Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2005, Síða 40
i—* s t , i i
rY^ttcmxm Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^nafnleyndar er gætt. jQjQ Q Q Q r) Q
SKAFTAHÚÐ24,105REYKJAVÍK [STOFNAÐ 1910] SÍMIS505000 5 690710 TÍTÍ17
• Bókabrenna Eddu,
sem er í eigu Björgólfc
Guðmimdssonar, á
tveimur síðum úr öll-
um eintökum fyrstu
útgáfu bókarinnar um
Thorsarana eftir Guð-
mund Magnússon sagnfræðing
virðist ekki hafa orðið til þess að
minnka áhuga almennings á
þessari sögufrægu ætt. Bókin
fékk mikla umfjöliun eftir förg-
un fyrstu útgáfu og það hefur
skilað sér í mikilli sölu. Bókin
var meðal annars í þriðja sæti
metsölulistans sem DV birti í
síðustu viku. Reyndar hefur DV
íjallað ítculega um efnið sem
vantaði í aðra útgáfu þannig að
enginn hefur
misst af neinu í
yfirgripsmikilli
sögu Thors-ætt-
arinnar...
Hvenær skrifar
hann um Björgólf?
[
Halle Berry
Féll fyrir íslenska
bláberjaskyrinu
og borðar það
helst uppi i rúmi.
[
______ -SÍRÍUS"
Gamla, goöa
suðusúkkulað-
ið Umbúöirnar
slógu i gegn I
Bandar/kjunum.
Baldvin Jónsson Óþreytandi
við að koma islenskum vörum
i bandarískar búðahillur
Suðusúkkulaðið frá Nóa Síríus er
að slá í gegn í Washington DC. Fyrir
nokkrum dögum var suðusúkkulað-
inu komið í sölu í fjórum sælkera-
verslunum í höfuðborg Bandaríkj-
anna og innan tíðar verður
súkkulaðið boðið í íjórtán verslun-
um í borginni.
„Þetta er gamla, góða
suðusúkkulaðið í smjörpappírs-
pakkningunum. Það voru umbúð-
irnar sem gerðu útslagið. Verslunar-
stjórarnir féllu fyrir þeim,“ segir
Baldvin Jónsson, sem lengi hefur
unnið að því að koma íslenskum
matvælum í bandarískar verslanir,
og nú síðast suðusúkkulaðinu.
„Suðusúkkulaðið er boðið í
þremur mismunandi útgáfum, eftir
styrkleika súkkulaðisins," segir
Baldvin en verslanimar sem hér um
ræðir heita Whole Foods Markets og
em víðfrægar sælkeraverslanir. Þar
hefur íslenskt lambakjöt einnig ver-
ið til sölu svo og íslenskt smjör og
skyr.
„Við höfum lent í vandræðum
með skyrið vegna þess að bandarísk
tollayfirvöld vilja flokka það með
ostum. Þetta er vandmeðfarin vara
sem flogið er með út vegna lítils
geymsluþols. Ef skyrið verður flokk-
að með ostum verðum við að komst
inn í ostakvóta sem er ekki auðvelt,"
segir Baldvin.
Athygli vakti á sínum tíma þegar
stórstjarnan Halle Berry fékk skyr í
eftirrétt á veitingahúsi í Washington.
Hreifst hún mjög af skyrinu sem
framreitt var með bláberjum, og
hafði á orði að það væri kynæsandi.
„Við erum nú að kynna íslenska
smjörið fyrir bökumm hér úti en
bakarí em í öllum þessum sælkera-
verslunum.
Sannleikurinn
er sá að betra er
að baka upp úr
íslensku smjöri
og sjá bakararn-
ir strax hversu
stökkara brauð-
ið verður. Þá em matreiðslu-
menn hér spenntir fyrir að
steikja upp úr fslenska smjörinu
þar sem það brennur ekki og
gefur aðra áferð,“ segir Baldvin
Jónsson, bjartsýnn og ánægð-
ur og elcki síst með að hafa
komið íslenska suðu-
súlckulaðinu f verslanir ytra.
Aðalflutningar
HVERGI
UEGRA VERÐ
Oryggi alla leið
Gleðileg jól.
Við þökkum viðskiptin
á árinu sem er að líða.
OPIÐ TIL KL. 18.00 FRAM AÐ JOLUM
Vatnagörðum 6 • S. 581 3030 • Fax: 417 2564 * adaleg@simnet.is