Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2006, Blaðsíða 19
DV Sport
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 2006 19
Keppni í B-riðli lauk í gær rétt eins og í öðrum riðlum og er óhætt að segja að „dauðariðillinn“ hafi
staðið undir nafni. Á endanum voru það heimsmeistarar Spánverja sem komu best út úr riðlinum,
með þrjú stig, Frakkar fengu tvö en Evrópumeistararnir aðeins eitt. Þjóðverjar eiga því lítinn mögu-
leika á að verja titilinn.
Það voru Frakkar sem fóru með sigur af hólmi í þýðingarmikl-
um leik gegn Þjóðverjum um hvort liðið færi með meira en eitt
stig upp í milliriðilinn. Frakkar hefðu reyndar ekki farið með
neitt stig hefðu þeir tapað leiknum í gær og var því allt lagt í
sölurnar.
í stuttu máli tókst Frökkum full-
komlega að stöðva Evrópumeistar-
ana. Þjóðverjar voru reyndar með
forystuna lengi vel í fyrri hálfleik en
undir lokin tókst Frökkum að síga
fram úr og í hálfleik voru þeir með
tveggja marka forystu, 11-13. En þá
tók við hræðilegur leikkafli Þjóðverj -
anna.
Michael Kraus minnkaði reyndar
muninn strax í upphafi síðari hálf-
leiks en á næstu 20 mínútum skor-
uðu Þjóðveijar ekki nema fjögur
mörk. Á meðan Frakkar keyrðu ein-
faldlega fram úr og skoruðu tíu
mörk. Mestur var munurinn í stöð-
unni 24-16 en markvörður Frakka,
Thierry Omeyer, fór á kostum á
þessum leikkafla og varði oft stór-
glæsilega. Eftir það gáfu Frakkarnir
eftir og Þjóðverjar reyndu hvað þeir
gátu að minnka muninn og skoruðu
m'u mörk á síðustu tíu mínútum
leiksins. Svo fór að Frakkar fögnuðu
tveggja marka sigri, 27-25, og fara í
milliriðlakeppnina með tvö stig.
Þjóðveijar fara með stigið sem þeir
náðu úr jafriteflisleiknum gegn
Spáni í fyrstu umferð.
Spánverjar fara hins vegar með
þrjú stig áfram eftir ævintýralegan
sigur á Frökkum á laugardag. Þeir
Enterrios (2) og Romero (5) sáu um
að koma sínum mönnum í 7—1 eftir
að Narcisse hafði komið Frökkum
yfir. Eftir 25 mínútur var staðan 15-5
Spánverjum í vil og greinilegt að
Frakkar voru hreinlega ekki með á
nótunum. Þeir vöknuðu ekki til
lífsins fyrr en í stöðunni 24-14, er 20
mínútur voru tíl leiksloka. Á næstu
tíu mínútum skoruðu Frakkar níu
mörk gegn tveimur frá Spáni og-
minnkuðu muninn í fjögur mörk.
En mikið nær komust þeir ekki og
lauk leiknum með þriggja marka
sigri Spánverja, 29-26.
Þessi þrjú lið eru öll gífurlega
sterk og geta unnið hvaða lið sem er
á góðum degi. En það er einnig ljóst
að þau geta öll átt slæma daga og
hefur frammistaða þeirra í riðla-
Oílum brögSum beitt Bertrand Gille reynir
að koma skoti að marki Þjóðverja en Mich-
aei Hegemann beitir öllum brögðum til að
varnaÞvn KordK PhotosAf
MILLIRIÐILL 1
| Slóvenía 4 stig >■
Spánn 3stig
| Frakkland 2 stig j
Pólland 2 stig 1
; Þýskaland Istig ;
Úkraína Ostig
keppninni verið allt annað en
stöðug. Það má þó búast við að
Spánveijar eigi sæti í undanúrslit-
um víst og ekki ólfldegt að leikur
Slóvena og Frakka verði hreinn úr-
slitaleikur um hvort liðið komist
áfram í undanúrslitin með Spán-
verjum. En það skyldi þó aldrei af-
skrifa óvænt úrslit sem virðast alltaf
fylgja stórmótum í handbolta og
Þjóðverjamir sætta sig örugglega
ekki við annað en verðlaunasætí.
Úrslitaleikur D-riðils á EM í Sviss
Rússar með fullt hús stiga
Það verða Rússar sem koma inn í
milliriðlakeppnina með fullt hús
stiga, fjögur stig, og verða því efstir í
riðlinum þegar keppni héfst á
þriðjudaginn. Rússar unnu í gær
eins marks sigur á ólympíumeistur-
um Króata sem fara með tvö stig í
milliriðilinn en þessi lið verða með
íslandi í milliriðli.
Sigur Rússa í gær byggðist fyrst
og fremst á þvf að liðið náði afar
góðum, stuttum leikköflum þrisvar í
leiknum þar sem leikmenn liðsins
skomðu 4-5 mörk í röð á innan við
fimm mínútum. Eftir fjömtíu mín-
útna leik var staðan orðin 24-16
Rússum í vil og skomðu Króatar
þrettán mörk á síðustu sautján mín-
útum leiksins. Þegar fimm mínútur
vom til leiksloka vom Rússar með
fimm marka forskot og en þar sem
Rússar náðu að skora aðeins fjögur
mörk á síðustu mfnútum leiksins
stóðu Rússar uppi sem sigurvegarar.
Alexey Rastvortsev var marka-
tui Rússa með tíu mörk en hjá
kiuótum skoraði Ivano Balic níu.
Heimamenn úr leik
Heimamenn í svissneska lands-
liðinu urðu að játa sig sigraða fyrir
því úkraínska í botnslag A-riðils á
Evrópumeistaramótinu í gær. Sviss
þurfti einungis jafntefli úr leiknum
til að tryggja áframhaldandi þátt-
töku á mótinu en liðið sá aldrei til
sólar. Svo fór að Úkraínumenn
unnu sjö marka sigur og fögnuðu
eins og þeir hefðu orðið heims-
meistarar í leikslok. Svisslendingar
voru hins vegar niðurbrotnir, eins
og sést á meðfylgjandi mynd.
, uonunum
í,nwu
MATUR
MúiSi ognicimmul'i
Skírn Kristjáns Danaprins
Konukvöld Létt
Heimalagað múslí
Öflugasta sjónvarpsdagskráin
birlo
H f*11 kyi 11 gwifiT
Ymnrr mwTr? 1 m* Kl 1 ■ iHkfij MB