Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1954, Síða 43

Freyr - 01.12.1954, Síða 43
FREYR 391 Óhæf húsmóðir er hvorki meira né minna en ó- gæfa hverjn heimili. I hennar höndum evðist allt, sem maðurinn vinnur fyrir og oft mikiu meira, án þess að henni sé nokkurn tíma ljóst, að það sé henn- ar sök, af því undirbúningsmenntun hennar og upp- eldi á sviði hagsýni hefur verið gjörsamlega vanrækt. Éf til vill var hún uppalin á heimili þar sem aðeins drengjunum var veitt teljandi menntun. Stúlkur geta alltaf unnið fyrir sér — —, já, en hvernig? Við megum ekki gleyma hagnýtri menntun þeirra. Séu þær hálft eða heilt ár í vist, einn vetur í húsmæðraskóla, læri þær ögn að sauma og að hafa glöggt yfirlit yfir hagnýtingu auranna sinna, þá ferst þeim aldrei illa. í húsmæðrafélögunum höfðum við síðastliðinn vetur nokkrar ungar stúlkur, sem færðu reikninga yfir heim- ilishaldið. Þátttakan var frjáls. Til þess að fá ofurlitla yfirsýn um hugmyndir gagnvart framtíðarheimilum þeirra sjálfra, voru þeim gefin nokkur verkefni til úr- lausnar. Einu átti að gera grein fyrir hvers hún óskaði af vefnaðarvörum til að stofna heimili. Önnur hvaða húsgögn hún vildi kaupa, ásamt eldhúsáhöldum og húsbúnaði; verðið skyldi tilgreint og svo að lokum til- greint hvað hægt væri að láta sér nægja. Svörin voru eins og hér segir: Get látið Óskir mér nægja Vefnaðarvörur .............. 12-278 kr. 2.412 kr. Húsgögn, eldhúsáhöld, húsbún- aður..................... 16.992 — 4.536 — Það skal tekið fram, að jafnvel við hærri upphæðirnar voru engar ósanngjarnar óskir festar á blöðin. Hvaðan eiga þessir peningar að koma, — jafnvel lægri upphæðirnar, ef aldrei er sparað? En það eru ekki margir sem spara nú, því að allur þorri fólks segir, að það borgi sig ekki að spara. Það er ef til vill rétt, að þeir þurfi ekki að spara í þessu skyni, sem fá upp í hendurnar hús og heimili, en sparnaður er eina úrra'ðið hjá því fólki, sem er eignalaust. Auk þeirra talna, sem þegar eru greindar, getði 17 ára stúlka grein fyrir árlegri þörf til fatnaðar. Upp- hæðin nam 643 krónum. Hún var skynsamleg og með öllu án íburðar, en hve margar húsmæður hafa svona háa upphæð til umráða árlega til eigin klæðnaðar fyrstu hjúskaparárin? Húsmóðir nokkur sagði við mig nýlega: Vitið þér eiginlega hve lítið það er, sem húsmóðirin verður að láta sér nægja til eigin fatnaðar fyrstu árin eftir stofnun heimilisins? Ég hef reiknað út, að af umræddum ungum stúlkum höfðu 3 sparað kr. 800.00 samtals á einu ári við að sauma öll fötin sín sjálfar. Einni af stúlkunum reiknaðist, að barnafatnaður á- samt útbúnaði og vagni, kosti kr. 600.00 kr. Þelta er ekki há upphæð, en þó allstór póstur fvrir efnalitla. Og svo ber að minnast þess, að enginn getur lifað af að fá óskir uppfylltar. Það þarf efni í (laglegt fæði og það kostaði í dönskum sveitum kr. 2.65 daglega á mann síðastliðið ár, breytilega frá 1.82 til 4.10 kr. eftir kröf- um fólksins. Allt þetta fjármagn hafa húsmæðurnar til ráðstöf- unar. Það eru þó ekki ákveðnar upphæðir. Hagsýn húsmóðir eyðir litlum fjárhæðum, en hjá þeirri óhag- sýnu getur eyðslan orðið óstjórnleg, ef hana skortir skilning á hlutverki sínu og hún sökum ófullnægjandi undirbúningsmenntunar ræður ekki við þau hlutverk, sem hún hefur tekið að sér. Bóndinn, sem sér fyrir peningunum, reynir stundum að takmarka eyðsluna með því blátt áfram að skammta henni peningana og telur jafnvel tvíeyringana í hend- ur lienni, án þess að þau ræðist við um hvernig fjár- munununt gæti verið skynsamlegast varið, en gagnvart heimilishaldinu stcndur bóndinn venjulega ráðþrota, fólkið verður að fá mat, mat þarf í búrið og þá ekki síður þegar það er fljótt að tæmast. * * * Ekki skal staðhæft, að konur séu að samanlögðu óhag- sýnni en karlmenn, og árangur af starfi manns og konu verður auðvitað þeitn mun betri, sem bæði eru meiri hagsýni gædd og hagnýta hana i félagi. Eðlilegt er að allir þeir, sem vinna að framkvcemdum i félagi, fái hlut sinn af ágóða starfsins, ef einhver er, þegar útgjöldin hafa verið greidd. Þegar þannig er að farið, hafa allir aðilar áhuga fyrir þvi, að af hagsýni sé unnið, svo að ágóðinn verði sem mestur. Foreldrarnir eiga að hafa börnin með i umrœðum og undirbúningi að störfum, og ketina þeim starfsaðferðir jafnskjótt og þau hafa þroska til — ekki til þess að hlaða um þau áhyggjum i þeningamálum, heldur til þess að auka þeim á unga aldri skilning á þvi, að maðurinn eigi að vera umráða- tnaður fjármuna, en ekki þræll þeirra, og samkvæmt þvi hljóti hann að skapa þá og hagnýta með fyrir- hyggju.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.