Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2005, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2005, Side 14
74 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 Fréttir DV •Ómar Ragnarsson mun segja afar fallega sögu af ástarsam- bandi foreldra sinna með Eurovision-lagi sínu í undankeppn- inni. Grétar örvars- son er Ómari innan handar við útsetningu lagsins. Þó Ómar megi heita afbragðs söngvari hefur ekki hvarflað að honum að syngja lagið, sem er dúett, sjálfur. En þó er hugsanlegt að hann komi að flutningnum, þá með því að flauta í laginu og kallast þannig á við fiðlu. Yrði það í fyrsta skipti sem flaut og fiðla heyrðist í Eurovision-keppni... •Saga Thelmu Ásdfs- ardóttur, Myndin af pabba, sem Gerður Kristný skrásetti hef- ur hitt í mark og eru um firtun þúsund eintök seld nú þegar og 4. prentun er kom- in í búðir. í það minnsta tveir aðilar úr kvikmyndageiranum hafa leitað hófanna hjá útgefanda með að gera heimildarmynd sem byggir á bók- inni. Sjá menn þá fyrir sér leikna sjónvarpsmynd í fullri lengd sem ger- ist á 8. áratugnum í Hafnarfirði. •Mjög hefur færst í aukana að menn reyni að tryggja sér kvikmyndarétt á bók- um hér á landi. Þannig er Baltasar Kormákur að undir- búa tökur Mýrar Am- aldar Indriðasonar og einnig hefur kvikmyndarétturinn af Svartur á leik eftir Stefán Mána verið keyptur. Þumalputtareglan mun sú að höf- undar fái 5 prósent framieiðslukostn- aðar í sinn hlut. Þó er sú regla teygð og toguð því ísienski kvikmynda- bransinn hefur ekki verið mjög burð- ugur fram til þessa... •Var tekið til þess meðal þeirra sem áttu leið um Lauga- veginn að kvöldi laugardags til að versla og fanga hinn sanna jólaanda, hversu fáir voru á kreiki þar meðan mollin reynast troð- full. Þó var dágóður slatti af fólki í bókabúð Máls og menningar - þar á meðal Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, eiginmaður hennar og sonur sem bar forláta hatt svo eftir var tekið. Eftir að hafa farið yfir bókaflóruna brugðu þau sér svo yfir á ölstofuna og fengu sérjólabjór... •Sonur Elínar Hirst er farinn að vinna tæknivinnu á ffétta- stofu Ríkissjónvarps- ins. Fetar Elín þar í fótspor BogaÁgústs- sonar sem réði son sinn í Popplandið... •í höfuðstöðvum NFS er nú nokkur glund- roði og þrekleysi upp að ákveðnu marki. Loga Bergmann Eiðs- syni er um að kenna því hann er búinn að fylla allar kaffivélar með kaffibaunum frá bróður sínum Frosta, með van- illubragði og koffeinlausu. Fer þetta einkum fyrir brjóstið á eldri haukum sem vilja kaffið sitt sterkt... Athygli vakti í síðustu viku að matvöruverð er 42% hærra hér á landi en í löndum Evrópusambandsins samkvæmt norrænni skýrslu. Við fengum tvær íslenskar fjöl- skyldur, í Danmörku og á Spáni, til að kaupa inn í jólamatinn. Bergljót Helga Guöbjartsdóttir Hefur búiðl Torrevieja á Spáni / nokkur ár og kvartar ekki undan verðinu þar. Matvæli eru dýr á íslandi. Það er engin nýlunda. Norræn skýrsla, sem gefin var út í síðustu viku, sýndi matvöruverð á fslandi vera 42% hærra en að meðaltali í löndum Evrópusambandsins. DV fékk þrjár fjölskyldur, í Dan- mörku, á Spáni og á Islandi, til að gera sína eigin verðkönnun og kaupa eins og fólk gerir flest inn til jólanna. Sömu innkaup í þremur löndum í forrétt er rækjukokkteill að hætti hússins. Aðalrétturinn sam- anstendur af hamborgarahrygg með því meðlæti sem nauðsynlegt er, kartöflum, rauðkáli og grænum baunum. Gosið er velkomið á borð- ið fyrir unga fólkið en rauðvín fyrir það eldra. Valið var njörvað niður á Faustino V, sem er í dýrari kantin- um erlendis, þótt litlu muni á verði þess og ódýrari vína á íslandi. Eftirrétturinn er ísterta fyrir sex og gæðakaffi. Þær verslanir sem urðu fyrir val- inu voru Nettó í Mjódd á íslandi; Netto við Amagerbrogade í Kaup- mannahöfn og Carrefour í Torre- vieja á Spáni. Verðmunurinn var sláandi. Karfan með jólamatnum kostaði 84% meira á íslandi en á Spáni og 71% meira en í Dan- mörku. Merkilegt nokk var verð- munur mestur á sveppum og rjóma. Jónína í Reykjavík „Ég versla nú ekki eingöngu í Nettó en mér finnst ieiðinlegt að versla í Bónus," segir Jónína Ár- mannsdóttir. „Það fæst kannski ekki allt sem mann vantar þar og biðrað- irnar fara soldið í mig.“ Jónína þekkir vel til verðlags erlendis því hún ferðast títt til bæði Danmerkur og Kanaríeyja. „Fósturdóttir mín býr í Dan- mörku og henni blöskrar hreinlega verðlagið hérna og við fáum að finna muninn verulega þegar við förum til Kanarí," segir Jónína. Hún bjó ásamt manni sínum Ólafi Leós- syni fyrir nokkrum árum í Færeyj- um. „Það var sko munur. Maður gat leyft sér hamborgarahrygg næstum á hverjum degi, hann var svo ódýr þar." Jólamatui JónSnu og fjölskyldu kostaöihana 5.637krónui. Guðmundur í Kaupmannahöfn Guðmundur Hrafn Arngrímsson og fjölskylda hans búa í Danmörku þar sem hann og kona hans, Sonja, hafa stundað nám. Guðmundur segist vera á leið til íslands innan Tveir ungir menn voru sýknaðir í héraðsdómi af ákæru um fikniefnainnílutning Sögðust ekki vita að flytja ætti efnin til Islands Á föstudaginn var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli tveggja ungra manna sem ákærðir voru fyrir tilraun til innflutn- ings á 137 grömmum af amfetamíni frá Kaupmannahöfn í september i fyrra. Logi Már Hermannsson var ákærður fyrir að hafa keypt amfeta- mínið í Kaupmannahöfn og komið því fyrir í geymsluhólfi á Aðaljám- brautarstöðinni. Sigfús Gunnlaugs- son var ákærður fyrir að hafa sótt efn- in til Kaupmannahafnar í þeim til- gangi að flytja þau Jiingað tii lands. Sigfús sagði að Logi hefði beðið sig um að ná í tösku í geymsluhólf á Aðaljárnbrautarstöðinni í Kaup- mannahöfn. Hann segist ekki hafa haft neinar upplýsingar um hvað var í töskunni. Sigfús fór til Kaupmanna- hafnar og komst þá að því að geymsluhólfið var tómt. Hann spurð- Kaupmannahöfn Logi Már viðurkenndi að hafa keypt amfetamínið í Kaupmannahöfn að beiðni Sigfúsar. ist þá fyrir í afgreiðslu um innihald hólfsins en var handtekinn skömmu síðar af dönsku lögreglunni. Logi, sem ákærður var fyrir að hafa keypt efnin í Kaupmannahöfn, sagði fyrir dómi að Sigfús hefði að fyrra bragði haft samband við sig vegna ferðar sem Logi ætlaði í til Danmerk- ur. Logi segir að Sigfús hafi beðið sig um að kaupa fyrir sig amfetamín í Kaupmannahöfn. Logi samþykkti að Sveinn Andri Sveinsson Varði Sigfús fyrir dómi sem endaði með sýknu. undir höndum. kaupa efnin og fékk til þess 100 þús- und krónur. Logi viðurkenndi að hafa keypt amfetamínið í Kaupmannahöfn að beiðni Sigfúsar og komið því fyrir í geymsluhólfinu. Báðir neituðu því að hafa einhverja vitneskju um að efnin hefði átt að flytja til ís- lands. Engar sannanir þóttu vera fyrir stað- hæfingum ákæru- valdsins um að efnin væru ætluð til innflutn- ings. Mennimir voru því báðir sýknaðir í héraðs- dómi af þeim ákærum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.