Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1954, Síða 21

Freyr - 01.12.1954, Síða 21
FREYR 369 vestur á Snæfellsnesi eða í Reykjavík um skeið. Vann hann ýmis störf fyrir Búnað- arfélag íslands. Loks fór hann til Vestur- heims. Þar missti hann dóttur sína, myndar konu og mikilhæfa. Hann undi ekki í Vest- urheimi eftir lát dóttur sinnar, og mjög varð honum missir hennar þungbær. Hvarf hann nú heim, þrotinn að þreki. Hann lézt í Reykjavík 6. desember 1923. Sá hefur verið almannarómur um Her- mann og allra þeirra, sem um hann hafa ritað, að hann hafi verið vitur maður og gjörhugull, enda má sjá það af ritverkum hans, ekki sízt ritgerðum um búnaðarmál. Hann virðist hafa verið gæddur flestum kostum mikilla búhölda og svo glöggskyggn um vinnubrögð og verkstjórn, að af bar. Mjög þótti kveða að hæfileikum hans til fjárræktar. Hann var jafnan ljúfur og hóf- samur og kunni vel að miðla málum. Þó gat svo farið, að hann yrði þungorður og aðsópsmikill, ef hann mætti harðri mót- stöðu. Ráðhollur var hann og kunni vel að sjá lengra fram en aðrir menn. En svo hefur verið sagt, að meira gagn hafi vinir hans haft af þeirri gáfu en hann sjálfur. * Þegar Páll Zóphóníasson hafði rætt um mannkosti Hermanns og rakið helztu ævi- atriði hans, miklu betur og ítarlegar en hér er gert, vék hann að menntagildi lista- verka í skólum. Honum fórust orð sem næst því á þessa leið, meðal annars: „Við, sem höfum lagt því lið, að Hólaskóli eignaðist myndir af þremur látnum skólastjórum, höfum eflaust gert það af nokkuð ólíkum hvötum. Sumir hafa ef til vill gert það til þess að prýða skólann, gert það til fegurðarauka. f þeirra tölu er ég ekki. Margir hafa gert það af ræktarsemi og í þakklætisskyni við skól- ann, sem þeir hafa dvalið í og er þeim kær. Þeir hafa viljað binda endurminningar um þessa skólastjóra fastari böndum við skól- ann með myndum, en ella. Mun sú hugsun hafa vakað að einhverju leyti fyrir öllum. Fyrir mér var hún þó ekki aðalatriði, held- ur var um það að ræða, að myndirnar og Hermann Jónasson. saga þeirra, sem þær minna á, gætu haft menntandi áhrif á nemendur þessa skóla um ókomin ár.“ Að svo mæltu fór Páll mörgum velvöldum orðum um nám búfræðinga og tilgang þess, og mælti síðan: „Lítið á myndina af Jósef, þessum flug- gáfaða manni, sem allt virtist vita og alltaf hafði eitthvað að kenna. Látið það verða ykkur hvöt til ástundunar við námið. Þið getið líka minnzt þess, að Jósef ritaði í vísnabók mína: „Stefnum ótrauðir að markinu og minnumst þess, að við verðum oft að ná því í mörgum áföngum og smá- um.“ Ef þið lítið á myndina af honum Her- manni, þá minnist mannsins djúpvitra, sem gjörhugsaði hvert mál og skipulagði fram- kvæmd hvers verks, áður en hann hófst handa. Það er til fyrirmyndar. Ef þið at- hugið myndina af Sigurði, þá minnist mannsins með stálviljann. Hann ritaði í vísnabók mína: „Ef ég finn mér ekki veg, þá bý ég mér hann til.“ * Steingrímur ráðherra hóf mál sitt með því að geta þess, að óvíða eða hvergi hefði hann unað starfi sínu betur en heima á Hólum, og fögnuður væri sér æ síðan að

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.