Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2006, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006
Fréttir DV
Afsali sér
launahækkun
Bæjarráð Kópavogs vill
að þeir starfsmenn bæjarins
sem taka laun sem tengd
eru Kjaradómi afsali sér
launahækkununni sem
Kjaradómur ákvað. Fyrir sitt
leyti ákváðu bæjarfulltrú-
amir að þeir og pólitískir
fulltrúar í nefndum bæjar-
ins fengju ekki hækkunina.
Þetta gildir þar til Alþingi
hefur brugðist við úrskurði
Kjaradóms.
Færri
atvinnulausar
Atvinnulausum konum
á Vestfjörðum hefur fækkað
frá því í síðasta mánuði en
karlmönnum án vinnu hef-
ur fjölgað, að því er fram
kemur á vef Bæjarins besta.
Á skrá yfir atvinnulausa eru
99 manns í upphafi nýs árs.
Samkvæmt tölum Vinnu-
málastofnunar eru 79 kon-
ur atvinnulausar og hefur
þeim fækkað um fjórar frá
því í desember. Karlmenn á
skrá yfir atvinnulausa eru
20 talsins. Fyrir áramót
voru 83 konur skráðar at-
vinnulausar og 19 karl-
menn. Þann 1. nóvember
voru 82 á skrá yfir atvinnu-
lausa á Vestfjörðum og 102
fyrir áramót.
Hvemig fannst
þérskaupið?
Halldór Gylfason
leikari.
„Mér fannstþað ágætt. Það
var svipað og í fyrra en annars
erég ekki mikill skaupmaður.
Atriðin voru náttúrulega mis-
góð en engu að slður ágætis-
skaup. Mér fannst bestu atrið-
in vera þegar Björgvin hermdi
eftir Guðmundi Steingríms og
þegar Hjálmar hermdi eftir
Eiríki Jónssyni."
Hann segir / Hún segir
„Það var hvorki né. Ég hló að
sumu en það mátti gera meira
grín að þvísem er að gerast i
samfélaginu. Mér fannstýmis-
legt fyndiö en það þarfað
taka á meira á máiunum. Það
var kannski ofsaklaust fyrir
minn smekk en þrátt fyrir allt
var skaupið meðalfint og
þjónaði sinum tilgangi sem
saklaus skemmtun.“
Hrund Ólafsdóttlr
leikskáld.
Skemmtanastjórinn á Broadway, Víkingur Heiðar Arnórsson, segist þakka guði
fyrir að árvökulir gestir á áramótafagnaði skemmtistaðarins hafi komið auga á það
sem virtist vera nauðgunartilraun undir borði og kallað á dyraverði. Dyraverðir
þustu á staðinn og í kjölfarið var karlmaður á þrítugsaldri handtekinn og yfir-
heyrður. Stúlkan hefur lagt fram kæru.
Reyndi ao nauoga
stulku undir borði
„Sem betur fer komu dyraverðir okkar fljótt að og gripu inn í,“ seg-
ir Víkingur Heiðar Amórsson, skemmtanastjóri á Broadway, en
karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í gær grunaður um að
hafa nauðgað ungri konu á effi hæð skemmtistaðarins. Maðurinn
var yfirheyrður í gær en sleppt að því búnu. Hann neitar sök.
Vitni segja að hin meinta tilraun
til nauðgunar hafi átt sér stað á gólf-
inu undir borðum á efri hæð Broad-
way, rétt fyrir fimm á nýársnótt.
Tilraunin virðist hafa verið ótrúlega
bíræfin því hundruð manna voru
aðeins örskammt frá - í aðstöðu til
að sjá hvað var á seyði. Nokkrir ár-
vökulir gestir komu auga á að ekki
var allt með felldu og kölluðu á dyra-
verði. Þeir komu fljótt að, sáu hvers
eðlis var og tóku hinn meinta nauð-
gara afsíðis. Honum var svo haldið
þar til lögregla kom á vettvang.
Sleppt eftir yfirheyrslur
Vfldngur skemmtanastjóri segir
að stúlkan sem lent hafi í hinum
hræðilega atburði hafi virst vera
slegin eftir að dyraverðir björguðu
henni úr klóm mannsins. Hún hafi
þegið aðstoð á staðnum áður en lög-
regla fór með hana á neyðarmóttöku
fýrir fórnarlömb nauðgana. Skýrsla
hefur verið tekin af henni sem og
hinum grunaða. Honum var sleppt
eftir skýrslutöku en að sögn lögregl-
unnar neitar maðurinn sök.
Dyraverðir og gestir brugðust
rett við
Troðfullt var á Broadway þegar
hin meinta nauðgunartilraun átti
sér stað. Tvær af helstu popphljóm-
sveitum íslands, Skímó og I svörtum
fötum, spiluðu fyrir dansi og
skemmtanaþyrst ungmenni fögn-
uðu nýja árinu. Víkingur skemmt-
anastjóri segir því ákaflega leiðinlegt
að gleðinni hafi verið spillt á þennan
hátt. „Það er hræðilegt að vita til
þess að þetta hafi gerst hérna. Mað-
ur þakkar bara fyrir að ekki hafi farið
verr. Dyraverðir og gestir gerðu vel í
að koma í veg fýrir það,“ segir Vík-
ingur Heiðar Arnórsson skemmt-
anastjóri á Broadway.
andri@dv.ls
,/Það er hræðilegt að
vita til þess að þetta
hafi gerst hérna. Mað-
ur þakkar bara guði
fyrir að ekki hafi farið
verr."
Víkingur Heið
ar Arnórsson
Skemmtana-
stjórinn segir
dyraverði og
gestihafa
brugðist rétt við.
Útigangsmenn sagðir margfalt fleiri en þeir sem hýrast í Öskjuhlíð
Sævar Arnfjörð Var
tjaldbúi löskjuhllð. Fer nú
væntanlega á áfanga-
heimili til að fóta sig.
Tjaldbúar götunnar víðar en í Öskjuhlíð
Síðustu vikur hafa fréttir af tjald-
búum götunnar í öskjuhlíð og öðr-
um heimilislausum vakið athygli.
Það sem einkennir tjaldbúana er að
allir hafa þeir brotið reglur og við-
mið samfélagsins og eiga sjaldnast
afturkvæmt.
Guðmundur Jónsson, kenndur
við Byrgið, hefur umgengist fólkið á
götunni og segir ástandið miklu
verra en komið hefur fram. Að mun
fleiri séu á götunni og stór hluti
þeirra búi í tjöldum eða bflum. „Til
dæmis hluti þeirra sem eru í með-
ferð, oft menn sem hvergi búa en
eru þó með lögheimili á ýmsum
stöðum. Þeir eru ekki í fjöldanum
sem hefur komið fram," segir hann.
Það sé þó einungis til að þeir geti
fengið póstinn sinn.
Sævar Arnfjörð og Lee Reynir
Freer eru tveir þeirra sem bjuggu í
öskjuhlíðinni. I tjaldi um hávetur.
Báðir eru þeir þekktir síbrotamenn.
öryrkjabandalagið og Þjónustumið-
stöð miðborgar og Hlíða hafa komið
Sævari tímabundið fyrir á gistiheim-
ilinu Von og er nú unnið í hans mál-
um í þjónustumiðstöðinni. Lee
Reynir fór á Gistiskýli Reykjavlkur-
borgar og er þar enn.
„Þessir tveir eru ekkert eins-
dæmi. Stundum sofa þrír og
ijórir í einu tjaldi í kuldan-
um. Þetta er ekki bara í
öskjuhlíð. Ég veit af
þessu í Heiðmörk
lflca," segir Guð-
mundur og
bendir á að upp
með Vestur-
landsvegi sé
fólk í yfir-
gefnum bú-
stöðum og
fólk búi jafn-
Lee Reynir
Freer Atti góðar
stundir í miklum
kulda með félaga
sínum Sævarii
Öskjuhlíðinni.
Hann er nú i
Gistiskýlinu imið-1
borg Reykjavikur.
áfangaheimili
Samhjálpar
og Hjálpræðis-
herinn. Fólk á
þessari braut
megi hins vegar
finna um allt land.
„Hinum er út-j
skúfað og þeir J
enda í ---------“
vel í bflum allt upp með
^ Nesjavallavegi.
Guðmundur segir að
| umræðan einskorðist við
Reykjavflc, sem hefur
nokkra möguleika fyrir
, bæði menn og konur í
þessari stöðu. Til
-------------dæmis
Reykjavík
og á göt-
unni.“
Gistiskýlið
og Konukot í
miðborg
Reykjavíkur,
Guömundur Jónsson
Segir tjaldbúa götunnar vera
á fleiri stöðum en I öskjuhllð.