Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2005, Qupperneq 54

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2005, Qupperneq 54
Menning DV Jt 54 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2005 % Gautur íæfingu Þjóðleikhúsið ræðst í þriðja sinn í f* |öf sviðsetningu á Pétri Gaut eftir Henrik tbsen. Var fyrsti samlestur á nýrri þýð- ingu Karls Agústs Úlfssonar I gær- morgun á Ballettsal Þjóðleikhússins en sviðsetning Baltasars á verkinu verður á nýju sviði Þjóðleikhússins í íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar. ^511 Þar var áður æfingasalur hússins og fyrir þann tíma íþróttasalur þar sem endurþjáli fór fram og glímuæfingar. í eina tið hýsti saiurí vinnustofu Kjarvals á sumrum og var notaður t.. myndlistarsýninga. Nú mun hann hýsa leikmynd eftir Grétar Reynisson. Björn Hlynur Haraldsson fer með hlutverk Péturs Gauts en fjölda annarra hiutverka mun leikhópurinn skipta á milli sín. Frá samlestri IngvarE.Sig- urðsson annar frá vinstri en Eiann lék Gautinn siðast við Hverfisgötuna. DV-mynd GVA I Skattfé borgarbúa var veitt til þekktra og óþekktra aöila í menningarstarfsemi í Reykjavík fyrir hátíðir. Listi yfir styrkþega ber meö sér að meirihluti Menning- armálanefndar geri ekki greinarmun á atvinnustarfsemi og áhugamennsku. Lengri samningar um stuðning eru á næsta ári að renna út og verður fróðlegt að sjá úthlutun að ári - eftir kosningar. J Kringlunni rústað f flutn- J ingi Vesturports Hópurinn | erstærsti styrkþegi Menning- J armáianefndar og með | samning til loka næsta árs. DV Mynd Vilhelm I Sigurður Gfsli Pálmason kaupsýslumaður Sigurður Gísli í borg- arkerfið Menningarmálanefnd hefur * skipað í nýstofnað safnráð Listasafns Reykjavíkur en ráðið var sett á í sumar og sætti sú ráðstöfun nokkurri gagnrýni fráfarandi safnstjóra, Eiríks Þorlákssonar. Ráðið skal vera safnstjóra til ráðgjafar og var einkum hugsað til að styrkja . vildarnet safnsins heima og er- lendis. Gagnrýni Eiríks beindist einkum að því að með stofnun ráðsins væru stjórnmálamenn farnir að seilast eftir áhrifum á starfsemina, en í eldri reglum >var safnstjóra heimilt að hafa ráð sér til ráðgjafar, en það nýtti Eiríkur sér ekki. Af skipan ráðsins nú má ráða að til grundvallar hafi verið lögð tvenns konar sjónarmið: leitað eftir fjármálamönnum úr at- vinnulífinu með áralangan áhuga á myndlist og fólki með akademíska fagþekkingu á myndlist og reynslu af sýningahaldi. f ráðið voru skipuð í fyrsta sinn þau dr. Christian Schoen « sem stýrir CIA - kynningar- miðstöð íslenskrar myndlistar - og aukast þar enn völd hans í ísiensku myndlistarlífi; Hrafn- hildur Schram listfræðingur er þar einnig en ný nöfn á þess- um vettvangi eru þeir Gunnar Dungal, fyrrverandi Pennafor- stjóri og Sigurður Gísli Pálma- son kaupsýslumaður, en þeir •'íélagar hafa lengi unnið saman í styrktarsjóði Pennans sem Gunnar setti á stofn íyrir nokkrum árum til styrktar myndlistarmönnum. Sigurður hefur búið vestur í Los Angeles en haft mikil umsvif hér á landi í fasteignarekstri. Þau systkin, Pálmabörn, eru víðar farin að koma að stoðstarfi við íslenska mynd- list: Ingibjörg situr í stjórn CIA og rekur galleríið 101 við Hverfisgötu. Systir þeirra Lilja er menntaður myndlistarmað- ur en hefur einkum einbeitt sér að starfi á vettvangi kvik- myndaframleiðslu. öll hafa »þau verið virkir kaupendur um árabil á íslenskum myndlistar- markaði Flugur Skömmu fyrir jól var birtur listi yfir styrki menningar- og ferðamál- ráðs Reykjavíkur til listahópa og verkefna. Tuttugu og einni miljón var úthlutað, en það segir ekki alla söguna: Fimmtíu og sjö milljónir voru fyrir bundnar í samningum við ríflega þijátíu aðila með lengri samningum. Minnihluti situr hjá Styrkir borgarinnar til menning- arstarfsemi hafa verið að hækka á undanfömum árum. Á þessu ári var tekið til í regluverki tengdu úthlut- unum á skattfé til listrænnar starf- semi: fagráð vom lögð af en eitt skipað sem fer yfir allar umsóknir en auglýst er eftir umsóknum. Er unnið eftir nýju fyrirkomulagi öðru sinni. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í ráðinu sátu hjá við afgreiðslu máls- ins og gerðu í bókun athugasemdir við að tillögum fagráðs skyldi ekki hlýtt í hvívetna. Aðstaða og lengri samningar Þá er ótalinn en bókfærður styrk- ur til starfsemi í formi húsnæðis sem lagt er ýmsum til: þannig em sjálfstæðir leikhópar með aðstöðu í Tjarnarbíói og myndlistarmenn og kynningastöð þeirra er með að- stöðu í gömlu Hótel Alexandríu svo dæmi séu nefnd. Að ógleymdum sýningarsölum Listasafns og að- stöðu í Borgarleikhúsi. Fastir samningar em við aðila sem hafa um árabil staðið fyrir starfsemi í borginni. Allir em þeir tímabundnir og renna flestir þeirra út í lok næsta árs: Bókmenntahátíð, Caput, Gallerí i8, íslensk tónverka- miðstöð, Jazzhátíðin og Iceland Airwaves, Myrkir músíkdagar og Kirkjulistahátíð em í þessum hópi. Þar undir em einnig verðlaun og viðurkenningar á borð við bók- menntaverðlaun Tómasar Guð- mundssonar, laun Borgarlista- manns og jafnvel styrkur til Food and fun. Stærstu liðimir á samningslist- anum em hópar á borð við A sen- unni og Möguleikhúsið sem fá 4 millur hvort, Nýlistasafnið sem fær fimm millur, Sumaróperan sem fær þrjár komma sex og Vesturport sem fær fimm komma sex. Starfsemi í Kópavogi Á báðum listum, stakra veitinga og samninga, koma saman áhuga- menn og atvinnumenn: þrjár lúðra- sveitir, áhugamannaleikfélög og kórar em þama í bland við aldna starfsemi eins og Kammerklúbbinn og Kammersveitina. Er það álitamál hvort það sé skynsamlegt að leggja að jöfnu styrki við atvinnustarfsemi og áhugamennsku. Á árslegu tilleggi 2006 fá KASA- hópurinn, sem kenndur er við Sal- inn í Kópavogi og starfar þar, og kammerkórinn Schola Cantomm hvor um sig tvær millur og em það stærstu styrkimir. Myndhöggvara- félagið í Reykjavík fær eina og hálfa miljón vegna samvinnuverkefnis sex Evrópuþjóða, Site Ations-Sense in Place, er opnar sýningu í Viðey á Listahátíð í Reykjavík í maí. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík fékk sömu upphæð til rekstrar og þróunar. Heimilda- og stuttmyndahátíð er með samning og fær á næsta ári hálfa miljón. Hinsegin bíódagar voru styrktir um þrjú hundmð þúsund. Tómstundaklúbbar og stærri verk Tónlistarþróunarmiðstöðin hlaut tólf hundmð þúsund til rekstrar miðstöðvarinnar er hýsir TÞM, tónleikasal, aðstöðu fýrir unga tónlistarmenn til æfinga- og tónleikahalds og ýmiss konar menningar- og félagsaðstöðu. Er það eitt dæmið um styrk til aðstöðu ungs fólks sem ætti betur heima undir íþrótta- og tómstundaráði. Þá hlaut Strengjaleikhúsið 1 m.kr. til uppsemingar ópemnnar Skugginn, þar sem Karólína Eiríks- dóttir semur tónlistina, Sjón byggir textann á. samnefndri sögu H.C. Andersen og Messíana Tómasdóttir leikstýrir og annast umgjörð óper- unnar. Form ísland hlaut 900 þús.kr. til uppbyggingar á þjónusm félagsins og Kling og Bang gallerí 700 þús. til áframhaldandi gallerísrekstrar að Laugavegi 23. Smáir styrkir gera lítið gagn í úthlumn danska leiklistarráðs- ins var breytt um stefnu fyrir næsta ár. Styrkjum var fækkað og þeir hækkaðir. Um fjölda styrkja sem em veittir undir hálfri miljón má spyrja: duga þeir til einhvers? Kynningar- miðstöð íslenskrar mynd- listar, leikfélagið Annað Svið (María Ellingsen), ; Panic Productions, Hið íslenska bók- menntafélag em góðra gjalda verð en til hvers dugar þetta? Smærri styrkupp- hæðir falla til margra ólíkra aó- ila: Kór Lang- holts- kirkju, List- vinafé- lag Hallgrímskirkju, Kammerkórinn Carmina, Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, Hljómeyki, Fílharm- ónía, Blásarasveit Reykjavíkur, Draumasmiðjan, Leikfélagið Hug- leikur, Listasafn ASÍ (getur ASÍ ekki staðið undir því?), og Bókaútgáfan Hólar vegna ævisögu Tómasar Guð- mundssonar em þeirra á meðal. Á að styrkja Cha-Cha-klúbb- inn? Enn má spyija hvort velstæð fé- lög og fyrirtæki eins og Félag is- lenskra tónlistarmanna og Smekk- leysa eigi rétt á opinberum styrk. Að ekki sé talað um aðila eins og Tangófélagið, Friðarhús Samtaka herstöðvaandstæðina, Húsfélag al- þýðu og IBBY á íslandi, Söngfélag Félags eldri borgara í Reykjavík og leikfélagið Snúð og Snældu. Mikilvægt er að reglur séu ljósar og ákvarðanir gegnsæjar. Styrkir til listrænnar starfsemi em mikil- vægir f borgum á borð við Reykjavík en hér hafa verið nefndir styrkþegar sem em á gráu svæði. mmm i I
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.