Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2005, Síða 12
12 FÖSTUDACUR 30. DESEMBER 2005
Fréttir DV
Myrtur fyrir aö ávarpa ekki morðingja rétt
Lögreglan í Kópavogi handtók Víetnamann Phu Tién Nguyen
sunnudagskvöldið 15. maí eftir að hann stakk mann til bana og
særði annan í matarboði sem endaði með skelfingu. Phu var úr-
skurðaður í tveggja mánaða gæsluvarðhald. Hann var talinn
hættulegur samfélaginu enda var morðið hrottafengið.
Deilur kviknuðu á milli Phu og
Vu Van Phong sem var drepinn
vegna þess að hann ávarpaði hann
ekki rétt. Mun það vera hluti af
ævafornri hefð í Víetnam þar sem
menn eru tilbúnir að drepa ef heið-
ur þeirra er í veði.
„Hurðin inn á klósett-
ið var lokuð en ég
heyrði að það var eitt-
hvað á seyði."
Blæddi út á ganginum
Vu var stunginn af Phu inni á kló-
setti í veislu í Kópavogi. Þeir rifust
við matarborðið og á einum tíma-
punkti fékk Vu nóg og strunsaði inn
á klósett. Phu fylgdi þá fast á eftir og
urðu gestir ekki varir við nein átök
fyrr en of seint. „Hurðin inn á kló-
settið var lokuð en ég heyrði að það
var eitthvað á seyði,“ sagði vinur
þeirra sem kom inn á klósett og sá
Phu stinga Vu. Fleiri komu inn á kló-
sett og reyndu að stöðva Phu sem
var trylltur, að lokum tókst þeim að
koma honum frá og bera særðan Vu
fram á gang. Honum blæddi út á
miðjum ganginum á meðan þau
biðu eftir sjúkrabíl.
Söfnuðu fyrir ekkju
Vu lét eftir sig konu og tvö börn.
DV fór í söfnun fyrir hana svo hún
gæti grafið mann sinn úti íVíetnam.
DV tókst að safna ríflega tveimur
milljónum fyrir ekkjuna og gerði það
henni kleift að fara með mann sinn
og borga kostnað sem þurfti að
leggja út vegna sviplegs fráfalls Vu.
Phu var dæmdur í Héraðsdómi
Reykjavíkur í 16 ára fangelsi.
Vu Van Phong Lét
eftir sig eiginkonu
og tvö börn.
lyptupfypirað
[ Phu Tién Nguyen
Myrti Vu á
hrottafenqinn hátt.
Frægasti glæpamaður ísiands, Lalli
Johns, ihugaði að höfða mál gegn leik-
stjóranum Þorfinni Guðnasyni en hann
var sagður hafa féflett
■ Lalla. Mál-
DV greindi frá því að Atli Helgason,
Pdæmdur morðingi og
fangi á Litla-Hrauni,
hefði sést á bensinstöð
þarsem hann dældi
bensini á bílinn og
keypti Bragðaref. Atli
útskýrði fjarveruna frá
fangelsinu þannig að
hann hefði fengið
bæjarleyfi til að fara i
jarðarfjör ömmu
sinnar.
ið var heimildarmynd Þor-
finns um lifLalla. Þorfinnur átti
að hafa gert munnlegan samn-
ing við Lalla um hlutdeild i
hagnaði myndarinnar og síðar
skriflegan samning. Hvorugt var
staðið við og barðist lögfræðingurinn
Páll Arnór Pálsson fyrirþví að Lalli
fengi borgað.
Jón Ásgeir Jóhannesson ætlaði sér að
keppa við Islandsvininn Quentin Tarantino
og fleiri stjörnur i hinum fræga Gumball
3000 kappakstri. Kappinn hafði greitt
nokkrar milljónir króna iþátttökugjald en
hætti við á siðustu stundu og sendi frænd-
ur sina i staðinn. Þeir Vilhjálmur og Jón
Þór Einarssynir fengu lánaða Aston Mart-
in-bifreið Jóns Ásgeirs og brunuðu um
heiminn.
DV greindi frá þvi að Davið Garðarsson,
gömul fótboltakempa og margdæmdur
fikniefnasali, var dæmdur í Héraðsdómi
Reykjavikur fyrir að nauðga hrottalega
konu á þritugsaldri. Davíð fékk óvenju
þungan dóm en hann var dæmdur i
tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi.
Ástþór Magnússon trylltist í Héraðsdómi
Reykjavíkur og veittist að Ijósmyndara með
Hunts-tómatsósubrúsa og sprautaði á bæði
Ijósmyndara sem og húsakynni. Ástþór sem
virðist kunna þvi illa að tekin sé mynd af
honum hafði áður veist að Ijósmyndara og
var fyrir héraðsdómara vegna skemmda
sem hann olli á digital-myndavél Snæfríðar
Ingadóttur.
Þrettán ára tviburar hrelldu sex ára dreng
jfjj allhressilega þegar þeir læstu hann ofan i
ruslatunnu og létu hann dúsa þar í klukku-
stund. Drengurinn fannst fyrir einskæra
\ heppni þegar tvær konur á kvöldgöngu
urðu hans varar. Móðir drengsins sakaði tví-
: burana um morðtilraun á meðan móðir
þeirra sagði að þeir væru eins og englar en
ffji þeir eru alræmdir i hverfinu
samkvæmt heimildum
Jón Óskar Isleifsson, ein-
lægur aðdáandi Eiðs
Smára, bauð 800 þúsund
krónur i íþróttatreyju Eiðs
Smára á netuppboði til
styrktar Hjartaheill, kom
svo i Ijós að Jón er mis-
þroska og hafði alls ekki
efni á treyjunni. Uppboð
eru bindandi en Eggert
Skúlason varaformaður
Hjartaheillar lét málið
niður falla þegar kom í
Ijós hvernig ipottinn var
búið.
Selma Björnsdóttir tapaði eftir-
minnilega í Eurovision en búningur- fk
inn sem hún klæddist vakti þó enn
meiri athygli. Hann minnti óþyrmi-
lega mikið á búninga indverskra
magadansmeyja en sumir sögðu
hann líkjast slökkviliðsbúningi. App-
elsinugul hetta sem fylgdi búningn-
um átti að fjúka afi atriðinu en það
reyndist ganga erfiðlega, það gekk
þó upp á lokakvöldinu en hún féll
samt i undankeppninni.
Ekki nol..
hettuna'j
Unnur Birna komst í fréttir og ekki að ástæðu- S
lausu. Hún var að fara á fyrstu næturvaktina sina \
sem landamæravörður i Leifsstöð þann 4. júni.
Unni fannst búningurinn flottur en hafði engan /
handtekið enn sem komið var. Hún var í sumar- T
starfí og sagðist vonast eftir að handtaka einhvern sem gerst
hefði brotlegur. Hvort handtaka hafi átt sérstað er rikis-
leyndarmál. Unnur upplýsti þó að sætir strákar væru í lögg-
unni og að hún hefði meðferðis handjárn, táragas og kylfu.
Einar Ágúst Víðisson hefur verið töluvert i
umræðunni. Ekki afgóðu. Hann var dæmd-
ur í héraðsdómi 7. júní fyrir aðild að Detti-
fossmálinu. Eftir handtökuskipun vegna
skróps í vitnaleiðslum fannst hann. Með DV
fyrir andlitinu við dómsuppkvaðningu fékk
hann þriggja mánaða dóm.
Kristinn Óskarsson nauðgaði fyrrverandi
kærustu sinni á hrottalegan hátt. Glæpur
Kristins vakti mikinn óhug i samfélaginu.
Hjúkrunarfræðingurinn sem tók á móti
fórnarlambi Kristins sagði áverkana hafa
verið svo mikla að þetta hefði verið eitt
það hrikalegasta tilvik semhún hefði séð á
neyðarmóttöku. Kristinn fékk fjögurra og
hálfs árs dóm iHæstarétti. Hann slapp út i
byrjun júni og flúði til útlanda.
Þjóðin ætlaði að verða vitlaus. Fótbolta-
stúlkur fjölmenntu fyrir utan 101 hóteii
Reykjavik, stóð á forsiðu DV þann dag.
Fleiri biðu eftir Beckham. Fjölmiðlar lands-
ins fjölmenntu á 101. Beckham kom þó
aidrei, eða lét i það minnsta ekki sjá sig.
Undir hamingjusömu yfírborði í Smáíbúða-
hverfinu ríkti ótti og reiði meðal íbúa.
Ástæðan varsú að i hverfinu bjó giftur
þriggja barna faðir sem hefur hrellt ibúa i
hverfinu um árabil. Maðurinn var ákærður
fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum í
hverfinu, meðal annars gegn sinni eigin
dóttur. Blaðamaður DV sótti barnaniðing-
inn heim og var hann þá atvinnulaus og sat
heima iþunglyndi. Hann viðurkenndi að
hafa misnotað stúíkurnar.