Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2005, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2005, Blaðsíða 27
DV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 27 Lesendur Þroskaþjalfmn segir: Ingveldi Sigurðar- dóttur finnst við hafa misstaftilgangi jólanna. Lesendur Baldvin Þorsteinsson EA á strandstað Heimildamyndin um strand togarans sagði ekki alla söguna. Að mati Valgeirs var frekar um lofsöngyfir Samherjamönnum að ræða. mér. Það er alveg með eindæmum hvernig hægt er að fara með þetta í ríkisfjölmiðla. Það sem átti að vera heimildamynd um atburðinn, ekki lofsöngur fyrir Samherja. hafi verið með Apollo 17 var síðasta opinberlega för Apollo farin í júlí 1975 þegar eitt geimfar úr Apollo- línunni tengdist hinu sovéska Soyuz 19 á braut um jörðu. Það var söguleg stund og því vel viðeigandi að Apollo-farið sem fór fyrst til tunglsins skildi eftir fána með áletr- uninni: Við komum í friði fyrir allt mannkyn. Njótumjólanna Nú er tími mikilla anna á öllum sviðum vegna jólanna. Við megum bara ekki láta tilstandið fara með heilsuna, jólin koma þótt það sé ekki allt nýmálað eða hreingert. Ég man eftir jólum eins og sýnd eru í auglýsingunni frá VR, þar sem for- eldrarnir eru alveg útbrunnir. í þá tíð þurfti að sauma allan fatnað á íjölskylduna heima fyrir og ekki hægt að kaupa fötin tilbúin eins og nú er. Ég hef oft hugsað um það hvemig móðir mín gat afkastað því sem þurfti - að gera með miklu minni tækjum og tólum en til em nú til dags. Það var til dæmis mik- ill munur þegar pabbi minn kom með mótor til að setja við hand- knúnu saumavélina. Þá þurfti ekki að snúa lengur. Við börnin vorum ansi ung þegar við þurftum að hjálpa til við heimilishaldið, bæði úti og inni en við áttum heldur ekki eins mikið dót eins og börn í dag. Enda voru jólagjaflrnar ekki þess konar. Börn þurfa að vita hvað heimil- ishald er og vinna með á heimif- inu. Það eykur þroska þeirra og fyllingu lífs þeirra. Að vera þátttak- andi í undirbúningi jólanna færir börnin nær tilgangi hátíðarinnar. Ég vona að við, borgarar þessa lands, berum gæfu til að gleðja ná- ungann um jólin og njóta samvista við fjölskyldu og vini án þess að þurfa að vera rúmlega hálft árið að borga af kreditkortinu, það getur verið mjög erfitt. Hugurinn er meira en helmingurinn af gjöfinni. Þess vegna þarf svo lítið til að gleðja aðra með. Á jólunum viljum við njóta firiðar, birtu og kærleika sem að mínu mati er boðun þess- arar hátíðar. Ég óska öllum landsmönnum Guðs blessunar og gleði á jólum. Síðasta tunglferðin endar Á þessum degi árið 1972 lauk tunglferðum Bandaríkjamanna þegar þrír síðustu tunglfaramir lentu í Kyrrahafinu heilu og höldnu. Apollo 17 hafði verið skotið upp frá Canaveral-höfða á Flórída tíu dögum fyrr. Það var fyrst í júlí árið 1969 sem NASA tókst að uppfylla markmið Johns F. Kennedy um að koma mönnum á tunglið með Apollo 11 farinu. Á milli 1969 og 72 voru sjö tunglferðir farnar. í sex tilvikum heppnaðist förin vel en í einni ferð- inni var hætt við vegna bilunar. At- vikið varð frægt með myndinni sem nefnd var eftir ferðinni, Apollo 13. Ein frægasta setning kvilonynda- sögunnar er einmitt úr henni: „Houston, we have a problem." Met var sett í síðustu ferðinni þegar geimfararnir Eugene A. Cern- an og Harrison H. Schmitt dvöldu í alls 75 klukkustundir á tunglinu. Þeir óku um á sérgerðu ökutæki sínu, Lunar Rover, og söfnuðu um 112 kílógrömmum af steinum og sandi. Náttúrugripasafn íslands hefur hluta þess að geyma. Þrátt fyrir að síðasta tunglferðin Úr bloggheimum Eithvað jákvætt „Þáerþað orðið Ijóst að ég mun þurfa að taka eina pásuna í viðbóten það ernú sem betur fer þannig að það er alltafhægt að sjá eitthvað jákvætt við allt. 1 ó.janúar eða eftir ca. mánuð ætti þetta meiðsladæmi að vera horfiö að ei- llfu, allavega trúi ég því og það ernú með flest f þessu iifi að það sem maðurætlar sér og ímyndar mun gerast. Lykillinn af þvl er bara að trúa þvf sem maður er að gera og þegar þú hefur náð tökum á þvl muntþú notast við þetta alla ævi, trúið mér. En þetta er kannski frekar erfitt aö útskýra og er auðvita best að hver og einn finni sina leið i þessum málum'en ég er bara svona rétt að brýna fyrirykkur mikil- vægiþess." Logi Geirsson - logi-geirsson.de Ég er að verða gam- all „Ég leit upp úr bók- unum I dag og fór á bæjarrúnt með Rut og Hrafnhildi. Notaði tímann til að fá mér jóla- og afmælisklipping- una á Nansensgade. Svo sem ekki I frá- sögur færandi, ágætis klipping og allt það.Hins vegar þegar að steipan er búin að klippa og er aö klina vaxi í hárið ámér þá spyr hún:„Á ég ekki að snyrta á þér augabrúnirnar?".„Ha... þarfþess? Jú jú, það má alveg", sagði ég frekar hikandi. Vá, hundgamall, næst verður mér boðið að láta klippa úr eyrunum! Pabbi er sko nýbyrjaður að ieyfa kellunum að snyrta á sér brúnirnar. Svo tók ég líka eftir nokkrum gráum hárum í augabrúnunum! Rosaleg t. Ég má nú samt eiga það að þær hafa aldrei verið flottari!" nemendur.ru.is/rut01/ Svindlað á Grænlandi „Að sitja á hótelherbergi f Grænlandi. Með far- tölvu og msn. Hlaupa- nótu dagsins á rúv í vefútvarpinu. Manni líðurdálítiðeinsog maður sé að svindla. Á Grænlandi eiga menn að vera í slæmu simasambandi. I óvissu um ferð- ina heim. Helfrosnir frá hvirfli tilylja. Sem betur fer er mér ekki kalt og simasam- bandið er ágætt. Ferðin heim er hins veg- arannað mál." Wlhafnarfjordur.blogspot.com/ Valgeir Sigurðsson hringdi: Ég horfði á heimildamyndina um björgun togarans af sandinum í gær- kvöldi [fyrrakvöld] í Sjónvarpinu. Hún var um þegar Samherjatogar- inn strandaði og var svo dreginn á flot. Það skein í gegnum myndina halelúja- og lofsöngur yfir Samherja. Það er eins og þeir hafi notað ríkis- fjölmiðlana fyrir sig, það skein svo berlega í gegn. Það var til dæmis ekkert talað um aðdraganda styssins og ekki heldur rætt við skipstjórann, ekki einu sinni minnst á hann. Myndin byrjaði á að sýna skipið á síldveiðum, sýndar myndir frá vinnslu um borð og sagt hvað skipið byggi til marga milljarða fyrir þjóð- arbúið. Skipið var ekki einu sinni á sfldveiðum þegar slysið átti sér stað heldur að elta loðnu alveg upp við landsteina eins og önnur skip. Svo var ekki einu sinni sagt frá því að í kjölfar slyssins ætluðu Samherja- menn að láta skipstjórann fara yfir á annað minna skip. Þeir ætluðu sem- sagt að lækka hann í tign. Hann var toppskipstjórinn þeirra, fiskaði mest. Hann hætti frekar og gerir nú út frá Kanaríeyjum. Samherjamenn með Þorstein Má í fararbroddi fóru fyrir brjóstið á I Edwin „Buzz" Aldrin á tunglinu Fyrstu I mennirnir á tunglinu. Alls lentu sex geimför I Bandaríkjamanna á tunglinu. í dag eru liðin 38 ár frá því að lögræðisaldur var lækk- aður úr 21 ári í 20. Hann var síðan lækkaður enn frekar í 18 ár í október 1979. Selur enskum aðli íslenska hönnun „Þetta er verslun og gallerí sem selur húsgögn, lampa, listmuni og skartgripi, allt hannað af íslend- ingum," segir Magnús J. Magnús- son, eigandi Design Centre Knightsbridge í London. „Konan mín Dagmar hefur unnið með íslenskum húsgagna- hönnuðum í mörg ár í gegnum fyrirtækið Sólóhúsgögn," heldur Magnús áfram. „Við erum í raun að uppfylla draum íslenskra hönnuða og framleiðenda um að geta selt vörurnar sínar á erlend- um markaði, enda mikiu stærri en sá íslenski. Við höfum líka mikla trú á íslenskri hönnun og hand- verki og höfum séð hversu mikla athygli það fær á sýningum svo við ákváðum að slá til og opna verslun sjálf." Magnús telur íslenska hönnun ekki síðri en þá dönsku, það sé bara spurning um markaðssetn- ingu. Sem dæmi um hluti sem hafa vakið athygli í versluninni nefnir Magnús stólinn Gíraffa eft- ir hinn íslensk-bandaríska Chuck Mack ásamt rúnahálsmenum hönnuðum af Sólborgu Sigurðar- dóttur. Magnús telur framtíðarhorfur verslunarinnar á Knightsbridge mjög góðar. „Miðað við þá athygli sem við höfum fengið á þessum stutta tíma frá því að við opnuð- um. Staðsetning er mjög góð og gæti í rauninni ekki verið betri. Hérna í kring eru dýrustu fast- eignir Bretlands og það er stöðug- ur straumur af ferðamönnum. í nokkurra metra fjarlægð frá okkur „Við höfum mikla trú á íslenskrí hönnun." Harrods og Harvey Nichols, auk þess sem Buckingham Palace og Hyde Park eru í göngufæri. Ég held líka að öll umræða um við- skipti íslendinga hjálpi mikið. Fólk virðist vera mun áhugasam- ara um Island vegna þessarar miklu athygli sem Baugur, Bakka- vör og bankarnir hafa fengið. Við höfum heyrt talað um að íslend- ingar séu að kaupa England og maður finnur fyrir mikilli virðingu í garð íslendinga fyrir hvað þeir séu að standa sig vel í viðskiptalíf- eru tvær þekktustu verslanir Eng- lands, þær inu í London." llVlagnús stofnaði verslunina Design Centre Knightsbridge í Londor, fyrr á ár- inu?Hann hafði áður starfað sem sölustjóri hjá Marvis ehf. i Kópavog ■----- Ofbýður framkoma séra Flóka Péturhringdi: Mér og fólki sem ég hef talað við ofbýður hvemig séra Flóki Kristins- son kemur fram. Að leyfa ekki blessuðum börnunum að hafa sína jólasveinatrú er fyrir neðan allar hellur. Hann hefur ekki látið full- orðna fólkið í ffiði en nú eru það börnin. Hræsnin við þetta er að sjálfur kennir séra Flóki börnunum að Jesús Kristur sé til og segir börn- unum statt og stöðugt frá því. Hefur hann hitt Jesú? Svo segir hann okkur öllum að Guð sé til. Það sannar það enginn og það á lflca við um jólasveininn. Hann er bara eitt- hvað sem við höfum öll trúað á og höfðum gaman af í æsku. Það er til eitthvað sem heitir hvr't lygi og hann hefði átt að hana nota eða láta þetta liggja milli hluta. pbjóítjaldi 1leö208ntiiipisis '/■raó&imigiiyriflltaiki Jeftiri I A „Jólasvei er ekki tilf / JcmmiHuasABUfe MWUAÞtáuwmm- DV i gær Pétur vill meina að séra Flóki eigi ekki aðsegja börnum að Jesús Kristur sé til, þvíhann hefur aldrei hitt hann, eins og jólasveininn og eiga kokam Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar. Heimildamyml lofsöngur yflr Samherjamönmim jf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.