Símablaðið - 01.01.1962, Qupperneq 16
fyrir, að opinberir starfsmenn
dragist aftur úr öðrum stétt-
um í launakjörum, eins og oft
hefur átt sér stað.
Á s.l. hausti var skipuð sam-
starfsnefnd rikisins og B.S.-
R.B. um launa- og kjaramál,
með tveimur fulltrúum frá
hvorum aðila.
Nefnd þessari er ætlað að
fjalla um þau mál, sem hvor
aðili um sig telur æskilegt að
leggja fyrir hana.
B.S.R.B. hefur unnið að því
að fá leiðrétt það misrétti,
sem ríkt hefur í sambandi við
launakjör kvenna.
I lög frá 1954 um réttindi
og skyldur starfsmanna ríkis-
ins var sett ákvæði um, að
konur og karlar skuli hafa
jafnan rétt til opinberra
starfa og til sömu launa fyrir
sömu störf. Áður hafði feng-
izt ákvæði í launalögin frá
1945 um, að við skipun I starfs-
f lokka og flutning milli launa-
flokka skuli konur að öðru
jöfnu hafa sama rétt og karl-
ar.
Síðan 1957 hefur starfað
nefnd fulltrúa bandalagsins
og fjármálaráðuneytisins, sem
athugar kvartanir um mis-
rétti í sambandi við skipun
kvenna í launaflokka og ger-
ir tillögur um leiðréttingar,
ef ástæða þykir til. Hafa tug-
ir kvenna, er starfa hjá rik-
inu, fengið leiðréttingu á
launakjörum sínum vegna
starfs þessarar nefndar.
Auk þess, sem hér hefur
verið talið, hafa samtökin með
starfi sínu fengið framgengt
fjölmörgum hagsmunamálum
stétta og einstaklinga, sem of
langt yrði að telja.
Bandalag starfsmanna rík
is og bæja bíða mörg við-
fangsefni, en sem stendur
leggja samtökin höfuðáherzlu
á að fá viðurkenndan fullan
samningsrétt til handa opin-
berum starfsmönnum, um
Kaup og kjör, og að gagn-
gerðar breytingar verði fram-
kvæmdar á launakerfi ríkis-
ins og bæjarfélaganna. Telja
samtökin, að heildarendur-
skoðun á launakjörum opin-
berra starfsmanna þoli enga
bið.
Bandalags starfsmanna rík-
is og bæja hefur gefið út sitt
eigið málgagn síðan á árinu
1944.
í fyrstu stjórn Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja
áttu sæti: Sigurður Thorlaci-
us skólastjóri, formaður, Lár-
us Sigurbjörnsson skjalavörð-
ur, varaformaður, Guðjón B.
Baldvinsson deildarstjóri, rit-
ari, Þorvaldur Árnason skatt-
stjóri, gjaldkeri, dr. Ásmund-
ur Guðmundsson biskup, Guð-
mundur Pétursson símritari,
og Sigurður Guðmundsson
skólameistari.
Þessir menn hafa verið for-
menn bandalagsins:
Sigurður Thorlacius, skóla-
stjóri, Lárus Sigurbjörnsson,
skjalavörður, Guðjón B. Bald-
vinsson, deildarstjóri, Ólafur
Björnsson, prófessor, Sigurð-
ur Ingimundarson, alþingis-
maður og Kristján Thorlacius,
deildarstjóri.
Frá árshátíð F.Í.SL í Lídó 2. febr. sl.
Starfsfólk pósts og síma á Akranesi og gestir.
B í M AB LAÐIÐ