Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.12.1954, Qupperneq 19

Freyr - 01.12.1954, Qupperneq 19
FREYR 367 auknum áhrifum og valdi, þegar viS nýtur merkra höfuðbóla, þó að minni séu en Hól- ar. Nú voru Hólar sveipaðir blæju fallinna laufa og hér mátti sjá „bleika akra og sleg- in tún,“ engu síður en að Hlíðarenda forð- um. Hlíðar fjallanna voru enn sveipaðar síð- sumarskrúði, en brúnir mjalldrifnar. Þær höfðu þegar heilsað vetri. Allt var þetta markað mildu skini hnignandi haustsólar. Margs fleira þurftu einkum þeir að minn- ast og sjá, sem dvalið höfðu á Hólum við nám, eða önnur störf, endur fyrir löngu, en höfðu ekki komið þar um langt skeið. Eitt var fornt, en annað nýtt, sem fyrir augun bar og allt minnti það á eitthvað, sem um var vert að hugsa. Móar og mýrar voru orðn- ar að sáðsléttum, sem voru miklu víðlend- ari en gamla túnið hafði verið, sem þó var margfalt stærra en flest önnur tún, og sagt var, að líkt væri farið um aðra þróun, er að búinu laut. Mest kvað þó að byggingunum, er risið höfðu af grunni, bæði margar og veglegar, á síðari árum. Hæst bar kirkjuturninn, sem reistur var til minningar um eitt af mestu ofurmennum, sem ísland hefur alið. Sjón og skynjun eru fljótar í förum. Óðar en varir er litið af turninum upp til Gvend- arskálar. Öll er skálin skriðum og klungri klædd. Allt minnir þetta á ævi Guðmund- ar góða, biskupsins, sem frægastur hefur orðið allra biskupa fyrir máttugar bænir og líknarstörf, en hefur einnig orðið frægur fyrir stjórnleysi og óhlýðni við lög þjóðfé- lags síns, og þó einn allra íslenzkra bisk- upa hlotið auknefnið „góði“. Heim var lit- ið úr Gvendarskál til kirkjunnar og horfið að skríninu góða, sem geymir Guðbrandar- biblíu. Frá henni og öðrum bókum þessa mikla athafnabiskups hefur brunnið mesta glóð Hólastaðar, er svo var máttug, að hún yljaði og lýsti alþjóð um aldir og gerir raun- ar enn. * Horfið var nú frá hyggju um liðna daga, enda voru kennslustofur skólans orðnar þéttskipaðar fólki. Söngurinn var að hefj- ast, undir stjórn hins góðkunna söngkenn- ara, Friðbjarnar Traustasonar. Að því loknu hóf skólastjóri ræðu sína, setti skólann og stýrði síðan mótinu. Skólastjóri kvað sér það mikla ánægju nú, eins og oft áður, að bjóða gesti sína velkomna heim að Hólum. Þá kvað skólastjóri Skagfirðingum og öll- um Hólamönnum það sérstakt fagnaðar- efni að bjóða þá Steingrím landbúnaðarráð- herra og Pál búnaðarmálastjóra velkomna til þessa móts. Lét skólastjóri þess getið, að það mundi í fyrsta sinn, sem landbún- aðarráðherra væri viðstaddur skólasetningu á Hólum. Þá fór skólastjóri nokkrum orð- um um gildi listaverka í skólum og minnti á málverkin af skólastjórum Hóla, er þar voru í salnum. Þakkaði hann mynd Her- manns skólastjóra og sagði, að búnaðar- málastjóri mundi afhjúpa hana og .minn- ast Hermanns, að ræðu sinni lokinni. Skóia- stjóri kvað sér þykja vænt um að geta sagt frá því, að frú Sigurlaug Jónasdóttir af Sauðárkróki og Stefán Stefánsson bóndi á Svalbarði væru hér viðstödd. Þau væru hin einu af öllum þeim, er þarna væru, sem hefðu dvalið hjá Hermanni Jónassyni heima á Hólum. Hún var þjónustustúlka við skólann, en hann nemandi. Stefán var sá eini af nemendum Hermanns, sem átti þess kost að sækja þetta mót. Stefán er þjóð- kunnur maður. Hann hefur verið meðal fremstu bænda og athafnamanna við Eyja- fjörð. — Skólastjóri vék nú að þróun búnaðarmála og bændaskóla, bæði hér og annarsstaðar á Norðurlöndum. Gat hann um nauðsyn þess, að nýjungar allar, er til umbóta horfðu, væru sem bezt nýttar og væri því bændum orðin þörf á mikilli og fjölbreyttri mennt- un. Taldi hann, að tvö væru þau meginat- riði, sem bæði nemendur og kennarar yrðu mjög að meta. Það fyrst, að rækja sem bezt hinar faglegu kennslugreinar og hitt ann- að, sem mörgum þætti ekki síður mikilsvert: að afla sér sem beztrar fræðslu og þjálf- unar um skyldur og rétt almennra borgara. Óskaði hann nemendum sínum til ham- ingju við námið og minnti á það, að í skól- um, eins og annarsstaðar, væri það iðju- semi, skyldurækni og háttprýði, sem þrosk- aði manngildið mest. Mjög taldi skólastjóri

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.