Freyr - 01.12.1954, Síða 32
380
FREYR
Frá móti Landssambands hestamanna á Þveráreyrum t Eyjafirði þ. 7—11. júli 1954. — Ljósm. V. Sigurgeirsson.
Gunnar Bjarnason, hrossaræktarráðu-
nautur, Jón Jónsson, bóndi, Hofi Skagafirði,
Símon Teitsson, Borgarnesi, Bogi Eggerts-
son, Reykjavík, Jón Pálsson, dýral. Selfossi.
Hrossin voru dæmd eftir dómstigum
þannig:
1. Fyrir byggingu:
a) Höfuð, háls og yfirsvipur 35 stig
b) Samræmi í líkamsbyggingu 35 —
c) Fætur, hófar og fótstaða 30 —
Samtals, hámark 100 stig
2. Fyrir reiðhestshæfileika:
a) Fetgangur ................... 20 stig
b) Tölt ........................ 50 —
c) Brokk ....................... 30 —
d) Skeið ....................... 50 —
e) Stökk ....................... 40 —
f) Vilji ....................... 70 —
g) Geð ........................ 40 —
Samtals hámark 300 stig
3. Fyrir afkvæmi
(fullorðnir stóðhestar):
a) Fyrir byggingu .............. 30 stig
b) Fyrir reiðhestshæfileika .... 30 —
c) Fyrir kynfestu .............. 40 —
Samtals hámark 100 stig
Röð hrossanna verður samkvæmt reikn-
uðum stigafjölda. Aðeins fullorðnir stóð-
hestar keppa með afkvæmi á sýningunni.
Verða hrossin nú talin í flokkum og röð
eftir stigafjölda.