin væri að leysa þarfir, bæði flugfjarskipta og al- mennra símaviðskipta, með einu fullkomn- ara kerfi. SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.