Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2006, Side 32
32 MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 2006
Menning DV
Tveir strákar f litlum herstöðvarbæ
vilja spila popp.
Bítlabærinn
Það verður seint hægt að segja
um Keflavflc að þar sé fallegt.
Minnir helst á rússneskt útnára-
þorp sem hefur verið hertekið af
Bandaríkjamönnum. Há glæpa-
tíðni, hnefaleikar og körfubolti.
Hljómar ekkert alltof vel. En fátt er
svo með öllu illt. Keflavík býður
líka upp á Guðjón Þórðarson,
Kaffitár og sjálfan konunginn,
Rúna Júl. Hann minnir okkur svo á
glæsta fortíð Keflavíkur sem Bítla-
bæjarins mikla hér á árum áður.
Heimildarmyndin Bítlabærinn
Keflavík fer með okkur í gegn um
bítlatímabilið og afdrif þeirra tón-
listarmanna sem ólust upp í þess-
um einstaka bæ. Hljómar, Trúbrot,
Júdas, Magnús og Jóhann, Change,
Óðmenn, allt kom þetta frá Kefla-
Bitlabærinn Keflavík (fyrri
hluti) Leikstjóri: Þorgeir Guð-
mundsson Aðalhlutverk: Rúnar
Júlíusson, Engibert Jensen,
Magnús og Jóhann ofl.
Ríkisútvarp 28.jan. 2006
★ ★★
Sjónvarp
vík. Við erum leidd í gegnum sög-
una með viðtölum og ber þar hæst
téður Rúnar Júlíusson. Einnig eru
þama óborganleg viðtöl við Engil-
bert Jensen og svo Magnús og Jó-
hann, sem fara á kostum. Ótrúleg-
ar margar sögurnar af því hvernig
þeir meikuðu það „næstum því",
samanber sagan um Jaggedí jagg.
Það er athyglisvert að sjá þær
myndir sem hafa verið gerðar að
undanförnu um fslenska dægur-
tónlist; Blindsker, pönkið og
Fræbblarnir og nú Bítlabærinn
Keflavík, þar sem fram fer nokkurs
konar samtal milli pönkkynslóðar-
innar og bítlakynslóðarinnar. Sér-
staklega er þarna fókuserað á
Bubba Morthens, sem baunaði á
gömlu Keflvfldngana þegar hann
kom fram á sjónarsviðið 1980. í
þessari mynd fá gömlu bítlarnir
tækifæri til að svara fyrir sig. Þar fer
fremstur í flokki Magnús Kjartans-
son. Þorgeir Guðmundsson og fé-
lagar hafa þarna úr miklu
myndefni að moða. Sérstaklega er
athyglisvert að sjá klippur úr sjón-
varpsþætti þar sem fylgst er með
hljómsveitinni Júdas í kringum
1975. Þar má meðal annars sjá þá
félaga í stúdíói með Megasi að taka
upp Millilendingu.
Myndin súmmerar vei upp þá
stemmingu sem var í kringum
þessar hljómsveitir, allt frá bítla-
tímanum til okkar daga. Það er
helst að hún sé langdregin á köfl-
um en það orsakast kannski að því
að þarna er um tvo sjónvarpsþætti
að ræða, sem skeytt er saman í
eina mynd fyrir bíó.
Siguijón Kjartansson
Áður birt 27.apr0 2005
Umsjón: Páll Baldvin Baldvinsson obbjwdv.is
Alþjóðlegur blær á skáldspírum
Annað Skáldaspirukvöldið á þessu árí verður annað kvöld á Iðu,
/arðhæð, kl. 20. og verður með alþjóðlegum svip. Snæfriður
Ingadóttir mun lesa upp úr nýrrí jólabók sinni: Opið hús
menning á íslandi nútimans. Þar fjallar húnum nýbúa frá
þrettán löndum, menningu þeirra og annað og birtir tvo mat
seðla frá hverju landi. Bókin dregur fram menningu annarra
landa og hvernig hún blómstrar á íslandi. Snæfríður mun riða á
vaðið og svara fyrirspurnum um bókina og býður sú umfjöllun
upp á liflegar umræður.
Eftir hlé les Björk Þorgrlmsdóttir upp úr óbirtum
Ijoðum sinum, sem hún orti iArmeniu, þar sem hún
fékkst við hjálparstörfá liðnu ári. Björk segir okk
ur betur frá kynnum sínum við landið og kveikj
unm að nýjustu Ijóðum sinum. Sem sagt allir sem
eru opnir fyrir nyjum stefnum og straumum og
kunna að meta góðan mat i bland við andlega
næringu eru hvattir til að mæta. Gestir mega
taka með ser hressmgu eða veitingar niður i upp
lestrarrými.
Snæfríður Ingadóttir
blaðakona Kynnirbók
sina um matarmenningu I
nýbúa. 1
Eurovision og Idolið með tilheyrandi kálfum settu sterkan svip á stóru stöðv-
arnar um helgina. Hér er fjallað um fyrsta keppnisþátt í lokahluta Idolsins þar
sem tólf manna sveit keppti á sviði Smáralindar. Krakkarnir stóðu sig misjafn-
lega en hópurinn er spennandi. í Eurovision-útslætti RÚV voru tveir keppendur
Idolsins í fyrra mest áberandi.
Að tala skemmtun í drep
Það em mikil söngvakvöld sem
hellast yfir þjóðina þessi dægrin: á
föstudag rann af stað lest Idolsins
sem verður mikið tilstand sem varir
alla vega í tólf vikur og í tengslum við
hana margskonar önnur þáttagerð.
Á RÚV var undankeppni Eurovision
og ofan í kaupið Það var lagið. Þetta
er þriðja árið sem hæfileikakeppnin
stendur áskrifendum til boða.
Reyndist hún þegar til kom vera það
efni sem flestir gátu sameinast um
og er nú að draga Stöð 2 upp fyrir
þau mörk sem sett vom fyrir daga
Skjásins. Enda vandað til og mikið í
lagt.
Nýtt útlit - nýir menn
Framleiðendur þáttanna vom
við upphaf þriðju raðar orðnir þess
vissir að þörf var á breytingum: strax
við val keppenda -var Þorvaldur
Bjami hættur og þeir Einar Bárðar-
son athafnamaður og Páll Hjálmtýs-
son sestir að dómaraborðinu þar
sem eftir sátu Ásbjöm Kristinsson
hljómlistarmaður og Sigríður Bein-
teinsdóttir söngkona. Á kynningar-
palli vom sem fyrr Simmi og Jói.
Tólf keppendur gengu til leiks á
föstudag og til að breyta útliti leik-
myndar hafði hún verið hulin glæm
plasti - ísþemað var komið aftur.
Minnti reyndar svolítið á
kynninguna
Fahrenheit-
rakspíranum á
sínum tíma á
Broadway.
á
Þessari betmmbót á settinu er tjald-
að til vetrarins. Hún verður orðin
svo leiðinleg í vor að allir verða fégn-
ir þegar henni verður slátrað. Kuld-
inn í litum er enda ekki aðlaðandi,
heldur ekki vel um túlkun á gleði og
tilfinningum.
Hárgreiðsla og húðlitur
Krakkamir vom glæsilega upp-
færð, hár klippt, andlit förðuð og
tennur hvíttaðar. Nær öll stóðu þau
á fyrsta kvöldinu á mörkum eftir-
hermu og völdu allt of mörg lög sem
vom þeim hreinlega ofviða.
Þetta sérkennilega bil meðlíðun-
ar, vonar og ótta sem glæsilegt útlit
og reynsluleysi kalla fram í áhorf-
enda heima í stofu reis hér upp á ný:
auðvitað em bútamir of stuttir í
upphafi svo hægt sé að fá hugmynd
um raunvemlega getu þeirra.
Þó sáust hér merki: tvær söng-
kvennanna kusu að hefja söng sinn í
stiga og ganga syngjandi niður, einn
pilturinn söng á móti tökuvél sem
snerist í hring um hann. Það þarf
hug og djörfung til að ráðast í svo-
leiðis hjá byijendum.
Palladómar
Ef framleiðendur vilja brydda
upp á einhverju óvæntu í lok raðar-
innar ættu þeir að leyfa þjóðinni að
kjósa dómara út af
sviðinu.
Þau
Idol - Stjörnuleit
Framleiðandi: Þór Freysson
Saga-film
Stöð 2 - 27. febrúar
★ ★
Sjónvarp
Snorri Snorrason
Fékk að heyra frá
dómurunum að
lagið værijeiðin-
legt“hvað sem það
þýðir í munni fag-
manns. Tók snún-
ingámóti vél sem
er feikierfitt fyrir
byrjanda.
s f1
\ I
fóm langt með það að gera þáttinn
óbærilegan á föstudag.
Reyndar vai sagt upp í opið geð-
ið á þeim að þau væm bara orðin of
gömul. Þau em ómarkviss, endur-
tekningasöm, leyfa sér sólóstæla
sem em hlægilegir: hvar er plástur-
inn sem var fyrir munninum á
Bubba á fyrstu auglýsingunum - er
ekkert eftir af rúllunni? Blaðrið í kall-
inum - talandi um að fólk verði að
þekkja takmörk sín. Sigríður hefur
helst til málanna að leggja að greina
fölsku línumar - hvomgt þeirra
kann að búa til umsögn í huganum.
Það kann Páll Óskar þó hann
leyfi sér að stökkva yfir í hlutverk
litla hommastráksins á köflum.
Einar er sá eini þeirra sem virðist
taka þetta af fúllri alvöm en er alltaf
fyndinn á persónulegan hátt án þess
að meiða.
Talað í drep
Þennan fýrsta þátt drápu dómar-
amir og kynnar næstum með
kjaftæði. Vom
þau öll
jms.
svona glöð að komast loksins að?
Þessi þáttur er ekki um þau? Þegar
stjónandi var búinn að hvísla í eyra
þeirra fyrir síðustu kynningu að þau
töluðu of mikið - ömgglega eldd í
fýrsta og síðasta sinn - var eins og
bráði af þeim: athugasemdir um
Nönu urðu knappar - þarf ekki líka
að útskýra hvað er gott í frammi-
stöðu? Það er ágætt að vera með
tjekklista um kosti og galla og fara
yfir hann í umsögnum - það getur
reynst vel.
Finna má að hljóði: undirleikur
tók oft yfir söng sem er aðalatriðið.
Myndbygging er orðin föst og furðu-
legt að ekki skuli beint markvissar
innskotum með andlitum áhorf-
enda.
Hæfileikakeppni Stöðvar 2 er
skemmtilegt fyrirbæri og dregur
fram fullt af hæfileikafólki - þó enn
séu menn að amast út í hana. Það er
því ekki ástæða tii að spUla skemmt-
un sem af henni má hafa með
þreyttum dómurum.
Páll Baldvin Baldvinsson
\
r t ■
m Dómarar í Idol-
Stjörnuleit Gleymasér
1 f /1 ígaspri, fella ómarkvissa
dóma og draga þáttinn
k / á langinn.
ngs*