Freyr - 01.12.1954, Side 20
368
FREYR
það æskilegt, að allir nemendur tækju þátt
í félagslífi og fundarhöldum skólans.
Páll búnaðarmálastjóri afhjúpaði mynd
Hermanns og flutti um hann ræðu ítarlega
og ágæta. Hann gat þess, að Hermann hefði
verið fæddur að Víðikeri í Bárðardal 1858.
Faðir hans fluttist vestur um haf og lézt
þar, skömmu síðar, meðan Hermann var
enn barn að aldri. Hermann ólst upp á Mýri
i Bárðardal, hjá Aðalheiði móðursystur
sinni og Jóni bónda Ingjaldssyni, manni
hennar. Hermann hefur þvi verið fóstur-
barn á afskekktum bæ innst til fjalla, en
þar um slóðir er náttúrufegurð mikil, víð-
lendið ótakmarkað og kjarnalönd. Fóstri
Hermanns var merkur bóndi og mikilhæfur.
Hann var orðlagður fj árræktarmaður og
mun Hermann hafa lært mikið af honum
um þau efni, sem síðar kom á daginn.
Eftir að Hermann fór frá Mýri, dvaldi
hann um skeið á ýmsum stöðum, bæði norð-
anlands og vestan. Vann hann þá algeng
störf og margbreytt, bæði á sjó og landi.
Hann hefur verið þroskaður maður og
kunnað skil á mörgu, er hann kom í Hóla-
skóla 23 ára gamall, fyrsta árið, sem skól-
inn starfaði. Að loknu námi á Hólum fór
Hermann utan til búnaðarnáms. Hann
dvaldi einn vetur við landbúnaðarháskól-
ann í Höfn. Eftir það var hann um skeið
við verklegt nám í Danmörku, mest við
vatnsveitingar hjá Heiðafélaginu.
Þegar Hermann var erlendis við nám, eða
skömmu eftir heimkomu sína, virðist hann
hafa lagt mikinn hug á stofnun búnaðar-
rits. Hóf hann útgáfu Búnaðarritsins 1887
og var ritstjóri þess. Hann gaf ritið út í 13
ár og ritaði í það margar ágætar greinar.
Verkstjóri var Hermann tvö sumur að stór-
búi á Víðimýri í Skagafirði. Hlaut hann þá
mikið orð fyrir verkstjórn og hagsýni við
hverskonar störf.
Hermann var skólastjóri á Hólum frá
1888—1896. Þá keypti hann Þingeyrar og
fluttist þangað vestur. Bjó hann þar í 9 ár.
Þingmaður Húnvetninga var hann frá 1901
—1907.
Eftir að Hermann hvarf frá Þingeyrum,
varð hann ráðsmaður við holdsveikraspítal-
ann að Laugarnesi. Ekki var hann þó lengi
við það starf, enda mun það vart hafa ver-
ið við hans hæfi. Hermann dvaldi ýmist