Freyr - 01.12.1954, Síða 12
360
FR áYR
Séð úr buri þvert yfir bœjardyr og inn i skála. Hvorar
tveggju dyrnar eru bogadregnar að ofan, og á það sinn
þátt i að bregða miðaldalegum svip yfir hitsið.
Ljósmynd: Gisli Gestsson.
svo sem til samfylgdar hinum góðu mynd-
um, sem hér eru birtar.
Kjarninn í gamla Keldnabænum er hinn
svonefndi skáli, sem er langhús og snýr frá
austri til vesturs með dyr móti suðri, bæj-
ardyraþil fyrir miðjum vegg. Fyrir austan
hann og sambyggð honum eru svo fjögur
lítil hús, sem snúa öfugt við hann með
stafna fram á hlað að seinni tíma hætti.
Þau eru litlaskemma, stóraskemma, smiöja
og hjallur. Þessi fjögur hús eru afar ramm-
byggileg eins og allt á Keldum, en annars
eru þau ekki mikið frábrugðin fjölda því-
líkra húsa frá seinni tímum, gera þó sitt
til að setja svip á staðinn. í bók sinni um
Keldur hefur Vigfús Guðmundsson gert ít-
arlega grein fyrir notkun allra þessara húsa
í tíð föður hans, gamla Guðmundar Brynj-
ólfssonar, er lengst bjó á Keldum. Var allt
slíkt og lengi síðan í ákaflega föstum skorð-
um.
Sunnan við skálann er nú baðstofubygg-
ing vönduð og snýr þvert á hann eins og
skemmurnar. Hana lét Skúli Guðmundsson
eða móðir hans smíða 1891, en áður höfðu
þar á sama stað verið baðstofuhús síðan á
fyrstu áratugum 19. aldar. Fyrir þann tíma
hafði baðstofa verið fyrir aftan skálann og
snúið eins og hann, göng í hana frá bæj-
ardyrum. Þeirri baðstofu var breytt í eld-
hús, þegar baðstofan var byggð sunnan við
skálann, en fyrir þann tíma hafði verið úti-
eldhús sunnan við bæ. Eldhúsið að baki
skálans, sem eitt sinn var baðstofa, stend-
ur enn sem partur af gamla bænum, og eru
þar hlóðir miklar og frá þeim undirblást-
ur, sem liggur fram eftir göngum undir
gólfi og opnast fram í bæjardyr.
Skálabyggingin á Keldum, langhúsið
sjálft, er með öllu og öllu 13,6 m að lengd,
en skiptist með tveimur þverþiljum í
þrennt, bæjardyr í miðju, búr austast (til
hægri) og skála vestast (til vinstri). Breidd-
in er um 3,5 m. í skálanum er moldargólf,
en viðir ákaflega sterklegir og fornlegir,
stafir feiknagildir og syllur breiðar með
fornlegu striki og grópum, sem þiljur hafa
verið felldar í, en vantar nú. í þaki eru viða-
miklar sperrur og bitar undir lofti, lang-
bönd stölluð ofan í sperrurnar og reisifjöl
á. Utan yfir reisifjölinni er hella, síðan torf
og snidda, og er þakið geysiþykkt frá upp-
hafi, en hefur enn þykknað af áfoki. Á bit-
um liggja lausleg borð og mynda loft yfir
skálanum. Þar er nú til beggja hliða raðað
kistum, og er björgulegt að líta inn eftir
loftinu.
í bæjardyrum er hellugólf svo sem oftast
var, dyr bogadregnar að ofan inn í búr og
skála, en yfir dyrunum er örlítið bæjar-
dyraloft, með skarsúð og glugga fram á