Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1954, Blaðsíða 27

Freyr - 01.12.1954, Blaðsíða 27
FREYR 375 Hver þekkir sjálfan sig hér viÖ Gullfoss? sízt furðu 8—9 vetra bolar, sem aldrei höfðu komið í hús. Frá Gunnarsholti var svo ekið um víð- áttur Suðurlands og ekki stanzað fyrr en á hæðinni við heimavistarbarnaskólann á Skeiðum. Voru þar fyrir bændur af Skeið- um og úr Hreppum, er tóku Austanfólkið með sér heim á bæina til gistingar, en Ei- ríkur bóndi Jónsson í Vorsabæ hafði lýst fyrir þeim landslaginu í kring. En mér fannst ég sjá á ferðafólkinu, að því hefði þótt þetta all viðburðaríkur dagur. Föstudagsmorguninn skiluðu Hreppa- og Skeiðabændur næturgestum sínum aftur að Laxárbrú. Töldu þeir sig allir áreiðan- lega hafa gist á bezta bænum. Margt og merkilegt var á áætluninni þennan dag. Það var gaman að aka um uppsveitir Ár- nessýslu þennan sólbjarta sumardag. Nátt- úran hrífandi. Búsældin auðsæ. Yfir Hvítá var farið hjá Brúarhlöðum og ekið að Gull- fossi. Þaðan að Geysi og matazt þar í boði Búnaðarfélags íslands. Geysir var trakter- aður á einhverjum ósköpum af sápu, í von um, að hann yrði rausnarlegur í sínum út- látum, því gosið úr honum átti að vera við- burður dagsins. Undir borðum voru ræðu- höld og auk þess söng Karlakór Biskups- tungna undir stjórn Þorsteins Sigurðsson- ar á Vatnsleysu. Margir bændur úr Tung- unum voru mættir ásamt frúm sínum og öll var dvölin hin ánægjulegasta að öðru leyti en því, að Geysir brást algjörlega og var álitið, að full hvasst hefði verið. Var þó beðið á barmi skálarinnar til kl. 6, en eng- in hreyfing sást á þeim gamla. Nú stóð þannig á áætlun, að ráðgert hafði verið að koma í Hlégarð í Mosfellssveit kl. 7.30 og var vitað, að þar beið matur og auk þess mikið fjölmenni. Mátti því með engu móti draga burtförina lengur, þar sem minnst þriggja stunda akstur var að Hlé- garði. En Geysir er ekki hafandi með á áætlun sem er ströng. Var nú farið frá Geysi kl. 6 og ekki stöðv- ast fyrr en á Kambabrún, en það er fögur útsýn yfir Suðurlandsundirlendið. Var svo haldið rakleitt í Hlégarð, sem er stærsta og fullkomnasta félagsheimili bænda hér á landi. Var þar!'múgur og margmenni sam- ankomið úr öllu Kj alarnesþingi með for- mann Búnaðarsambandsins, Kristin Guð- mundsson á Mosfelli, í broddi fylkingar. Bændur úr Kjalarnesþingi höfðu fyrir nokkrum árum farið hópferð til Austur- lands og fengið þar hlýj ar viðtökur, sem þeir

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.