Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1954, Síða 29

Freyr - 01.12.1954, Síða 29
FREYR 377 firSinga, stjórn og meðlimir Austfirðinga- félagsins og bauð Pétur Þorsteinsson lög- fræðingur, formaður félagsins, „lands- menn“ sína velkomna og eftir nokkra dvöl í básnum var haldið til Valhallar, þar sem Austfirðingafélagið bauð ferðafólkinu til veizlu og var setið þar í góðum fagnaði. Helztu sögustaðir Þingvalla síðan skoðaðir, en að lokum gengið til kirkju og þar flutti séra Jakob Jónsson bæn og sálmur var sung- inn á undan og eftir. Var þá stigið í bílana og ekið til Reykjavíkur, en meðlimir Aust- firðingafélagsins höfðu séð öllum þeim fyr- ir gistingu, sem ekki áttu vandamenn eða vini að hverfa til. Mánudaginn var verið um kyrrt í höfuð- staðnum og voru þá allir frjálsir ferða sinna, enda margt að gera, hitta vini og kunn- ingja, reka nauðsynleg erindi o. þ. h. Síð- degiskaffi drukku þó allir á heimili Páls Zóphóníassonar. í Reykjavík lauk sjálfu landferðalaginu, en 8. daginn, þriðjudag 15. júní, flaug ferða- fólkið til Egilsstaða og var allt komið heim fyrir kvöldið — að undanteknum Vopnfirð- ingum, er flugu til Akureyrar, en fóru það- an í bíl og komust fyrr heim með því móti. Hafði þá ferðalagið allt gengið svo vel, að ekkert óhapp hafði komið fyrir. Er mér sagt, að þegar austur kom, hafi Sveinn á Egilsstöðum og frú hans haldið samferða- fólkinu veglegt hóf áður en það dreifðist til sinna heimila. Áreiðanlega verður mörgu af ferðafólkinu þessi bændaför minnisstæð, enda tel ég hana hafa heppnast bezt af þeim ferðum, sem ég hef tekið þátt í.Ber ýmislegt til þess. í fyrsta lagi veðrið, sem ræður ævinlega mestu. í öðru lagi að flug- vélar eru notaðar og með því móti hægt að komast langar leiðir á lítilli stundu. Og í þriðja lagi það, að flestar nætur var gist á bóndabæjum eða einstökum heimilum, en vegna þess varð kynning ferðafólksins við fólkið í sveitunum, sem um var farið, miklu meiri en venjulegt er í slíkum hópferðum. Enda var hópurinn hæfilega fjölmennur til þess að slíkt væri hægt. Þessi bændaför Búnaðarsambands Aust- urlands hafði staðið til í mörg ár áður en hún var farin. Það var ánægjulegt, að hún Sjálfvirk hlöðuþurrkun Sumarið 1954 varð mörgum bændum vestan-, norðan- og austanlands örðugt til heyskapar, sökum stopulla þurrka. Verkuð- ust hey sumsstaðar illa, enda urðu hey- brunar af sjálfíkveikju óvenju tíðir. Nýlega frétti FREYR, að Benedikt Gísla- son frá Hofteigi hefði fundið upp aðferð, sem væri talin vænleg til heyverkunar í óþurrkasumrum. Leitaði blaðið frétta um þetta hjá Benedikt, ef vera mætti, að þessi aðferð hans gæti orðið öðrum til gagns. — Ég keypti eyðijörðina Litla-Dal í Tungusveit í Skagafirði haustið 1951, segir Benedikt. Árið 1953 girti ég tún og úthaga og byggði 200 kinda fjárhús úr holsteini. Við þessi fjárhús byggði ég hlöðu árið 1954. Er hún 13 y2 m á lengd, fullir 5 m á breidd og vegghæðin er rúmlega 4 m. Hlaðan er ekki niðurgrafin. Eftir hlöðunni endilangri gerði ég stokk úr tré, rúman 1 m á breidd og um 50 cm á hæð. Stokkur þessi liggur út undir bert loft á grunni beggja hlöðustafna, varð myndarleg og tókst vel. Og ég hef enn einu sinni sannfærzt um nauðsyn og ágæti slíkra ferða fyrir bændur landsins, bæði al- mennt séð og fyrir stéttartilfinningu þeirra. Síðan ferðinni lauk hef ég átt kost á að ferð- ast um hið víðlenda Fljótsdalshérað og hef hitt marga þátttakendur úr bændaförinni að máli. Þeir höfðu spurt mig um margt í ferðinni, en nú fór ég að spyrja þá. Hvar þótti^ykkur fallegast? — en margir nefndu Eyjafjallasveitina. Hvar vilduð þið helzt búa? — og allmargir nefndu þá Borgar- fjörð. En hvað þótti ykkur mest um vert á ferðalaginu? „Viðmót og hlýju fólksins, sem við kynntumst,“ sögðu þeir allir. Enda þótt þessi frásögn sé orðin nokkuð löng hjá mér, hef ég hlaupið yfir margt, sem var frásagnarvert, enda mun til standa, að nákvæmari frásögn verði birt annars- staðar, á vegum Búnaðarsambands Austur- lands. Ragnar Ásgeirsson.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.