Freyr - 01.12.1954, Qupperneq 23
FREY R
371
sem hann hefði eignazt. Þakkaði skólastjóri
öllum þeim, er þar hefðu átt hlut að máli.
Þá las skólastjóri taréf frá Brynjólfi Ei-
ríkssyni, er verið hafði einn af nemendum
Hermanns skólastjóra. Bréfið var ágætt,
bæði að fróðleik og formi, enda er Brynjólf-
ur kunnur gáfumaður heima þar.
Að loknum ræðuhöldum buðu skóla-
stjórahjónin gestum sínum til veizlu. Var
þar gestum veittur beini af alkunnri rausn
þeirra hjóna. Undir borðum var enn talað
um málverkið af Hermanni og urðu menn
sammála um, að listamanninum, sem mynd-
ina gerði, hefði vel tekizt. Þá var og minnzt
á það, að menntamálaráð hefði haft for-
göngu um, að máluð var mynd af Sigurði
Slgurðssyni skólastjóra og gefin skólanum.
Freymóður Jóhannsson listmálari málaði
þá mynd, og þykir hún hin glæsilegasta.
Ágæta mynd á skólinn einnig af Páli
Zóphóníassyni. Hana gáfu nemendur Páls
skólanum, þeir er héldu 25 ára nemenda-
mót á Hólum árið 1950. Mynd þessa hefur
Freymóður málað.
★
Dagur þessi hafði verið hinn ánægjuleg-
asti og margt mátti af honum læra. Marg-
ir hafa eflaust fundið, enn sem fyrr, að
óvíða eða hvergi sjá menn straum timans
né heyra nið aldanna betur en á Hólastað.
Margir hafa eflaust óskað þess, að lista-
verk, bæði mörg og góð, mættu sjást sem
víðast i salarkynnum skólans, og einnig í
afrekum þeim, sem unnin verða á menn-
ingarsetrinu. Þá mun hamingja Hólastaðar
halda áfram að þróast í góðu samræmi við
hugsjón Illuga prests, sem forðum gaf stað-
inn og gerði það „fyrir guðs sakir og nauð-
syn heilagrar kirkju.“
Gunnlaugur Björnsson.