Freyr - 01.12.1954, Blaðsíða 46
FREYR
394
4
> Or Eyjafirði
Fyrri hluta októbermánaðar átti Freyr
tal við Jónas Kristjánsson, framkvæmda-
stjóra Mj ólkursamlags KEA, er tjáði, að svo
virtist, sem ávöxturinn af aukinni ræktun
bænda birtist stöðugt í aukinni mjólkur-
framleiðslu.
Til sönnunar þessu eru tölur yfir mjólk-
urmagnið, sem komið hefur til Samlags-
ins undanfarin tvö sumur, en þær voru þess-
ar um sambærilega mánuði:
Mjólk kg
1954 1953
í maímánuði 873.000 815.000
„ júnímánuði 1.023.000 917.000
„ júlímánuði 1.077.000 955.000
„ ágústmánuði 1.038.000 928 000
„ septembermánuði .. . 919.000 871.000
Tölur þessar gefa til kynna, að fram-
leiðsluaukningin er alls ekki litil og raun-
að 2.44 metrum og vinnsludýpt 30.5 sm, en
þær þurfa 80—100 hestafla dráttarafl. Fyr-
ir 54 hestafla dráttarvélar koma aðeins til
greina tætarar með vinnslubreidd 1.82 m—
2.12 m.
Það er ljóst af þeirri reynslu, sem fengin
er í vinnslu á okkar seigu mýrarjörð, að af
þeim tveimur stærðum, er verksmiðjurnar
gefa upp fyrir ákveðinn vélastyrkleika, er
hyggilegra að velja minni gerðina. Howard
Rotavator hefur beina tengingu við Cata-
pillar-dráttarvélar, en breyta verður teng-
ingunni við aðrar gerðir beltisdráttarvéla.
Vinnuafköst tætara, við hæfi heimilis-
dráttarvéla við fullnaðarvinnslu á grófherf-
uðu, plægðu landi í framræstri mýri, voru
hjá Landnámi ríkisins 4—6 klst. á hektara.
En við vinnslu á óbrotnu landi má gera ráð
fyrir, að til fullnaðarvinnslu á hektara á
sæmilegum jarðvegi fari vart minna en 16—
20 stundir. Landnám ríkisins hefur fengið
tætara fyrir beltisdráttarvél, sem þó varð
ekki tekinn í notkun í haust vegna ótíðar,
og mun reynslan næsta vor skera úr um
hvernig hann gefst við íslenzka staðhætti.
verulega meiri en vænta mátti, þar eð sum-
arið norðlenzka var kalt og sólarsnautt og
ekki hagstætt nautpeningi, einkum þó
vegna þess, að grös trénuðu snemma.
Jónas undirstrikaði þá staðreynd, sem
flestir eru á eitt sáttir um, að í Eyj afirði séu
sumarhagar sauðfjár mjög takmarkaðir og
í sumum sveitum þegar fullsetnir, svo að
naumast verði þar við bætt, nema leita
nýrra úrræða um sauðbeit, en þar er um að
ræða atriði, er brjóta verður til mergjar og
finna viðeigandi úrlausnir hið fyrsta. Ár
frá ári aukast ræktuðu löndin í Eyjafirði.
Eftirtekja eftir hverja flatareiningu rækt-
aðs lands er yfirleitt meiri en landsmeðal-
tal og fer einnig vaxandi með aukinni
áburðarnotkun.
Það getur varla orkað tvímælis, að nokkr-
um hluta fóðuraukans verður að breyta í
kjöt og er ekki því að neita, að víða um
Eyjafjörð er framleiðsla nautakjöts eins
líkleg og lambakjötsframleiðsla, en þá
vantar bara stofn, sem gefur meira og betra
kjöt en sá, sem eyfirzkir bændur hafa nú.
imimiimiiimiiimiiiii 1111111111111111 iii iiiiiiMiimiiiiiiiimiiiiimiimiimimmiiii
| Gúmmí-básadýnur |
i Hér á landi er nú fengin 6 ára ágæt |
1 reynsla á gúmmí-básadýnum. Allir i
| bændur, sem fengið hafa þær undan- i
I farin ár, ljúka lofsorði á þær.
i Lýsingu á gúmmídýnunum er að finna i
| í „Frey“, nr. 18—19, 1953.
i Allar nánari upplýsingar veitir um- i
| boðsmaðurinn:
Björn Kristjánsson
HEILDVERZLUN
i Garðastr. 6, Reykjavík. — Sími 80210. i
Tmiiimiiiiiiiiiiiimiiiiimmiiiimiimiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimmmiimm