Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2006, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2006, Blaðsíða 17
0V Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 13 USF5K M t *-ssaií“ ■/ Barnaklám á vefnum Krakkar selja oft myndir af líkama sínum á netinu i gegnum vefmyndavélar. Táningur með milljónir Hélt úti grófri barnaklámsíðu á netinu. A *T 1 < t * « til að gefa sig fram við lög- reglu, sem hann og gerði. Hann afhenti lögreglimni upplýsingar um rúmlega 1500 viðskiptavini og korta- númer þeirra gegn friðhelgi. Hann hefur síðan náð tökum á lífi sínu, játað fyrir fjöl- skyldu sinni hvað hann að- hafðist og jafnvel leitað hugg- unar í trúnni. „Það eina sem ég vildi gera var að gera mömmu stolta," segir Justin. Honum tókst það á endan- um. 16 ára flúði til íraks Það er ekki á hveijum degi sem 16 ára strákar strjúka að heiman - allt til Bagdad. Farris Hassan bjó í Flórída með foreldrum sínum, sem höfðu ákveðið að heimsækja föðurlandið frak síðar á árinu, en Farris gat ekki beðið, keypti flug- miða fyrir spariféð og dreif sig af stað í byrjun desember. Foreldrarn- ir komu af fjölium þegar hann hringdi nokkrum dögum síðar og sagðist vera kominn til fraks. Hann sneri heim á sunnudag og móðir hans þakkaði guði fyrir að hann væri heill á húfi. „Ég vil bara faðma hann," sagði hún klökk. Nýjasta tíska veldur usla í Svíþjóð Gallabuxur Satans sjálfs Tískumerkið Cheap Monday hef- ur valdið töluverðum deilum meðal trúaðra í Svíþjóð sakir þess að í firmamerki þeirra er að finna vel þekkt satamskt merki. Þrátt fyrir að framleiðendumir segi vísun merkis- ins til hins svarta vera meira í gríni en alvöru hefur hönnuður merkisins aðra skoðun. „Þetta er ákveðin andstaða gegn kristni," segir Björn Atldax, grafi'skur hönnuður. „Ég er ekki satanisti sjálf- ur, en ég hef mikla andúð á skipu- lögðum trúarbrögðum." Sögunni samkvæmt hafa vinsældir fatnaðar- ins aldrei verið meiri en einmitt nú, þegar svo virðist sem unga fólkið sæki í að feta vegu andkristninnar. Ummæli hönnuðarins hefðu áreiðanlega hleypt illu blóði í marga í þeim löndum hvar trúarbrögð skipta meira máli í daglegu lífi en í Svíþjóð. Prestar sænsku kirkjunnar telja málið þó ekki alvarlegt. „Þetta er nú ekki eitthvað til að fyllast hryllingi yfir," segir Bo Lars- son, yfirmaður menningardeildar kirkjunnar. „Það er augljóst að fram- leiðendurnir vilja skapa andúð gegn kristinni kirkju. Réttast væri að hefja umræður um hvað trú þýðir í sam- félaginu." Aðrir kristnir menn eru ekki jafn víðsýnir og Larsson. „Það er ekki hægt að þegja um þetta," segir séra Karl-Erik Nylund, sóknarprestur í Stokkhólmi. „Þetta er hrein og klár móðgun við kristið fólk." Hann kvartar yfir linkind gegn sænskum fyrirtækjum sem vanvirða kristna trú. „Það vill enginn vanvirða gyð- inga eða múslima, en svo virðist sem árásir á kristna trú séu meira en allt í lagi." Fyrirtækið selur vörur sínar víða í Evrópu og hyggst taka bandaríska markaðinn með stormi fljótlega. Hönnuðurinn og einn aðaleigenda Cheap Monday, örjan Andersson, segist ekki óttast viðbrögð trúaðra Kross á hvolfi Margir telja þetta vera merki Satans sjálfs. B andaríkj amanna. „Fólk hlýtur aö skilja það að við erum ekki slæmt fólk," segirhann. „í það minnsta finnst mömmu það Djöfullinn er í smáat- riðunum Mörgum Sví- um býður við satanískri mynd i lógóinu. Stokkhólmur Sóknar- prestur i borginni sker upp herörgegn tisku- merkinu. Fjarnám með áherslu á starfstengt nám Byggingagreinar Efnisfræði, framkvæmd og vinnuvernd og grunnteikning. Tækniteiknun Húsateikning, raflagnateikning, innréttingateikning, vélateikning, AutoCad og grunnteikning. Tölvubraut Forritun, gagnasafnsfræði, vefsíðugerð, vefforritun, netstýrikerfi og vélbúnaður. Upplýsinga- og fjölmiðlabraut Allar greinar í grunnnámi upplýsinga- og fjölmiðlabrautar; eins og myndbygging og formfræði, myndgreining, týpógrafía og grafísk hönnun, myndvinnsla og marg- miðlun, hljóðtækni, Ijós- og litafræði, inngangur að fjölmiðlun. Meistaraskóli Allar stjórnunar- og rekstrargreinar. Almennt nám Enska 212, ENS303, grunnteikning, STÆ202, algebra ogföll, STÆ 303, stærðfræði, UTN103, notkun upplýsingatækni og tölva í námi. : ■ -* - : Innritun og greiðsla á neti stendur yfir og er opin til 15. jan. 2006 á www.ir.is. Kennsla einstakra áfanga er með fyrirvara um nœga þáttöku. Allar frekari upplýsingar ísíma 522 6500 eða á vef skólans www.ir.is. SMS Kvöldskóli Bygginga- og mannvirkjagreinar Verklegt og bóklegt grunn- og framhaldsnám. Rafiðnanám Grunnnám rafiðna 2. önn. Rafvirkjun 3.-7. önn. Listnám Ýmsir áfangar í kjarna og á kjörsviði almennrar hönnunar. Öflugur undirbúningur fyrir framhaldsnám í hönnun. Upplýsinga- og fjölmiðlagreinar Grunnnám upplýsinga- og fjölmiðlagreina. Undirbúningur fyrir nám í grafískri miðlun, vefsmíð, Ijósmyndun, nettækni, prentun og bókbandi.. Tækniteiknun Fjölbreyttir áfangar í AutoCad. Meistaraskóli Allar rekstrar- og stjórnunargreinar. Faggreinar byggingagreina. Almennt nám Bókfærsla, danska, eðlis- og efnafræði, enska, félagsfræði, fríhendisteikning, íslenska, grunnteikning, spænska, stærðfræði, tölvugreinar, þýska, notkun upplýsingatækni og tölva. Innritun og greiðsla á neti stendur yfir og er opin til 4. jan. 2006 á www.ir.is. Innritun með aðstoð verður í matsal skólans, þri. 3. og mið. 4. jan., frá kl. 16-19. (Hægt er að greiða með peningum, debet- eða kreditkorti). Kennsla hefst mán. 9. janúar 2006. Kennsla einstakra áfanga er með fyrirvara um nœga þátttöku. IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK DV-mynd E.ÓI.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.