Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2006, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2006
Fréttir DV
flHreö Gíslason
Kostir & Gallar
Alfreð er metnaðargjarn með
eindæmum. Hann er dekurgest-
gjafi og frábær þjálfari.
Alfreð er óskiljanlegur þegar
hann er æstur og getur bitið
hartfrásér.
„Aifreð er einn mesti keppnismað-
ur sem ég hefkynnst um ævina.
Við vorum saman í ung-
lingalandsliðunum og það
var gaman að upplifa hvað
hann hefurmikinn metnað
og keppnisskap. Hann er
llka góður þjálfari. Öðlingur
og góður heim að sækja. Alfreð var
ómögulegur i fótbolta þegar hann
varyngri. Þegar hann æsti sig mik-
ið fór hann fram úr sér og enginn
skildi hann þegar æsingurinn var
sem mestur."
Atli Hilmarsson handboltaþjálfari.
„Þetta viðfangsefni krefst mikillar
aðgætni þarsem Alfreð er eins og
fíllinn, hann gleymir engu.
Hann er skapmaður sem
nær að fuðra upp og man
það sem ekki fer eftir hans
höfði lengi. En hann er
öndvegismaður og gífur-
lega góður þjálfari. Víglinan hans i
skapi er dregin aðeins utar en hjá
öðrum, sem fylgir starfssviðinu.
Hann er manna Ijúfastur þegar
aðstæður gefast og sannkallaður
dekurgestgjafi. En hann er
harösvíraður krati. Ég hefaldrei
skilið að jafnfluggreindur maöur
og Alfreð brjótistekki út úrþeim
vitahring.“
Jóhannes G. Bjarnason, vlnurog bæjarfull-
trúl.
„Hann er eintómur snillingur, frá-
bær karakter og magnaður þjálf-
ari. Ég varsvo heppinn að
vinna meðhonum/ sex ár
fyrir utan að vera æskufé-
lagar. Einstaklega traustur
og metnaðarfullur. Það
væri draumastaða efhann
tæki landsliðið að sér. I hita leiksins
þarfstundum að túlka það sem
hann segir við leikmennina. Hann
getur verið grimmur og harður við
menn, en er þó harðastur við sjálf-
an sig. Ætlast til aðmenn geri það
sem þeim er sagt, efekki fá þeir
það óþvegið. Síðan eru margar
sögur bannaðar þar sem ýmislegt
hefurverið brallað."
Am! Jakob Stefánsson æskuvinur.
AlfreÖ Gíslason er fæddur 7. september 1959.
Hann er einn þekktasti handboltamaöur Is-
lands fyrr og síöar. Alfreö er kvæntur Köru
Guörúnu Melstaö og eiga þau þrjú börn. Hann
er borinn og barnfæddur á Akureyri - Brekku-
snigill eins og það kallast. Hann hefur veriö
oröaöur viö þjálfastööu íslenska hand-
boltalandsliðsins. en er nýlega hættur sem
þjálfari Magdeburg í Þýskalandi þar sem hann
býrnúna.
Vildi hitta
Símaforstjóra
Gunnar Bragi Sveinsson,
bæjarfulltrúi í Skagafírði, er
ósáttur við að hafa ekki
setið fund með Brynjólfi
Bjarnasyni,
forstjóra Sím-
ans. Ársæll
Guðmunds-
son sveitar-
stjóri fór einn
til fundarins
og ræddi
framtíðaráform Símans
sem ætlar að breyta versl-
unarrekstri sínum á Sauð-
árkróki. „Á fundi byggðar-
ráðs 31. janúar sl. var sam-
þykkt að byggðarráð óski
eftir fundi með forsvars-
mönnum Símans. Mótmæli
ég því að hafa ekki verið
boðaður á fundinn," bók-
aði Gunnar Bragi á fundi
sveitarstjórnar.
Guðmundur Ingi Kristinsson hefur kært Yngva Ólafsson lækni fyrir að stelast í
sjúkraskrá hans á Landspítalanum. Yngvi skrifaði skýrslu fyrir Vátryggingafélag
íslands sem neitar að greiða Guðmundi bætur sem hann krefst eftir bílslys. Yngvi
neitaði í fyrstu að hafa skoðað sjúkraskrána en grunngögn sýndu að hann hefði
flett upp á skránni í tölvukerfi Landspitalans.
„Mér var þ ákippt inn á sjúkra-
hús og settur beint í aðgerð. Þá
var annar endinn á járninu
byrjaður að stingást inn í
hrygginn og hihn út í bakið."
Guðmundur Ingi Kristins-
son „Matsmennirnir segja að
ég sé svo rosalega illa farinn
að ég sé gjörsamlega óvinnu-
fær en að ég fái samt ekki bæt-
ur, “ segir faðir fjögurra sona
sem berst nú við tryggingafé-
lag og lækni sem hann hefur
kært til Persónuverndar.
„Ekki er VIS bara að nota falsað álit læknis á þeirra vegum fyrir
dómi heldur er læknirinn einnig að stela sjúkraskrárupplýsing-
um um mig úr tölvukerfi Landspítalans," segir Guðmundur Ingi
Kristinsson, sem hefur kært Yngva Ólafsson lækni fyrir að hafa
skoðað sjúkraskrá hans í heimildarleysi.
Yngvi Ólafsson er yfirlæknir á
bæklunardeild Landspítalans í 80
prósent stöðu. Þess utan rekur hann
eigin læknastofu í Orkuhúsinu. Það
var sem slíkur að Yngvi tók að sér fyrir
Vátryggingafélag íslands (VÍS) að
skrifa greinargerð um Guðmund Inga
Kristinsson sem lenti í umferðarslysi
árið 1999.
Bakslag eftir bata
Upphaflega lenti Guðmundur í
slysi árið 1993. Það var síðan 1995 að
háls hann var spengdur með stáli og
grædd voru stálliðamót í mjóbak hans
árið 1997. Guðmundur segist hafa náð
sér vel á strik með sjúkraþjálfun en
síðan lent í mjög hörðum árekstri árið
1999.
„Rúmu ári seinna bað ég um bæt-
ur enda var ég gjörsamlega rúmfastur
og óvinnufær. Þá var mér metinn 5
prósent læknisfræðilegur miski og
fékk 400 þúsund krónur en engar fjár-
haglegar bætur. Jámið sem sett var í
mig 1997 fór að skrölta inni í mér eftir
áreksturinn og ég fárveiktíst árið 2003.
Mér var þá kippt inn á sjúkrahús og
settur beint í aðgerð. Þá var annar
endinn á jáminu byrjaður að stingast
inn í hrygginn og hinn út í bakið," lýs-
ir Guðmundur
Læddist í skrána
Guðmundur deilir við VÍS um
skaðabætur vegna þeirra afleiðinga
sem slysið hafði á heilsu hans.
Eins og áður segir réð VÍS Yngva
Ólafsson til að gera skýrslu um málið.
Sem yfirlæknir á Landspítalanum
nýtti hann sér aðgang að tölvukerfi og
las sér til í sjúkraskrá Guðmundar án
þess að fá til þess heimild. Guðmund-
ur telur að Yngvi hafi með þessu brot-
ið lög og kærði hann til Persónu-
vemdar í fyrrasumar. Niðurstaða í því
máli liggur enn ekki fyrir.
Laug að sjúkrahússtjórninni
„Yngvi harðneitaði þessu við
sjúkrahússtjómina sem síðan þvertók
fyrir að Yngvi hefði skoðað skrána
mína. Persónuvemd bað þá um að fá
að skoða uppflettirit. f því sést að
Yngvi Ólafsson hafði skoðað skránna
mína í maí í fyrra þegar hann var að
vinna greinargerðina fyrir VÍS. Þegar
það kom í ljós sneri hann við blaðinu
og bar þá fyrir sig að hann hefði haft
leyfi því lögmaðurinn minn væri með
umboð frá mér til að skoða öll gögn.
Þetta umboð sem ég veitti lögmann-
inum var hins vegar hvergi í gögnum
málsins fýrir en fimrn mánuðum eftir
að Yngvi skoðaði skrána. Þess utan
veitir þetta umboð lögmanni mínum
enga heimild til að veita öðmm að-
gang að mínum gögnum. Ofan á það
veittí hann Yngva alls ekki neitt leyfi."
Sjúklingur í röngum bíl
Annað atriði sem Guðmundur er
ósáttur við er sú staðreynd að í skýrslu
Yngva fer læknirinn rangt með það í
hvomm af bílunum tveimur Guð-
mundur hafi verið þegar áreksturinn
varð 1999. Þannig hafi hann ranglega
verið settur í þann bíl sem minna
skemmdist.
„Þegar það komst upp um hann
sagði hann það ekki skipta nokkm
máli í hvomm bflnum ég hefði verið.
Það sjá allir að auðvitað skiptír það
máli þegar meta á hver áhrif höggsins
vom,“ segir Guðmundur.
í greinargerð Yngva sjálfs til
sjúkrahússtjómarinnar viðurkennir
hann að hafa staðsett Guðmund í
rangan bfl. Biðst hann velvirðingar á
því en segir þó jafnframt að það hafi
engin áhrif haft á niðurstöðu hans.
Hann hafi verið að „leggja mat á
krafta þá sem slysið leysir út og snerta
á sama hátt báða ökumenn enda er
áreksturinn einn og hinn sarni".
Matsmenn mótdrægir
Guðmundi
Guðmundur segir lækni sem gerði
á honum aðgerð á Landspítalanum á
árinu 2003 telja hafið yfir vafa að stál-
liðamótin sem grædd vom í hann
1997 hafi losnað í slysinu 1999 og
hann orðið fyrir miklu heilsutjóni.
Guðmundur hefúr síðan höfðað
mál á hendur VÍS með kröfu um bæt-
ur. Héraðsdómur Reykjavíkur kvaddi
til tvo sérfræðinga sem meðal annars
lögðu mat á málið út frá skýrslu Yngva
Ólafssonar í sinni uppmnalegu og
röngu mynd. Yngvi telur slysið ekki
hafa valdið hinu aukna heilsutjóni
Guðmundar.
„Matsmennimir segja að ég sé svo
rosalega illa farinn að ég sé gjörsam-
lega óvinnufær en að ég fái samt ekki
bætur. Þetta er vegna þess að spum-
ingar VÍS til þeirra vom orðaðar upp
úr þessari óleiðréttu skýrslu Yngva,"
segir Guðmundur.
Ber ekki meira en sjálfan sig
Að sögn Guðmundur hefur sænsk-
ur sérfræðingur nú skoðað röntgen-
myndir af áverkum hans. Svíinn reki
lið fyrir lið það sem gerst hafi og styðji
Guðmund í einu og öllu.
Guðmundur sem telur sig eiga rétt
á bótum sem nemi ekki undir tíu
milljónum króna segist bjartsýnn á
framgang máls síns fyrir héraðsdómi
en bætir þó við:
„Þetta er búið að setja mig á haus-
inn einu sinni og á götuna. Ég tók
sénsinn og keypti aftur en á nú á hættu
að missa allt út af því að þessi vitleysa
tekur svo langan tíma,“ segir Guð-
mundur sem á fjóra syni á aldrinum
tólf tii tuttugu ára og hefur ekki getað
unnið um langt árabil: „Ég á bara nóg
með að standa undir sjálfum mér.“
gar@dv.is