Freyr

Årgang

Freyr - 01.12.1954, Side 8

Freyr - 01.12.1954, Side 8
356 FREYR Hins vegar eigum við auðvelt með að skilja, hversu jólahátíðin var kœrkomin tilbreyting í fásinninu. Hvílík uppspretta Ijóss og yls hún hefur verið því í einangrun og myrkri skammdegisins. Hvílík hátíða- stund það hefur verið því, er þau gengu í garð. Hvernig Ijósið hefur þá lýst því í myrkrinu og kallað fram allt það göfugasta, sem í mannssál- inni býr. Sést þetta hvað bezt á því, að sjálfsagt þótti að gera allt til þess, að bœrinn gœti verið baðaður birtu á jólunum, þótt Ijósmetið vœri annars af svo skornum skammti, að ekki þœtti unnt þar fyrir utan að bera Ijós í hús, nema á blá-vökunni, og þá oft svo ófullnœgjandi, að sjálfsagt myndi okkur finnast við geta unnið fátt við þá birtu. En svo heilög og björt var birtan, sem jólin kölluðu fram í hjörtum fólksins, að hún varð að fá endurskin í hinu ytra umhverfi, hvað svo sem það kostaði. Þannig hafa jólin verið þjóðinni um aldaraðir það Ijósið, sem skín i myrkrinu. Miklar hafa breytingarnar orðið með þjóð okkar núna á skömmum tíma, og ólík þau kjör, sem við eigum við að búa þeim kjörum, sem jafnvel feður okkar og mœður ólust upp við. Vissulega er náttúrufari landsins svipað farið og áður. Skammdegið er hið sama, en það má nú svo heita, að myrkrið og kuldinn sé horfið á burt úr bcenum, hvað sem öllu skammdegi líður og það jafnvel .þótt hann standi einn og afskekkt- ur upp til heiða. Nú eru því jólin, sem áður máttu heita eina tilbreytingin og eini Ijós- gjafinn í svartasta skammdeginu, hœtt að fœra okkur eins kœrkomna og ég vil segja lífsnauðsynlega tilbreytingu í fásinninu og forfeðrum okkar. — En þrátt fyrir það hafa þau okkur sama háleita boðskapinn að flytja — eru okkur sama Ijósið í myrkrinu. Enn þá megna þau að kalla fram sömu Ijósþrána í brjósti hins óspillta manns. Enn þá gera þau þá kröfu til okkar, að við höfum allt baðað birtu í kringum okkur frekar en endranœr. Enn þá kalla þau fram göfugustu hugsanirnar og tilfinningarnar í sálum okkar, þegar við sjáum það fegursta í fari með- systkina okkar, og við skiljum, að það er kærleikurinn, sem á að ríkja í allri sambúð okkar mannanna. — Ætti þetta ekki að kenna okkur, að áhrif jólanna þurfi að vara lengur í lífi okkar en þessa fáu daga, sem við höldum jól? Með þeirri ósk, að hið heilaga jólaljós, sem megnað hefur svo blessun- arlega að lýsa þjóð okkar í gegnum myrkur liðinna alda, megi halda áfram að bera birtu friðar og kœrleika inn í líf og störf hennar í fram- tíðinni, bið ég algóðan Guð að gefa okkur öllum Gl e ðil e g j ól. KRISTJÁN BJARNASON Reynivöllum.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.