Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2006, Blaðsíða 12
72 MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 2006
Fréttir DV
Hermenn
drepa flugur
Frönsk yfirvöld eru að
undirbúa flutning á 400
hermönnum til eyjunnar
Reunion í Inlandshafl. Her-
mennirnir þurfa að grípa til
vopna, þrátt fyrir að ekki sé
stríð sé á eyjunni. Her-
mennirnir þurfa nefnilega
að drepa moskítóflugur, en
faraldur geisar á eyjunni.
Rúmlega 30 þúsund eyjar-
skeggjar hafa smitast af
Chikungunya-vírusnum
síðastliðið ár en moskító-
flugur bera vírusinn á milli
manna. Ný tilfelli greinast
nánast daglega og er þetta
því orðið heljarinnar
vandamál. Á eyjunni búa
um 750 þúsund manns og
er hún undir stjórn Frakka.
Heimilislaus
fann fúlgu
Heimilslaus kona frá
Zenica í Bosníu-Herzegóv-
ínu, fann 25.000 pund þeg-
ar hún var að róta í rusla-
fötu. Hin 52 ára Fadila
Cirhanovic segist ekki hafa
trúað lukku sinni þegar
hún fann peninginn. Fadila
óttaðist að seðlarnir væru
falsaðir, svo að hún fór
með þá í banka til að láta
athuga það. Þeir reyndust
vera ekta, en bankinn skil-
aði ekki peningunum held-
ur sendi þá til lögreglunn-
ar. Fadila var miður sín en
vonast til þess að hún fái
laun fyrir heiðarleikann og
hún fái tækifæri til að hefja
nýtt líf.
vegna sveitarstjórnakosn-
inga," segir Björgvin Vaiur
Guðmundsson grunnskóla-
kennari á Stöðvarfirði. Hann
segir að fiest félög séu að
halda fundi nú um helgina
vegna kosninga, þar á meðal
félag Björgvins, Samfylkingin,
sem mun ræða fyrirkomulag
til framboðs i þremur sveitar-
félögum I vor.
„Já,já, það er hugur i mönn-
Landsíminn
erað
hluta fyrsta skrefið I undirbún-
ingi fyrir alþingiskosningar
komandi."
Björgvin óttast ekki að menn
vilji þakka Framsóknarflokkn-
um framkvæmdir eystra og
minnir á að Samfylkingin hafi
stutt þær á sinum tíma.„Nú er
að höndla afleiðingar þessara
framkvæmda, félagslega og
atvinnulega."
Þróstur Juliusson hefur flutt
fíkn. Hann segir að góður
stöðugri notkun. Kristján1
sigarettu eftir að hann prð
HWfpMPPHH
,... ,
j „Ég er svoleiðis
snarlega hættur
aðreykja."
.
■
Reykti í 53 ár Kristján
reyndi allt til að hætta að
reykja en ekkert gekk fyrr
en hann prófaði tækið.
„Tækið tekur burt alla löngun í nikótín," segir Þröstur Júlíusson
sem í byrjun árs flutti til landsins merkilegt tæki frá Þýskalandi.
Tækið hefur hjálpað fjölda fólks í baráttunni við nikótínið.
Þröstur segir að með tækinu sé
notast við náttúrulega tíðni líkam-
ans. „Tækið vinnur á tíðnum sem
heilinn notar við að stjórna hinum
ýmsu líkamshlutum. Það mælir við-
brögð heilans við ákveðnu efni og
endursendir nægilega oft þangað til
heilinn áttar sig á að hann hefur ekk-
ert við efnið að gera lengur," segir
Þröstur um virkni tækisins. Hann
segir að um sé að ræða svipaða
tækni og nálastungur og tækið hitti
alltaf á réttan stað.
Mikið notað í þýskalandi
Þröstur segir að tækið hafi lengi
verið í hávegum haft í Þýskalandi og
notað á um fjögur þúsund lækna-
stofum. Þröstur flutti tækið hingað
til lands í janúar og síðan þá hefur
fjöldi fólks nýtt sér það með góðum
árangri. „Góð afspurn er besta aug-
lýsingin," segir Þröstur sem hefur
ekkert auglýst tækið en fær um
fimm manns á dag í meðferð. „Er-
lendar rannsóknir sýna að fólk sem
nýtir sér tækið hættir að reykja í 85%
tilfella," segir Þröstur.
Meðferðin tekur klukkutíma og í
flestum tilvikum þarf viðkomandi
bara að mæta einu sinni. Aðspurður
um verð fyrir hvert skipti, svarar
Þröstur: „Þrjú og hálft karton af
sígarettum."
Hættur eftir 53 ár
„Ég er svoleiðis snarlega hættur
að reykja," segir Kristján Garðarsson,
fyrrverandi knattspyrnudómari, sem
reykti í 53 ár. Hann þakkar árangur-
inn engu öðru en tæki Þrastar.
„Ég var búinn að reyna allt. Ég
byrjaði á námskeiði hjá Krabba-
meinsfélaginu, svo var það nikótín-
tyggjó, plástur, nefúði, dáleiðsla og
nálastungur en aldrei tókst mér að
hætta að reykja. Ekki fyrr en ég próf-
aði tækið," segir Kristján sem hefði
ekki trúað árangrinum nema reyna
sjálfur.
„Þetta var svolítið skrítið fyrstu
tvo dagana því ég var vanur að
reykja flmm sígarettur og drekka
jafnmarga kaffibolla áður en ég fór í
vinnuna á morgnana. Ég varð svold-
ið órólegur og ákvað bara að lesa
glæpasögur Arnaldar Indriðasonar
og gleymdi mér yfir þeim. Síðan hef-
ur mig ekkert langað í sígarettu,"
segir Kristján sem hefur aðeins orð-
ið var við góðar aukaverkanir eftir
meðferðina. „Áður svaf ég ekkert á
nóttunni fyrir hósta en núna sef ég
eins og engill og er alveg hættur að
hósta. Ég er svo ekki frá því að exem-
ið á fætinum sé að hverfa," segir
Kristján Garðarsson, alsæll með ár-
angurinn.
svavar@dv.is
Þröstur Júlíusson Keypti tæki
frá Þýskalandi íjanúar. Slðan
þá hefur tækið hjálpað fjölda
fólks að hætta að reykja.
Bylting í reykbindindi
Þýska undratækið ernotað I
á fjögur þúsund læknastof-1
um I Þýskalandi. Fer núna
sigurför um ísland.
Karlakór Reykjavíkur selur ofan sér draumahúsið
Tilboð komið í tónlistarhúsið Ými
Eftir að hafa reist sér hurðarás
um öxl með uppbyggingu tónlistar-
hússins Ýmis ákvað Karlakór
Reykjavíkur að setja það í sölu. Sam-
kvæmt heimildum DV hefur borist
tilboð í það sem hljómar upp á um
180 til 190 milljónir króna. Ekki fæst
uppgefið hver er að baki tilboðinu.
„Þetta er allt í vinnslu hjá þeim,"
segir Ottó V. Guðjónsson, formaður
stjórnar Karlakórs Reykjavíkur. „Það
er um mánuður síðan tilboðið barst
frá þessu eignarhaldsfélagi og ég
býst við að mynd verði komin á
þetta upp úr mánaðamótunum."
Ottó segir að rekstur hússins hafi
ekki gengið sem vonir stóðu til.
„Það voru stórhuga menn sem
lögðu af stað með byggingu hússins
í upphafi. Bjartsýni er alltaf góð en
það að kór reki tónlistarhús er álíka
mikil tímaskekkja og að við mynd-
um kaupa okkur rútu til að keyra
okkur á milli staða. Ég er samt full-
viss um að aðili sem gerði það að
atvinnu sinni að reka húsið gæti
gert það töluvert betur en við sem
gerum þetta í okkar frístundum,"
segir Ottó.
Ottó segir að íslenskir aðilar séu
að baki tilboðinu og verið sé að
vinna að fjármögnun kaupanna af
þeirra hálfu. Það sé þó ekki loku
skotið fyrir að kórinn muni leigja af
nýjum eigendum hússins, verði því
að skipta:
„Við eigum eftir að skoða það
þegar salan er frágengin."
KAKIAKC* RÉYKJAVÍKUR
Tónlistarhúslð Ýmlr Ofstór biti fyrir É
karlakórinn - nú erkomið að sölu þess. K , -...m
Karlakór Reykjavíkur Hefursungið hing-
aðtiliYmiogmun kannskigera framvegis.