Freyr - 01.12.1954, Síða 47
FREYR
395
Veðráttan.
Svo sem allar fréttir hafa borið með sér
af Norður- og Austurlandi norðanverðu,
var septembermánuður einstakur kulda- og
stirðviðrismánuður. Varð meðalhiti mán-
aðarins til dæmis 2.1° lægri hér á Akur-
eyri en í meðalári. — Segja má, að þurrk-
dagur hafi varla komið í mánuðinum nema
einir tveir um réttaleytið, og nýttust þeir
þá ýmsum illa vegna réttaferða. Ekki var
stórúrkomusamt, en hretviðri alltíð og í
gangnabyrjun gerði allmikið snjóakast til
heiða og fjalla, svo að sumir fjallvegir
tepptust og alhvítt varð í byggðarlögum
víða. Sérstæðast verður þó að teljast við
veðráttu septembermánaðar hin miklu
frost, er gerði upp á þetta snjóakast og þó
einkum undir lok mánaðarins (aðfaranótt
27.). Komst frost á Akureyri t. d. upp í
10°, en í Villingadal í Eyjafirði fram mæld-
ist 13° frost, og á Grímsstöðum mun frost
hafa komizt í 17°. Telja eldri menn og
fróðir, að slíkum gaddhörkum muni þeir
varla eftir í september. Mikil hey voru úti
í mánaðarlokin allvíða, en sérstaklega þó
um norðausturhluta landsins, og kartöflur
sátu niðri í görðum hjá mörgum. Var ótt-
ast, að þær hefðu stórskemmzt eða jafnvel
ónýtzt með öllu.
Með októberbyrjun gekk hin langsama
norðaustanátt niður og rann suður fyrir.
Hefur síðan verið suðlæg átt með 4—7
stiga hita, en rysjótt norðanlands og
stórviðrasöm sunnan. Snjór hefur horfið
úr byggð alls staðar hér um slóðir, en fjöll
eru hvít og heiðar kápóttar af snjóhrafli.
Hey munu nú víðast alhirt, þakkað veri
sunnanáttinni, og kartöflur hafa mjög
náðst úr görðum, víðast miklu minna
skemmdar en óttast var.
Þrátt fyrir fremur óhagstætt sumar og
mjög erfitt haust norðanlands er heyfeng-
ur bænda yfirleitt talinn allgóður, sums-
staðar ágætur. Kartöfluspretta er sögð í
meðallagi, en dilkar leggjast illa eftir
sumarið. Munar víðast um 1—2 kg á með-
alvigt frá í fyrra.
Með októberbyrjun snerist til sunnan-
áttar og var um 10 daga skeið suðlæg átt
með 4—8° hita, en rysjótt norðanlands og
stórviðrasöm sunnan. Snjór hvarf alls
staðar úr byggð norðanlands, en fjöll héld-
ust hvít og heiðar snjókápóttar. Hey náð-
ust alls staðar inn eða að minnsta kosti
víðast, og kartöfluuppskeru lauk, en sums
staðar þótti þó ekki svara kostnaði að
taka upp sökum frostskemmda, annars
staðar reyndist nær helmingur uppskeru
ónýtur, en víðar voru þó skemmdir af
völdum frosta minni en menn höfðu óttast.
Þrátt fyrir óhagstætt sumar og mjög
erfitt haust norðanlands, er heyfengur
bænda yfirleitt talinn allgóður. Kartöflu-
uppskera reyndist um meðallag, þar sem
ekki spilltu frost til muna. Afurðir sauð-
fjár reynast í rýrara lagi. Leggjast dilkar
yfirleitt fremur illa, svo að víða munar um
1—2 kg á meðalvigt frá því í fyrra.
í síðastliðinni viku var enn norðanáttin
ríkjandi um allt land, en hæg og aðgerðar-
lítil, a. m. k. inn til byggða, og um helgina
birti til og er nú aftur komin suðlæg átt,
hve langæ, sem hún reynist.
(Alþýðumaðurinn 19. okt. 1954).
L