Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2005, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2005
Fréttir DV
Póstkassar
sprengdir
Áramótin eru að
ganga í garð
með til-
heyrandi
flugelda-
sölu og
sprenging-
um. í gær
höfðu
nokkrir
póstkassar
og blaða-
gámar verið
sprengdir
uppí
Reykjavík
með flugeld-
um. Samkvæmt upplýsing-
um frá Lögreglunni í
Reykjavík er þetta vaninn.
Sprengingarnar haldi áfram
á meðan flugeldasalan
stendur yfir. Lögreglan seg-
ist líta þessi skemmdarverk
alvarlegum augum.
Krísa hjá
Hjallatúni
Rekstrarerfiðleikar hjá
dvalarheimilinu Hjallatúni
í Vík í Mýrdal hafa orðið til
þess að sveitarstjórnin hef-
ur þurft að ábyrgjást 10
milljóna króna endurnýj-
aðan yfirdrátt fyrir dvalar-
heimilið. Ennfremur hefur
Jóni Kristjánssyni heil-
brigðisráðherra verið sent
erindi þar sem óskað er
eftir aukafjárveitingu úr
ríkissjóði vegna erfiðleika
Hjallatúns.
Áramótaheit?
Andrés Magnússon,
blaöamaöur.
„Ég hefgertþað öðru hverju
en passað að hafa það tiltölu-
lega auðvelt og ánægjulegt.
Um þessi áramót er það að
drekka meira afdýru ár-
gangspúrtvlni. Það veltur á
ÁTVR hvernig til tekst en það
mun ekki standa á mér að
strengja heitið."
Hann segir / Hún segir
„Eg geri það ekki. Ég man ekki
eftir þvi að hafa gert það og
hefþví örugglega brotið efég
hefeinhvern tíma gertþað. Ég
ætla ekki að gera það núna.
Ég hefmín markmið og þarf
ekki að setja mér neinar regl-
ur.“
Álfrún örnólfsdóttir,
leikkona.
Verktakafyrirtækið Stafna á milli hefur gengið vasklega fram í kaupum á eignum í
miðbænum undanfarið eitt og hálft ár. Athafnamaðurinn Engilbert Runólfsson,
sem er forstjóri fyrirtækisins, hefur lýst yfir hugmyndum sínum um byggja versl-
unarmiðstöð í miðbænum. Engilbert á einnig byggingarfélagið Frakkastíg ehf. en í
gegnum þessi tvö fyrirtæki á hann Hverfisgötu 55, Hverfisgötu 58 og Hverfisgötu 61
þar sem Qórir eiturlyfjaneytendur hafa látið lífið á rúmu ári.
Engill dauðans vofir yfír Hverfisgötunni þessi misserin. Fjórir
einstaklingar, sem allir voru fastir í viðjum fíkniefnanna, hafa
látið lífið í húsum í götunni undanfarið ár. Þrír þeirra, Stefán
Heiðar Brynjólfsson, Jón Ingi Tómasson og Ólöf Linda Ólafs-
dóttir, létust af of stórum skammti eiturlyfja en sá fjórði, Bragi
Halldórsson, var myrtur af Sigurði Frey Kristmundssyni í ágúst-
mánuði á þessu ári. Hinn umsvifamikli athafnamaður Engilbert
Runólfsson er eigandi þessara þriggja húsa í gegnum tvö fyrir-
tæki sín.
Athafnamaðurinn og bygginga-
verktakinn Engilbert Runólfsson
hefur verið áberandi að undan-
förnu. Miklir uppgangstímar hafa
verið í byggingariðnaðinum og
hefur Engilbert ekki farið varhluta
af því. Hann býr í glæsilegu einbýl-
ishúsi að Eikarási 7 í Garðabæ,
byggði stórhýsið sem Avion Group
á í Hlíðasmára og hefur verið öfl-
ugur í að kaupa fasteignir á Hverf-
isgötu og Frakkastíg. Auk þess á
hann fjölda fasteigna í gegnum
óteljandi eignarhaldsfélög vítt og
breitt um landið.
Dæmdur fyrir
dópsmygl
Engilbert hefur
farið um langan veg
frá því að hann var
dæmdur til þriggja
ára fangelsisvistar í
Hæstarétti árið 1996
fyrir að reyna að
smygla 313 grömm-
um af amfetamíni til
landsins ásamt fé-
laga sínum frá
Hollandi. Félagi
hans reyndi að
smygla dópinu en
Engilbert viður-
kenndi að hafa
keypt efnið. Eftir að
hann kom út hófst hann handa við
að byggja og hefur náð að koma
upp einu mesta veldi í byggingar-
iðnaðinum á íslandi.
Dauðahúsin þrjú
Engilbert hefur eins og áður
sagði verið afar duglegur við að
kaupa eignir við Hverfisgötu og
Frakkastíg. Hann ætlar sér að
byggja verslunarhúsnæði eins og
hann lýsti í viðtali við DV f haust
þar sem hann sagðist ætla að
byggja 3000 fermetra húsnæði
Þrjú afþeim húsum
sem Engilbert á eru
hin svokölluðu
„dauðahús" á Hverfis-
götu, hús númer 55,
58 og 61. íþessum
þremur húsum hafa
fjórir lánlausir ein-
staklingar dáið.
strax og leyfi feng-
ist. Þrjú af þeim
húsum sem Engil-
bert á eru hin
svokölluðu
„dauðahús" á
Hverfisgötu, hús
númer 55, 58 og61.
í þessum þremur
húsum hafa fjórir
lánlausir einstak-
lingar dáið. Verk-
takafyrirtæki Engil-
berts, Stafná á milli,
á Hverfisgötu 55 og
61 en byggingarfé-
lagið Frakkastígur
ehf., sem Engilbert
er einnig aðili að, á Hverfisgötu 58.
Kannast ekki við neitt
Engilbert vildi ekki kannast við
að koma nálægt byggingarfélaginu
Frakkastíg ehf., sem á Hverfisgötu
58, þegar DV hafði samband við
hann í gær. Samkvæmt Gunnari
Þórðarsyni, sem seldi Frakkastíg
ehf. íbúð á Hverfisgötu 58, sáu Þor-
geir Jósepsson, framkvæmdastjóri
Stafna á milli, og títtnefndur Engil-
bert um kaupin fyrir hönd Frakka-
stígs ehf. Þegar Engilbert var
Hverfisgata 55 Stefán Heiöar Brynjólfsson lést eftir aö hafa tekiö ofstóran skammt af
Contalgeni. Hann fannst látinn i risi hússins. Fyrirtæki tengt Engilberti á húsiö.
Hverfisgata 58 Sigurður Freyr Kristmundsson myrti Braga Halldórsson meðhnlf. Félag tengt
Engilberti á húsiö.
Eikarás 7 !þessu glæsilega húsi iGarðabæ
býr Engilbert ásamt fjölskyldu sinni. Húsið er
skráð á fyrirtæki hans, Stafna á milli.
Hverfisgata 61 SambýlisfólkiðJón Ingi
Tómasson og ÓlöfLinda Ólafsdóttir fundust
látin afofstórum skammti afeiturlyfjum.
Fyrirtæki tengt Engilberti á húsið.
verktak■
Engilbert Runólf
frú á góðri stund
Dópsmyglarinn og
inn Engilbert á öll þ
„dauðahúsin" á Hvt
spurður af hverju hann hefði verið
að vasast í viðskiptum sem kæmu
honum ekki við var fátt um svör.
„Ég vil ekki tala við ykkur," sagði
Engilbert áður en
hann skellti á ? ”7
blaðamann.