Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.12.1954, Qupperneq 18

Freyr - 01.12.1954, Qupperneq 18
366 FREYR GUNNLAUGUR BJÖRNSSON: <g)£tma d 5)óíttm Kristján Karlsson og frú hans buðu Skagfirðingum og ýmsum utanhéraðsmönn- um heim að Hólum laugardaginn 16. októ- ber s.l. Útvarpið hafði áður birt þá fregn, að skólinn yrði settur þennan dag. En það hafði einnig heyrzt, að þá ætti fleira að gerast á staðnum. Sagt var, að afhjúpuð yrði mynd af Hermanni Jónassyni, fyrrver- andi skólastjóra, og af því tilefni kæmu þeir Steingrimur Steinþórsson landbúnaðarráð- herra og Páll Zóphóníasson búnaðarmála- stjóri, en þeir hafa, sem kunnugt er, báð- ir verið skólastjórar á Hólum. Sagt var, að von væri á fleiri kunnum forráðamönnum landbúnaðarmála. Þeir, sem Kristján skólastjóri vissi um, að höfðu verið persónulega kunnugir Her- manni, fengu ákveðin tilmæli um að koma. Einkum hafði þess verið óskað, og lögð drög fyrir það fyrir löngu, að nemendur Her- manns mættu til mótsins. Nemendur þess- ir eru nú orðnir fáir oíar moldu. Þó munu þeir vera 6 eða 7. Skagfirðingum, og mörgum öðrum, hefur eflaust verið það mikið ánægjuefni að koma heim að Hólum þennan dag og heiðra minn- ingu hins merka landbúnaðarfrömuðar, með því að vera viðstaddir þegar málverk af honum yrði afhjúpað. Þeir hafa og vit- að, að nú yrði þeim óskað árs og friðar, heima á hinu fornhelga höfuðbóli þeirra og menntasetri bænda. Var það nauðsynlegt og gott til þess að hyggja, er vetur gekk í garð. Skagfirðingar vita, „að heima er gott að vera,“ og heima rætast flestar vonir bezt. Þeir fóru því glaðir að heiman, öruggir í þeirri trú, að góðar vættir mundu enn, sem fyrr, hylla Hólastað. Haustið hafði oftast verið hráslagalegt og kalt að þessu sinni, en nú var veður gott og fagurt. Bifreiðirnar liðu heim dalinn, í haustsins friði og haustsins ró. Helgi stað- arins laðaði að sér hugi manna. Oft er fjöl- breytt fegurð dalanna og verður stundum vart á milli séð, hvort vorið eða haustið nýt- ur sín betur. En mjög nær þessi fegurð sjón“, að einnig á Vesturlandi og Suður- landi er öruggt, að barrtré geta vaxið og þrifist prýðilega. Skjól er frumskilyrði til góðs árangurs við skógrækt, og er vel, að sandgræðslu- stjórinn viðurkennir — vafalaust að feng- inni reynslu — gildi skógræktarinnar til skj ólbeltamyndunar. Broslegur er samanburður sandgræðslu- stjórans á vaxtarhraða sandgresis og skóg- argróðurs. íslenzkum skógræktarmönnum mun það yfirleitt ljóst, að það eru komandi kynslóðir, frekar en núlifandi kynslóð, sem munu njóta góðs af viðleitni þeirra, — og sætta sig við það. Sandgræðsla og skógrækt eru tvímæla- laust einhver mestu þjóðþrifamál, sem þessi kynslóð hefur með höndum. Um nyt- semi sandgræðslunnar munu nú orðið næstum allir sammála, en um skógræktina gegnir öðru máli, enn sem komið er. Ennþá eru ýmsir menn sannfærðir um tilgangsleysi þeirrar viðleitni, og sumir láta það óspart í ljós. Hætt er við, að neikvæð viðhorf þeirra, básúnuð og birt alþjóð, eink- um ef um er að ræða þekkta menn á sviði ræktunarmála, veiki trú fólks á íslenzkri skógrækt, en séu ályktanir þeirra rangar, skaða þeir þannig gott málefni. Hinsvegar er það svo um grein Páls Sveinssonar, að hún hefur orðið þess vald- andi, að birtar eru staðreyndir, sem hnekkja fullyrðingum hans. Jákvæðar staðreyndir gegn neikvæðum ályktunum. Það þokast í rétta átt. — Kærar þakkir, Páll. SJcógarmaður.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.