Freyr - 01.12.1954, Side 24
372
FREYR
Bændaför Búnaðarsambands Austurlands
Hópför Búnaðarsambands Austurlands 1954.
Ljósm. G. K. 1954.
Bændafarir, á vegum Búnaðarfélags ís-
lands, hafa verið margar síðastliðinn ára-
tug og hafa menn tekið sig upp úr öllum
fjórðungum landsins nema Austfirðinga-
fjórðungi. Þó hafa bændur úr þeim lands-
hluta oftar en einu sinni haft slíka för í
huga, en af framkvæmdunum gat þó ekki
orðið og lágu til þess gildar ástæður. í fyrsta
lagi voru það hinir miklu harðinda- og
snjóavetur, sem gengu yfir Austurland og
gengu nærri efnahag bændanna og höfðu
lamandi áhrif að ýmsu öðru leyti, svo að
ekki þótti viðeigandi að efna til skemmti-
ferða eftir slík áföll.
En nú eru harðindin liðin hjá, og á þessu
ári eru liðin 50 ár frá stofnun Búnaðarsam-
bands Austurlands og var ákveðið að minn-
ast þess með ýmsu móti, m. a. með því að
efna til bændafarar til Suðurlands og Borg-
arfjarðar. Var áætlun fyrir ferðina undir-
búin af okkur Páli Zóphóníassyni búnaðar-
málastjóra, í samráði við Pál Hermanns-
son formann Búnaðarsambands Austur-
lands. Skyldi þetta vera 8 daga ferðalag og
þegar leitað var eftir um þátttöku, létu 56
skrá sig, þar af 14 húsmæður. Skyldi förin
hefjast á þriðja dag hvítasunnu, 8. júní og
þá fljúga frá Egilsstöðum til Kirkjubæjar-