Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2005, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2005, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2005 Helgarblaö 1>V Halla Margrét Árnadóttir sópansöngkona er á landinu yfir jól og áramót. Hún er búsett ásamt eigin- manni og dóttur í Parma á Ítalíu, en dóttirin Guðfinna mun fermast hér heima í byrjun janúar. Halla Margrét ætlar líka að nota tækifærið og leyfa íslendingum að heyra hvað hún syngur undravel og koma fram á tónleikum í Skálholtskirkju á gamlársdag. Þá kemur hún fram í athöfn í Filadelfíukirkjunni á nýársdag. Að syngja fyrir íslendinga er Höllu Margréti hjartans mál. WBUfÆ wwf'áW ' 'M §pj §§# M M". yl I Halla Margrét Árnadóttir j Er í stuttu stoppi á fslandi og I vill leyfa Islendingum að njóta þess sem hún hefur að I bjóða I söngnum. Halla Margrét hefur verið búsett á Italíu í átta ár, en firam að því var hún þar með annan fótinn í nokkur ár í námi. Nú em tæp þrjú ár síðan hún var hér síðast og hún ætlar aldrei að láta líða svona langan tfma aftur að hún komi ekki heim. „Ég er í hálfgerðu sjokki því ég rata ekki lengur um Reykjavík," segir hún. „Mér finnst þó bara yndislegt að koma heim og ég nýt þess að hitta fjölskyldu og vini og borða íslenskan mat. Ég finn betur eftir því sem ég er lengur úti hvað ég er mikiU íslending- ur. Smndum tek ég dæmi af boxertík- inni minni, en þegar við bjuggum inni í Parma fór ég og viðraði hana í garðinum eins og aðrir hundaeigend- ur. Hún var alltaf jafn glöð og lék sér við hina hundana en þegar annar boxer mætti á svæðið varð hún ennþá glaðari. Það var svo greinilegt að hún náði annars konar tengslum við sína tegund. Þetta finnst mér stundum eiga við um mig og íslendinga. Það er einhvem veginn eins og að vera í sama lit,“ segir Halla hlæjandi. Lundakaffi í miðborg Parma Það væsir þó ekki um Höllu Mar- gréti á Ítalíu. Hún gifti sig þar í sólinni í fyrrasumar, eiginmanni sínum Pa- olo Di Vita, sem er veitingamaður og rekur kaffihús í miðborginni. Veit- ingahúsið heitir Lu Pulcinella sem út- ísland og (talfa I eina sæng. Boðið var upp á harðfisk og pastasalöt I brúðkaupinu. leggst Lundakaffi á íslensku. „Þetta er dæmigert ítalskt kaffihús," segir Halla Margrét. „Ég efast um að svona kaffi- hús séu til á íslandi, það er kannski helst hægt að líkja þessu við heita pottinn í Vesturbæjarlauginni þar sem fólk hittist daglega og kynnist vel. Á barnum emm við með upp- stoppaðan lunda ffá frændfólki í Vestmannaeyjum og myndir af lund- um um allt. Það er vegna þess að Pa- olo varð ástfanginn af lundanum þeg- ar hann kom til íslands. Að öðm leyti er þetta afar ítalskt. Við emm með fastakúnna sem em eins og fjölskyld- an okkar og við vitum allt um. Ég hjálpa til á kaffihúsinu þegar ég er ekki að syngja einhvers staðar og mér finnst ég oft stödd í leikhúsi þar sem ég stend bak við barborðið. Ég verð aðallega hissa að fá ekkert klapp. Og Paolo, hann er í rauninni sálfræðing- ur, prestur og skemmtikraftur, og frá- bær í því sem hann er að gera. Kúnnahópurinn fylgist líka vel með mér þegar ég er að syngja og stendur þétt við bakið á mér. íbúar Parma em auðvitað miklir ópemunn- endur þar sem til dæmis Verdi er frá Busseto í Parma og um daginn þegar ég var að syngja í Róm fékk ég stóran blómvönd frá viðskiptavinunum á Lundakaffi. Mér þykir óskaplega vænt um þennan stuðning." Jólaglögg og vöfflur fyrir við- skiptavini Fastakúnnamir á Lu Pulcinella fá lfka að finna fyrir íslenskum áhrifum í viðbót við lundana því þegar Halla Margrét er þar bakar hún alíslenskar vöfilur sem falla vel í kramið og á jól- um bjóða þau hjón upp á jólaglögg sem ítalir kunnar vel að meta. „Það er synd að þessi hefð festi ekki rætur hér heima," segir Halla Margrét hugsandi. „Þetta snerist alltaf upp í húrrandi fyllirí," segir blaðamaður. „Já, er vínmenningin ekkert að skána?" spyr söngkonan, en við komumst að þeirri niðurstöðu að trú- lega hafi hún breyst eitthvað til batn- aðar hjá landanum þrátt fyrir allt. Halla Margrét hefur einskorðað vinnu sína við wítaliu en þar er sam- keppnin geysihörð og oft stutt í spill- ingu. „Framinn tengist oft óheiðar- legum vinnubrögðum," segir Halla Margrét. „Ég er þess vegna mjög stolt að geta sagt með hreinni samvisku að ég hef alltaf komist áfram á eigin verðleikum. Það er ekki algengt í þessu landi. í mínu fagi er mjög erfitt að halda hreinum skildi og ég hef horft upp á kollega mína hreinlega selja sig fyrir framann. En fyrir mig er fjölskyldan það mikilvægasta sem ég á." „Ég var auðvitað ekki að syngja mitt rétta fag, ég er dramatískur sópran og hlutverkin sem ég syng eru af- skaplega dramatísk." íslendingar dramatískari en ítalir Halla Margrét var í þrjú ár fastráð- in við stærsta óperuhús á Ítalíu sem sérhæfir sig í óperettum. „Það var ómetanleg reynsla og ofsalega skemmtileg. Ég var auðvitað ekki að syngja mitt rétta fag, ég er dramatísk- ur sópran og hlutverkin sem ég syng em afskaplega dramatísk," segir hún og skellihlær. „Persónumar mínar enda yfirleitt í dauðanum, stundum fell ég fyrir eigin hendi, eða bara dey úr sorg og stundum myrði ég föður minn eða einhverja aðra í kringum mig. f óperettunum gekk hins vegar allt út á gleðina. Leikstjóramir vom oft í vandræðum með mig því mér tókst alltaf að fanga einhverja drama- tík í leiknum, en þetta var mjög góð reynsla og þama var ég komin í hóp atvinnusöngvara. Svo á ég mér draum," segir Haila Margrét kankvís. „Þegar ég verð gömul langar mig að leikstýra óperettum. Tilhneigingin hjá óperuhúsunum hefur nefnilega verið sú að gera óperettur að lélegum ópemm, sem er algjör dauðasynd. Óperettur em sérfag og þar á að vera gaman." En ertu þd dramatísk sjálí? „Já, það er nefnilega málið, ég er alveg hádramatísk. Það er íslending- urinn í mér. íslendingar em miklu dramatískari en ítalir. Þetta er miklu meira I nösunum á þeim. Ég segi oft um Paolo að hann segi voff, voff með- an ég bít. Það lýsir muninum vel." Hefur lært að skilja dramatík- ina eftir í leikhúsinu Ástarævintýri Paolos og Höllu Margrétar var dramatískt á köflum eins og gengur í samböndum en nú lifa þau harmónísku lífi sem hentar dramastelpunni vel þrátt fyrir allt. „Okkar saga er mjög falleg," segir Halla. „Allur regnboginn. Þegar við kynntumst átti ég ekki bót fyrir rass- inn á mér, var búin að eyða öllum mínum sjóðum í námið og var í tómu basli. Við höfum unnið okkur í gegn- um þetta og lifum mjög ljúfu og góðu lífi í dag. Ástin fyrir mér felst í að geta unnið og þroskast saman í þeim verk- efnum sem lífið býður upp á. Vinnan við ástina hefst oftast þar sem tjaldið fellur í ævintýrunum. í dag er ég búin að læra að dramatíkina skilur maður eftir uppi á sviðinu og tekur ekki með heirn." Halla Margrét og Paolo eiga eftir að gifta sig í kirkju og Halla hefur ver- ið að lofa vinum og vandamönnum að gera það á íslandi, hugsanlega næsta sumar. „Það kemur ekki til greina annað en að við giftum okkur í kirkju hér heima. Við áttum samt yndislegt brúðkaup á Ítalíu og buðum meira að segja upp á íslenskan harðfisk. Paolo var afar skeptískur, fannst hann lykta svo illa, en fiskurinn hvarf á tíu mín- útum. Nei, hann var ekki með ís- lensku smjöri, þá hefðu flugumar gengið af göflunum. En það var fynd- ið að ítölsku flugurnar lim ekki við ís- lenska harðfiskinum en sóttu þess meira í pastasalatið." Tónleikar í Skálholti á gaml- ársdag Þó að Halla Margrét hafi haft nóg að gera kom stóra „breikið" ekki fyrr en sumarið 2004, þegar hún tók þátt í tveimur ópemuppfærslum f Róm. „Þetta em fyrstu óperumar sem Puccini skrifaði, Le Villi og Edgar. Ég er í aðalhlutverki í báðum óperunum og nú hafa þær verið gefnar út á DVD- diskum. Hvomg þessara ópera hefur verið mikið sett upp í gegnum tíðina en em að komast í tísku núna. Það má eiginlega segja að útgáfa þessara diska sé alheimsfrumsýning. Diskana er hægt að panta á netinu hjá Pan- dreams-útgáfunni eða í plömverslun- um.“ Á gamlársdag ætlar Halla Margrét að syngja á tónleikum í Skálholts- Gllatt á hjalla í Parmo. Halla og Paolo giftu sig borgarlega á Italiu siðastliði ð sumar. kirkju þar sem koma fram fleiri lista- menn, meðal annars Egill Ámi Páls- son tenór, Hulda Sif Ólafsdóttir sópr- an og þeir Jóhann I. Stefánsson trompetleikari og Hilmar Öm Agnars- son organistí. „Við ætlum fyrst og fremst að kveðja árið í gleði, þetta verður sannkölluð gleðistund. Það er líka svo mikilvægt fyrir mig að syngja á íslandi," segir Halla Margrét. „öll mín orka hefur farið í að vinna úti og komast áfram þar, hægt og hljótt, en mér finnst að íslendingar eigi að fá að heyra í mér og fylgjast með því sem ég er að gera. Ég lít ekki á það sem vinnu að syngja hér heima heldur er það fyr- ir hjartað mitt að fá að syngja í eigin landi. Ég er svo mikill fslendingur og finn svo sterk tengsl við fólkið mitt hér. Það er mjög mikilvægt að skilja aldreivið það." Verður þd engin dramatík í Skál- holtl? „Ég fer nú ekki í gegnum heila tón- leika alveg dramalaust," segir Halla Margrét lúæjandi. „En fyrst og fremst ætlum við að skemmta okkur." Halla Margrét kemur einnig fram í athöfn hjá Hvítasunnusöfnuðinum á nýársdag. edda&dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.