Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2006, Side 27
DV Bílar
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 2006 27
að hafa kertið
efst í miðju
hvolfinu.
inn verður nær — "'5
sent eldsneytis-
verður jafnari; afl I. -
eykst og hætta á sótsöfnun minnkar
en hún veldur oft miskveikjun
(detonation) þegar mest á reynir.
Vegna djúpra kertavasa í miðju
heddinu er framíeiðsla „hemi-
hedds“ flóknari og dýrari en hefð-
bundins. Engu að síður fjölgar
„hemi-vélum" því með betri bruna
má minnka mengun í útblæstri.
www.leoemm. com
Einhver hefur án efa velt fyrir sér hvernig bflabelti, sem hefta ekki
hreyfingar manns við venjulegar aðstæður - jafvel þótt maður kippi í
þau, virki þegar þeirra verður þörf, þ.e. við árekstur. Innbyggt í belt-
arúlluna er búnaður sem verður virkur við ákveðið högg eða flóttaafl.
Annars vegar eins konar patróna sem stöðvar rúlluna og strekkir beltið
með skoti og hins vegar losunarbúnaður sem virkar strax eftir höggið
og slakar á beltinu í sem nemur brotabroti úr sekúndu. Með því móti er
komið í veg fyrir að höggið og strekkingin verði til þess að beltið valdi
áverka. Beltabúnaði er lýst, m.a. með myndum, í sumum þeirra hand-
bóka sem fylgja bílum.
Skoda Fabia
Fabia er tvímælalaust sigur-
vegarinn í þessari samanburðar-
lotu - með honum fær maður
mest fyrir peningana. Smíði bíls-
ins er áberandi vönduð og allur
frágangur til fyrirmyndar. Fabia
er stærstur þessara þriggja - bíll
með mikið innra rými, vandaða
þægilega framstóla, þægilegt aft-
ursæti og betri hljóðeinangrun
en maður á von á í þessari stærð
af bíl. Undir stýri virkar Skoda
Fabia stærri en hann er; ljúfur og
þægilegur. Sjálfsagt eru margir of
snobbaðir til að líta við Skoda og
„forn frægð“ gerir það að verk-
um að endursöluvirði er minna
en t.d. á VW Polo sem er sami
bíllinn í stórum dráttum. Af þess-
um þremur bílum er Skoda Fabia
þó sá sem ég myndi ekki kaupa
sjálfskiptan. Langstærstur hluti
seldra smábíla á evrópska mark-
aðnum eru handskiptir. Evrópsk-
ar sjálfskiptingar, jafnvel í stærri
bílum en Skoda Fabia, hafa
reynst misjafnlega og jafnvel
valdið himinháum viðgerðar-
kostnaði og vandræðum eins og
eigendur hafa sagt frá í „Spurt &
svarað“ hér í DV-bílum.
ToyotaYaris
Toyota Yaris er kynntur sem
nýr en hefur fengið andlitslyft-
ingur, þ.e. er gamalt vín á nýjum
belgjum. Innréttingin er orðin
gamaldags þrátt fyrir uppfærslu.
Yaris er rúmgóður, stór að innan
en lítill fyrirferðar; lipur og léttur í
akstri en dósarlegur, veghljóð og
vindgnauð er áberandi og fjöðr-
unin allt að því hörð - hvorki
skemmtilegastur né þægilegastur
en praktískur. Athygli vekur að
með aftursætið fellt myndast 1,3
m langt flutningsrými með sléttu
undirlagi. Þá skiptir máli að færa
má aftursætið 15 sm framar og
auka farangursrýmið ur 272 t 363
lítra án þess að fella bökin.
Yaris er fáanlegur með rafloiú-
inni kúplingu (þarf ekki að kúpla).
Ég myndi velja hefðbundnu 5 gíra
handskiptinguna. Ástæður þess að
bílaleigur velja Yaris, en það segir
meira en langt mál um bílinn, er að
þar fer saman sterkbyggður bfll me^0eg^0i
lága bilanatíðni og góð þjónustæ-—-
Það vill stundum gleymast aö—, - -
óhöpp gerast þótt bilanatíðni bfls sé
lág og því hefur vel skipulögð og öfl-
ug varahluta- og viðhaldsþjónusta
svo afgerandi áhrif á sölu bfltegund- 0 0 r
ar sem raun ber vitni. Endursölu-
virði Yaris er hátt.